Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Blaðsíða 32

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Blaðsíða 32
62 TlMARIT VFl 1960 mannvirkjagerð, heldur og í verzlun og viðskiptum alls konar, og heimilishaldi manna. Raforkuvinnslan er í sjálfu sér iðnaður og á sama hátt og verksmiðjur, við búum til afurðir lítt unnar eða fullunnar. En raforku- vinnslunni fylgir auk þess mjög náið flutningur ork- unnar heim að dyrum hvers notanda. Notendur eru heimili eða atvinnufyrirtæki. Notandi tekur raforkuna í sina þjónustu við húsvegg hjá sér til hinna margvís- legustu starfa og vinnsluaðferða, og eru notkunarhætt- irnir ærið misjafnir. Stundum er um að ræða mikla aflþörf um skamman tíma í senn, en stundum um mikla orkuþörf með tiltölulega litlu afli, er starfar langtímum saman. Nú er kostnaðarverð raforkunnar háð bæði afli og orku, og hafa því orðið til ýmsir gjaldskrárliðir við verðlagningu á sölu raforkunnar, sem fyrst og fremst eru háðir þessum mismun i notkunarhætti, eða, sem við miðum oft við, nýtingartíma aflsins. En þegar finna á rétt söluverð raforkunnar, er það fyrir mestu að vita deili á notkunarhætti notandans. Eigi aðeins árlegan nýt- ingartíma, heldur og hvenær árs og dags notkun hans fer fram. Það er keppikefli að haga verðlagningu raf- orkunnar þannig, að með henni fáist sem réttlátust lausn, svo að hinir stóru hópar notenda greiði eigi hlut- fallslega mun minna en aðrir, ef það verður til tjóns fyr- ir heildina, o. e. t. v. f járhagsafkomu rafveitunnar sjálfr- ar. Þetta hefur ekki verið vandamál í Reykjavík fram til þessa, því þar eru notendahóparnir margir og allir tiltölulega smáir hver um sig. Hins vegar er þetta orðið vandamál meðal sumra hinna smærri rafveitna úti á landi, þar sem fá stór fyrirtæki yfirgnæfa meðal not- endanna, en aflþörf þessara fyrirtækja er oft með mjög lágum nýtingartíma og oft vertiðarbundin, svo að hætta er á, að rafveitan geti ekki staðið undir skyldum sínum fjárhagslega. Með aukinni iðn- og vélvæðingu gætir þessa æ meira. En þegar svo er komið, að þessi undir- stöðugrein, sem rafveitan er, á í fjárhagslegum erfið- leikum, er hætt við að sjálfar atvinnugreinimar, sem hana nota, komi til með að líða við það einnig, ef raf- veitan hættir að geta fullnægt hlutverki sínu. Erlendis hafa þessi verðlagsmál verið athuguð mjög náið, og er það talið sjálfsagt að verja nokkru fé árlega til rann- sókna á fjárhagsgrundvelli og fjárhagsskilyrðum sér- hvers fyrirtækis. I þeim erlendu rannsóknum á þessu sviði kemur í Ijós, að kostnaður raforku var um 1% af rekstrarkostnaði flestra fyrirtækja til uppjafnaðar, allvíða minna en þetta og stundum meira, allt upp í 4%. Er þá undanskilinn sá iðnaður, sem er svo mjög orkufrekur, að telja má raforkuna eins konar hráefni til vinnslunnar, svo sem málmbræðsla og því um líkt. Sem dæmi um slíkan iðnað hér á landi má nefna raf- greiningu vatns í Áburðarverksmiðjunni. En þegar slik- ur iðnaður er undanskilinn, liggur raforkukostnaðurinn hér á einum til fárra hundraðshluta alls reksturskostn- aðar. Hliðstæðar tölur þeim, sem birtar hafa verið er- lendis, eru ekki til hér á landi, en lausleg athugun bendir til þess, að raforkukostnaður fari sjaldan yfir 3% hér á landi, hvort heldur er í heimilishaldi eða atvinnurekstri og oft lægri. Mun reynast, ef þetta atriði verður athug- að nánar, að tölurnar hér á landi muni í þessum efn- um eigi verða mjög frábrugðnar erlendum tölum, ef vinnuhagræðing og afkastageta fyrirtækisins, sem raf- orkuna notar, er sambærileg við það, sem erlendis gerist. Má