Vera - 01.06.2004, Side 50
/ YSTU MORK GRIMMDARINNAR
SUMIR ANGAR FEMÍNISTAHREYFINGARINNAR VILJA HALDA ÞVÍ
FRAM AÐ AUKNAR VINSÆLDIR KLÁMS SÉ MERKI UM AUKIÐ
JAFNRÉTTI OG FRELSI í KYNLÍFI. Á SAMA TÍMA HEFUR
FEMÍNISTUM SEM ERU Á MÓTI KLÁMI VERIÐ ÝTT TIL HLIÐAR í
UMRÆÐUNNI. OG MEÐAN ÞESSU VINDUR FRAM HALDA KLÁM-
JÖFRARNIR ÁFRAM AD GRÆÐA Á TÁ OG FINGRI
fucking face. All the way down, choke, choke," og „That's
real face fucking". Þegar hér er komið sögu er andlit henn-
ar afmyndað og hún virðist þjást. Hún leggst á jörðina og
karlmennirnir nálgast hana aftan frá. „Eat that whole fuck-
ing dick. ... You little whore, you like getting hurt," segir
einn þeirra. Eftir að þeir hafa allir sprautað sæði upp í hana
flæðir sæðið út á líkama hennar. Að loknu siðasta sáðlát-
inu teygir hún sig í vínglasið, tekur gúlsopa og lítur upp til
kærastans og segir: „God, I love you baby." Brosið dofnar á
andliti hennar og yfir færist sársaukafullur svipur niður-
lægingar og örvæntingar.
Það sem klám segir um karla og konur
Ég get ekki vitað nákvæmlega hvernig konunum í þessum
klámmyndum leið, líkamlega eða tilfinningalega, meðan á
tökum stóð. En það sem Bella Donna, ein þeirra sem kom
fram í „Two in the Seat #3" sagði í sjónvarpsviðtali var
þetta: „Maður verður að undirbúa sig líkamlega og and-
lega fyrir svona senur. Ég meina, ég fer í gegnum visst ferli
í hálfan sólarhring fyrir tökur. Ég hætti að borða klukkan
fimm síðdegis. Ég fæ mér, þú veist, tvær stólpípur og svo
borða ég ekkert um morguninn. Þetta er svo erfitt fyrir lík-
amann."
Enda þótt sársaukinn sem sjá má i senunum sem lýst
var hér að framan væri uppgerð en ekki raunverulegur,
hvernig stendur þá á að leikstjórarnir klippa ekki út þessi
svipbrigði? Ég sé aðeins tvö möguleg svör: Annað hvort
sjá þeir ekki ástæðu til þess vegna þess að slíkt vekji hvort
eð er ekki eftirtekt áhorfenda og dragi því ekki úr sölu
myndanna, eða þá að þeir telji sig vita að áhorfendurnir
vilji sjá konurnar kveljast; að sársauki kvenna selji. Og
hvers vegna finnst sumum karlmönnum það að valda kon-
um sársauka á meðan á kynlífi stendur annað hvort ekki
hindrun fyrir því að þeir njóti kynlífs eða þá atriði í því að
auka unaðinn af kynlífi?
Ég held að það snúist allt um hin ystu mörk.Það eru tak-
mörk fyrir hvað fólk getur stundað kynlíf á margbreytileg-
an máta, svona tæknilega séð.
Það er takmarkaður fjöldi líkamshluta og -opa, tak-
mörkuð fjölbreytni sem hægt er að nota við að mynda
þann núning sem veldur örvun og tilfinningaviðbrögðum.
Þess vegna ganga frásagnir af kynlífi oft út á eitthvað um-
fram það tæknilega. Þegar venjulegar Hollywoodmyndir
sýna kynlíf er það yfirleitt út frá sjónarmiðum ástar eða
væntumþykju, sem flestir tengja við kynlíf. En klámmynd-
ir hafa ekki þann möguleika því, eins og rannsóknir mínar
hafa sýnt, karlmenn horfa á þær til þess að forðast ást og
væntumþykju og vilja eingöngu kynferðislega útrás.
Og það þýðir að klám sem ekki sýnir tilfinningaleg til-
brigði verður tilbreytingarlaust og óáhugavert, meira að
segja í augum þeirra karlmanna sem horfa eingöngu á
það til þess að auðvelda sér sjálfsfróun. Og þess vegna
þarf klámið að fara út á ystu nöf.
Þegar lagaákvæðum um klám í Bandaríkjunum var
smám saman aflétt á áttunda og níunda áratugnum urðu
endaþarmsmök ystu mörkin vegna þess að litið var á þau
sem eitthvað sem konur vildu ekki. Eftir því sem enda-
þarmsmök urðu fastur liður bættu 'gonzo' myndirnar við
tvöföldum samförum (þar af endaþarmsmökum) og
munnmökum þar sem konur kúgast - aftur það sem karl-
menn álíta að konur vilji almennt ekki. Nú orðið nýtur klám
svo almennra vinsælda að mörkin eru alltaf að færast. Eða
eins og Jerome Tanner sagði, þegar hann tók þátt í hring-
borðsumræðum klámmyndaleikstjóra sem birtar voru í
Adult Video News: „People want it harder, harder and
harder, because ... what are you gonna do next?" (Fólk vill
það hörkulegra, hörkulegra og hörkulegra, því... hvað áttu
svo sem að gera næst?)
Það er ekki að undra að 'þessi nýju ystu mörk' innihaldi
meira og meira af ódulinni grimmd - það er auðveldur
kostur því feðraveldið drottnar yfir undirokuðum konum
og því er auðvelt að velja þá leið. Að sjálfsögðu erum við
öll fær um að sýna af okkur grimmd. En það viðtekna klám
sem ætlað er gagnkynhneigðum er orðið þannig að við
hljótum að spyrja: Hvers vegna hefur grimmd orðið svo
tengd kynlífi í huga sumra karla?
Rannsóknir femínista hafa fyrir löngu staðfest að
nauðgun felur í sér kynlífstengt vald, að í hugum karla
tengist unaður í kynlífi yfirráðum og því að hafa stjórn.
Frasinn „nauðgun snýst ekki um kynlíf heldur vald" er því
villandi; nauðgun er þegar slær saman kynlífi og drottnun-
arhneigð og snýst um stjórnun á kynlífi. Og ( þessum
menningarheimi er nauðgun sjálfsögð. Það er að segja, í
menningarheimi þar sem sú skilgreining á kynlífi verður æ
algengari að karlmenn hafi ánægju af konum, er nauðgun
einn tjáningarmáti þess menningarheims, ekki brot á regl-
unum innan hans. Kynlíf er svið þar sem karlmenn þjálfast
50/3. tbl. / 2004 / ver«