Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Qupperneq 54
84
TÍMARIT VPl 1960
erfiðleikar að enginn gerir svo öllum líki. Ég vildi, að
við héldum okkur við tillögumar í þeirri röð, sem við
höfum verið með þær. Þá er þessi víðtækasta og stytzta.
Vilja menn ræða hana frekar? Ef svo er ekki, vil ég
bera hana upp og biðja þá, sem vilja samþykkja hana,
að gera svo vel að rétta upp hönd. Þökk. Viljið' þið að
ég iesi hana upp?
„Ráðstefna islenzkra verkfræðinga 1960 telur nauð-
synlegt, að tæknimenntun í landinu verði tekin til gagn-
gerðrar endurskoðunar, þannig að hún verði aukin og
endurskipulögð í samræmi við kröfur tímans".
Skúli flutti ágæta greinargerð fyrir þessari tillögu,
og ég vil þá bera hana upp á ný og biðja þá, sem vilja
samþykkja hana að gera svo vel og rétta upp hönd.
Þökk fyrir. Er nokkur á móti? Það er ekki, þá er það
samþykkt.
Þá er þessi lengri tillaga frá nefndinni, sem hafa
komið athugasemdir við. Önnur kom frá prófessor Finn-
boga fyrr um það, að það mætti sleppa seinni partin-
um af henni, vegna þess að það væri sjálfgefið, að verk-
fræðingafélagið væri svo sterkur aðili, það væri óþarfi
að bjóða þetta fram. Ég hef verið að hugsa um þetta,
og ég er ekki alveg viss um að það sé rétt að sleppa
því. Þvi að, ef þetta stendur ekki í tillögunni, þá er
þetta ekki boðið fram, en aðstaða verkfræðingafélagsins
er ekki eins og var hér í gamla daga, þegar þetta var
að byrja, þá var engin verkfræðideild til hér við há-
skólann, engir prófessorar, en nú er hvort tveggja til,
og auðvitað er það deildin og prófessorarnir og há-
skólinn sjálfur, sem ræður sínum gerðum í þessu máli,
að því er snertir háskólann, svo mér virðist að þetta
eigi að koma með.
„Ráðstefna íslenzkra verkfræðinga, haldin í Háskóla
Islands dagana 22. og 23. sept. 1960, telur, að kennsla í
verkfræði við háskólann á undanfömum áratugum
hafi gefizt mjög vel og beinir þeim eindregnu tilmæl-
um til Háskóla Islands, ríkisstjórnar og Alþingis, að
athugað verði hvernig kennslan verði aukin og endur-
skipulögð þannig, að hún fullnægi ströngustu kröfum
sem tækniháskólar erlendis gera á hverjum tíma til
fyrri hluta prófs í verkfræði og verði stefnt að því, að
stúdentar í verkfræði við Háskóla Islands geti lokið þar
námi. Jafnframt verði aðstaða rannsókna í náttúruvís-
indum aukin og baítt, og kannaðir möguleikar á að taka
upp kennslu til fyrri hluta í þessum fræðum.
Vill VFl mælast til, að það fái tækifæri til að vera
með í ráðum við endurskipulagninguna og lýsir þvi hér
með yfir, að það er reiðubúið til að veita aðstoð eftir
megni til að bæta og auka kennsluna í verkfræði við
Háskóla Islands, svo að fullnægt verði sem bezt þeim
kröfum, sem nútíma tækni og vísindalegar rannsóknir
krefjast".
Þetta er tillagan eins og hún er með þessari breytingu.
Skúli Guðmundsson:
Það er aðeins örstutt athugasemd. Meining okkar
fimmmenninganna með þvi að leggja fram þessa til-
lögu okkar var, að hún kæmi í stað annarra tillagna,
sem væru yfirgripsmeiri. Að hún yrði ályktun, eða alla-
vega kjarninn i ályktun ráðstefnunnar um þessi mál og
við færum ekki út í smáatriðin, eins og gert er í þessari
tillögu, sem fundarstjóri var að lesa upp. Ég veit ekki
hvort fundarmenn hafa skilið mig þannig áðan; fundar-
stjóri hefur að mér skilst ekki skilið mig þannig, en
ég vil óska eftir því, að þannig yrði litið á, að þessi
tillaga hefði vísað hinum frá, þannig að þær yrðu ekki
bornar undir atkvæði, þegar búið er að samþykkja hana.