þvi fullyrða, að raforkan sé ódýrt hjálpartæki í þjóð- lífinu, en það er ekki nóg að ætla að svo sé, það þarf að rannsaka betur en gert hefur verið, hvert orkuverðið þarf að vera til þess að fullnægja vaxandi orkuþörf sem víðast í landinu, þannig að sem beztur árangur náist til framhaldsþróunar á þessu sviði. Við höfum rekið okk- ur á það, þegar við viljum gera athugun á notkun rafmagnsins, eru erfiðleikar á að fá fram nægar und- irstöðuupplýsingar um reksturshætti notandans og um afköst hans. Það er augljóst mál, að notandi, sem hefur óhentugar vélar, þarf að nota miklu meiri raforku en annar, sem hefur hagkvæmari tæki til sömu afkasta. Getur enginn búizt við að raforkuverðið til hans sé miðað við hin óhentugu skilyrði til lengdar, þó þetta hafi átt sér stað um stund. Hér er umbóta þörf. Hvert fyrirtæki verður að vita skil á hverjum kostnaðarlið og hversu mikill þáttur hann þarf að vera til þess að ná sem beztum árangri. Erlendis verja flest fyrirtæki og einkum hin stærri ákveðnum hluta tekna sinna, oft upp 15%, til rannsókna á eigin afköstum og á afkastaskil- yrðum og á hagræðingu starfsemi sinnar. Hér vantar þessar rannsóknir við fjölmörg fyrirtæki. Á þessu þarf að verða breyting. Rannsóknastarfsemi hvers fyrirtækis, eða sameiginlegar rannsóknir samstæðra hópa fyrirtækja, þarf að koma á fót og efla. Rafveiturnar mundu fagna því að hafa samstarf við slíkar rannsóknadeildir eða stofnanir fyrirtækja um hið sameiginlega hagsmuna- mál, verðlagningu raforkunnar við sem fullkomnasta rafvæðingu, sem ávallt megi treysta, bæði tæknilega og fjárhagslega, að veiti sem bezta þjónustu, er eigi bregðist. Þetta er mál, sem hefur verið rætt oft hjá okkur, að fá góðar upplýsingar um hverju rafmagnið afkastar hjá fyrirtækjunum. í sambandi við þetta vil ég að komi fram hérna til- laga, ályktun um rannsóknastarfsemi. „Ráðstefna íslenzkra verkfræðinga, haldin í Reykjavík 22. og 23. september 1960, telur tímabært, að gerðar séu ráðstafanir til að hafnar séu reglubundnar rannsóknir á nýtingu (framleiðni) vinnuafls og fjármagns í íslenzku atvinnullfi og niðurstöður slíkra rannsókna birtar reglu- lega. Telur ráðstefnan slíkar rannsóknir nauðsynlegar til þess að þróun íslenzks atvinnulífs samræmist sem bezt hagsmunum þjóðarinnar". Þá vildi ég spyrja, hvort einhverjir vildu taka til máls í framhaldi af þessu. Glúmur Björnsson: Hér virðist dr. Benjamín gera 1 aðalatriðum þrjár athugasemdir við erindi Gunnars Böðvarssonar, sem hér var flutt í gær. I fyrsta lagi að tölur Gunnars um aukningu þjóðartekna á tímabilinu 1947—58 séu ó- fullnægjandi, sökum þess hve stutt tímabil þetta er. I öðru lagi að fjárfesting 1 raforkuvirkjunum skili lítilli aukningu þjóðartekna; að Gunnar haldi því fram. Og í þriðja lagi virðist mér dr. Benjamín halda því fram, að Gunnar geri of mikið úr þýðingu f járfestingar fyrir aukn- ingu þjóðarteknanna. Ég vil taka það fram, að ég hefi lítið sem ekkert rætt við Gunnar um erindi hans og get ekki upplýst frekar en fram kemur í erindinu, hvernig hann hefur fengið þær niðurstöðutölur, sem þar eru til- greindar. Ég hef því enga sérstaka aðstöðu né umboð Gunnars til að skýra sjónarmið hans, en vildi þó mega vikja nokkrum orðum að athugasemdum dr. Benjamíns. Það er þá fyrst aukning þjóðarteknanna á tímabilinu 1947—58. Ástæðan til að Gunnar velur þetta tímabil kemur skýrt fram í erindi hans, þvi hann er aðeins að ræða efnahagsþróunina eftir heimsstyrjöldina og gera samanburð við efnahagsþróun Islands og annarra landa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.