Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Blaðsíða 14
44
TlMARIT VFl 1960
TAFLA II
Flokkur Stofnfjárstuðull
sh
I. Stóriðnaöur,
Bandar., Norðurálfa < 1,5
II. Minni iðnaður, rafefna-
iðnaður, fiskveiðar
og fiskvinnsla 1.5—5,0
III. Landbúnaður
Danmörk, Island > 5,0
Afköst/mannár
A
$ 12.000—30.000
2.000—10.000
< 2.000
Þessar töflur sýna glögglega mikinn mun afkasta
hinna einstöku atvinnugreina. Stóriðnaðurinn er 6 til 15
falt afkastameiri en landbúnaður, jafnvel þótt miðað sé
við háþróaðan landbúnað eins og í Danmörku. Vert er að
gera sér grein fyrir afkomu Norsk Hydro í samanburði
við annan stóiiðnað. Norsk Hydro byggir vinnslu nær ein-
göngu á orkufrekum rafaðferðum, og er þvi tiltölulega
stofnfjárfrekt fyrirtæki, og virðist hvergi sambærilegt
við annan stórefna iðnað.
Tímabreytingar efnahagsins.
Tímabreytingar eiga rót sína að rekja til (1) fólks-
fjölgunar, (2) neyzluaukningar einstaklingsins, (3)
flutnings vinnuafls frá vinnslu til þjónustu og (4) ytri
aðstæðna. Þessar hreyfingar gera ákveðnar kröfur til
þróunarinnar.
Hér skal reynt að gera grein fyrir nokkrum megin
dráttum þróunar í þjóðfélagi, ef miðað er við jafnþróun
að miklu leyti.
Gengið verður fyrst út frá þeim hluta þjóðfélagsins,
sem stundar vinnslu, þ. e. iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði
og mannvirkjagerð.
Með þjónustu er hins vegar átt við þann hluta þjóð-
félagsins, sem ekki fellur undir vinnslu í framangreind-
um skilningi.
Óarðbær fjárfesting er talin sú fjárfesting, sem ekki
fer til aukningar vinnslunnar, þ. e. íbúðarhús o. s. frv.
Ef byggt er á framangreindri skilgreiningu fara á
Norðurlöndum um 60% af þjóðartekjum til vinnslu.
Eftirfarandi hugtök verða notuð:
Hugtök Árleg aukning í %
N = Fólksfjöldi alls n
Q = Hluti N, sem fæst við vinnslu í % -q
A = Afköst einstaklingsins á ári í vinnslu a
V = Vinnsla alls á ári = AQN v
B = Þjóðartekjur nettó á ári b
P = V/B
M= Neyzla einstakl. á ári (af vinnslu) m
M0= Óarðbær fjárfesting á einstakling á ári
F = Fjárfesting á ári
H = F/B
S = Meðal stofnfjárstuðull F
f = F/V = F/PB
F0= M„dN/dt
f0= F0/V = F(J/PB
s = Meðal stofnfjárstuðull vinnslu
r = f0/f
Með þessum hugtökum má rita
V = AQN,
og taka tímaafleiðu, þ. e.
v = a — q + n
Einnig verður
MN = AQN(1—f),
(1)
(2)
(3)
og með óbreyttu f fæst tímaafleiða
mM = (a—q) AQ(1—f)
eða
a = m + q (4)
en þessi jafna breytir (2) í
v = m + n (5)
Með jöfnu (4) er gerð grein fyrir þeirri staðreynd, að
afköst einstaklingsins i vinnslu verða að aukast í sam-
ræmi við aukningu neyzlu og minnkun vinnsluhluta þjóð-
félagsins. Jafna (5) gerir hins vegar grein fyrir því, að
aukning vinnslunnar verði að vera í samræmi við aukna
neyzlu og aukinn fólksfjölda.
Loks gildir fyrir fjárfestinguna
F = fV = sdV/dt + M0dN/dt (6)
og þar sem
vV = dV/dt og nN = dN/dt
verðui- þetta
f == sv + M0n/AQ (7)
en þetta má einnig rita
f = s(m + n) + f0 (8)
eða
f = s(m + n)/(l — r). (9)
Hér hefur fjárfestingin verið miðuð við vinnsluna, en
venjulega er hún miðuð við nettó þjóðartekjur. Þessa
breytingu má gera með því að margfalda jöfnu (9)
með P og fæst þá
H = s(m + n)P/(l — r) (10)
eða ef miða skal við stofnfjárstuðul heildai' fjárfestingar
verður jafnan
H = S(m + n) = Sv (11)
þar sem
S = sP/(l — r) (12)
Jafna (11) gefur samhengið milli fjárfestingar og
vinnsluaukningar og sýnir hina miklu þýðingu stofn-
fjárstuðulsins.
Að sjálfsögðu er rétt að taka fram, að framangreind-
ar jöfnur gefa aðeins eðlilegt samhengi milli hinna skil-
greindu stærða. Jöfnurnar fela eða gefa engar nýjungar.
Þær eru eingöngu ritaðar til þess að draga fram um-
rætt samhengi.
Jöfnur (4), (5) og (11) eru helztu niðurstöður þess-
ara hugleiðinga. Eins og áður er drepið á gefa jöfnur
(4) og (5) sambandið milli aukningar afkasta, fólks-
fjölda, neyzlu og minnkunar vinnsluhluta.
Til skýringa á þessu má nefna tímabreytingar á
Norðurlöndum (án Islands). Með hliðsjón af þeim tölum,
sem gefnar eru í hagskýrslum þessara landa fást eftir-
farandi niðurstöður.
TAFLA III.
Tímabreytingar á Norðurlöndum undanfarvnn áratug.
Aukning fólksfjölda n = 1 % á ári
Aukin neyzla á mann m = 2 % - —
Minnkun vinnsluhluta q = 0,8% - —
Aukning vinnslu v = 3 %
Aukning afkasta á mann a = 2,8% - —
Þessar niðurstöður tímabreytinganna á Norðurlöndum
eru að sjálfsögðu athyglisverðar. Með því að auka af-
köst á mann um 2,8% hefur tekizt að auka neyzlu um