Og úr því ég er kominn hér í ræðustól, þá vil ég fá að
nota sérstaklega tækifærið til að þakka prófessorunum
Finnboga og Leifi fyrir þau fallegu orð, sem þeir létu
falla til min fyrir þennan inngang, sem ég hafði með
tillögunni. Þakka ykkur fyrir.
Steiiigrímur Jónsson:
Já, ég leit svo á, að þessi tillaga útilokaði ekki hinar
tillögurnar. Nei, ég held það beri að skoða tillögu Skúla
Guðmundssonar o. fl. sem sjálfstæða tillögu. Þá vildi ég
bera það undir fundinn, hvort hann líti almennt svo á,
að með þessari tillögu, almennu tillögu, sem við höfum
samþykkt, sé þar með hinum tillögunum vísað frá. Ég
vildi leyfa mér að spyrjast fyrir um það og bera það
undir atkvæði, að þeir, sem vildu vísa þessum öðrum
tillögum frá og gera þetta að einni tillögu og vilja þá
samþykkja það að vísa hinum frá, að gera svo vel og
rétta upp hönd. Þökk fyrir. Er nokkur á móti? Það
eru þrír á móti. Það er samþykkt með yfirgnæfandi at-
kvæðafjölda að vísa þessum tillögum frá. Hins vegar
geri ég ráð fyrir, að þessar tillögur og þessar umræður,
sem hérna fara fram, verði birtar í einu lagi, þannig
að það sjáist greinargerðirnar og ástæðurnar fyrir gangi
málanna. Ég vil ekki orðlengja þetta, þvi að tillögurnar
verða ekki bornar hér upp.
Bolli Thoroildsen:
Prófessor Finnbogi sagði svolítið, sem mér likaði ekki.
Hann sagði, að það væru þvinganir í Danmörku, Noregi
og víðar, á því að menn fengju að læra. Sumir vilja, að
sem flesíir verði stúdentar, menntunarinnar vegna. En
þeir, sem hafa vilja og þrek, eiga þvingunarlaust að fá
að læra við háskóla vorn að mínum dómi. Ég veit, að
stúdentsprófseinkunnin er ekki óskeikull mælikvarði.
Steingrímur Jónsson:
Ég þakka fyrir. Þá er útrætt um þessi mál og þá er
komið að lokum þessarar fyrstu ráðstefnu okkar. Ég
vildi geta þess áður en ég lýk máli mínu, að hérna
frammi undir borðinu, þar sem fyrirlestrarnir eru, bækl-
ingar, sem prentaðir hafa verið, hefur Steingrímur Her-
mannsson komið með skýrslu frá Rannsóknaráði, sem
er stuðningur við þau sjónarmið, sem hann setti fram.
Félagsmenn og aðrir, sem hér eru, geta fengið þar ein-
tak af því, og kynnt sér þar með þetta mál. Þessi
skýrsla er ekki komin út, en er á leiðinni, og fundar-
menn geta þo fengið þetta núna.
Nú er klukkan þrjú, og bílarnir standa fyrir utan
við stúdentagarðinn gamla. Við getum farið í skoðana-
ferðir, við verðum að stytta þær. Við áttum að fara í
skoðanaferðir milli tvö og fjögur og það var skipt í
fjóra flokka, einn flokkurinn var Áburðarverksmiðjan
og Strengjasteypan, annar flokkurinn var Júpíter-fisk-
stöðin og Afurðasala Sambandsins, þriðji flokkurinn var
Fiskiðjuverið og Héðinn, fjórði flokkurinn var Mjólk-
urvinnslustöðin. Menn geta skipt sér niður á bílana, það