Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Síða 13

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Síða 13
TlMARIT VFl 1960 43 gæfi rétta mynd af efnakerfinu. En víða er svo ekki, m. a. hér á landi. Þróun mála undanfarin ár hefur valdið ósamræmi milli fjárkerfis og efnakerfis. Er þetta af- leiðing óeðlilegrar verðmyndunar í skjóli hafta. Eingöngu efnahagsleg sjónarmið liggja til grundvall- ar eftirfarandi greinargerð. Með hliðsjón af þessu hefur verið horfið að því að meta innlenda vinnslu yfirleitt á verðlagi í nágrannalöndunum. Þá er og nauðsynlegt að gera grein fyrir því, að eftirfarandi gögn og niðurstöður eru með öllu óháð stjórnskipan iðngreina og þjóðfélaga, þ. e. þær hafa ekkert „pólitískt gildi“. Þær gilda jafnt um séreignar- sem sameignarþjóðfélög. Virðist mönnum hollt að íhuga, að þau miklu átök, sem nú fara fram milli þjóðfélaga með ólíkri stjórnskipan, eiga rót sina fyrst og fremst að rekja til sálfræðilegra atriða, þ. e. hér er fyrst og fremst um að ræða valdabaráttu og fylgifiska hennar. Hugtölc og sluðlar. Notaðar verða eftirfarandi meginstærðir: K = Stofnkostnaður fyrirtækis. B = Árleg verg (brúttó) vinnsla fyrirtækis. R = Árlegar aðkeyptar rekstrarvörur. V = B — R = Árleg vinnsla (nettó) fyrirtækis. N = Fjöldi starfsmanna fyrirtækis, eða raunveru- lega fjöldi vinnuára, sem þarf til þess að skapa B. Þessi hugtök má nota jafnt um einstök fyrirtæki sem um þjóðfélagssheildina. Á grundvelli framangreindra hugtaka má skilgreina eftirfarandi stuðul og stærðir: s = K/V = Stofnfjárstuðull. A = V/N = Afköst vinnuárs. F = K/N = Fjárfesting á vinnandi mann. Stofnfjárstuðul verður að skilgreina á tvennan hátt. Annars vegar er stuðull alls fyrirtækisins, en hann er nefndur heildarstuðull (total) og merktur sh- Hins vegar er stuðull aukningar fyrirtækisins á gefnu tímabili, en hann er nefndur aukningarstuðull (marginal) og merkt- ur sH. Stærðir þessar má nota til þess að meta efnahagsleg gæði fyrirtækja. Stofnfjárstuðullinn, sem hagfræðingar nefna almennt „capital coefficient", er mat á nýtingu stofnfjár. Afköst vinnuárs er mat á nýtingu vinnu. Fjár- festing á mann er mat á kostnaði vinnustaðar. Framangreindai' stærðir eru mjög breytilegar. 1 eftir- farandi töflu eru gefin nokkur athyglisverð dæmi. I fyrsta lagi eru töflur, sem lagðar hafa verið fram um nokkra þætti iðnaðar á Norðurlöndum. 1 öðru lagi eru tölur, sem undirritaður hefur reiknað um danskan landbúnað samkvæmt landbúnaðarskýrsl- um dönsku hagstofunnar. Einnig eru tölur frá Finnlandi og Svíþjóð. 1 þriðja lagi eru tölur um landbúnað og sjávarútveg á Islandi. Undirritaður hefur reiknað þessar tölur með hliðsjón af landbúnaðarskýrslum og rekstraryfirliti Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Stuðlar fyrir islenzkan landbúnað eru reiknaðir á grundvelli meðal nýbýlis. Vinnsluvörur og rekstrarvörur eru reiknaðar á meðalverði í Danmörku. Það skal tekið fram, að þessar tölur eru ekki fyllilega nákvæmar, þar sem gögn um landbúnað hér á landi eru nokkuð ónákvæm. Tölur um íslenzka togaraútgerð eru miðaðar við meðal- afkomu togara hjá Bæjarútgerðinni 1956 og 1958. Fisk- vinnslan í landi er talin með skipinu þannig, að vinnslan er reiknuð á erlendu markaðsverði fyrir fullunninn fisk. Til stofnkostnaðar togarans er talinn hluti hans í vinnslu- stöðvum í landi. Vinna I vinnslustöðvunum er einnig tal- in með vinnu sjómanna. Loks eru gefnar vergar tölur fyrir 32 stærstu iðnaöar- fyirtæki Bandaríkjanna. Þar sem fyrirtæki þessi gefa ekki upp verðmæti aðkeyptra rekstrarvara er þvi miður aðeins um vergar tölur að ræða. Líklega eru þessi fyrirtæki að miklu leyti sjálfum sér nóg og er því ólíklegt, að rekstrarvarningur sé hlutfallslega stór liður. Einnig eru tilsvarandi tölur um efnaiðnað á Bretlandi og Vestur- Þýzkalandi. TAFLA I Dœmi um stuðla fyrirtœkja. Stofnfjár- Afköst Fjárfesting stuðull mannár á mann Iðnaður: Svíþjóð sh s„ Á F (1) Trjáiðnaður 1,5 $ 2.750 $ 4.000 (2) Leður- og gúmmíiðn. 1,5 2.800 4.250 (3) Fataiðnaður 2,2 2.000 4.000 (4) Málmiðnaður 1,8 3.250 5.750 (5) Jarð- og steinefni 2,5 2.000 5.000 (6) Matvælaiðnaður 2,1 4.000 8.200 (7) Efnaiðnaður 2,2 4.750 10.500 (8) Pappírsiðnaður 2,6 4.250 11.000 (9) Stáliðnaður 4,4 3.250 14.000 Iðnaður: Norðurlönd 1,6 2,3 2,1—4,7 yfirlitstölur án Islands Rafefnaiðnaður: Noregur Norsk Hydro, reiknað út frá bókuðu stofnfé 3,2 6.000 19.000 Landbúnaður: Norðurlönd (1) Danmörk, heildin (2) Danmörk, aukning 1.800 6.800 1948—1954 8,1 (3) Finnland, Svíþjóð 4,5 lsla>id (1) Landbúnaður 10,0 1.200 12.000 (meðal nýbýli) (2) Landbúnaður, heildin (3) Togaraútgerð 1.200 ásamt fiskvinnslu 2,7 7.500 20.000 Stóriðnaöur, vergar tolur sh s„ Á F (1) Bandaríkin 0,8 22.000 18.000 32 stærstu iðnaðar- fyrirtæki. (2) Bandaríkin 29.000 efnaiðnaður, heildin (3) Bretland, Þýzkaland 0,9- -1,3 12.000 efnaiðnaður, heildin Samkvæmt þýzkum heimildum er stofnfjárstuðull hins þýzka iðnaðar yfirleitt 1,0 til 1,5. Skýrir þetta að nokkru leyti hina athyglisverðu þróun þar í landi eftir styrjöldina. Með hliðsjón af niðurstöðutölum í töflu I má yfirleitt skipta atvinnugreinum í þrjá aðalflokka eftir afköstum eins og sýnt er í töflu II.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.