Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Blaðsíða 64
94
TlMAHIT VFl 1960
Björn Bergþórsson:
MJÖL, LYSI
1. Yfirlit um tæknilega þróun.
Framleiðsla fiskimjöls og fiskiolía hófst hér um 1911.
Voru Norðmenn brautryðjendur hér á landi, en þeir nutu
aftur góðs af reynslu Ameríkumanna í þessari iðngrein.
Vinnsluaðferðin er í grundvallaratriðum enn sú sama
og var á fyrstu árum þessa iðnaðar.
Þess má þó geta_ að fleytiker voru notuð til vinnslu
á iýsinu í fyrstu, en um 1930 var farið að nota skilvind-
ur i stað fleytikera, og var sú þróun komin langt á veg
um 1935.
Til þess að pressa vatn og olíu úr síldinni voru í fyrstu
notaðar dúkapressur, en strax á fyrstu árum þessa iðn-
aðar náðu skrúfupressur meiri vinsældum og hafa haldið
þeim síðan.
Hagnýting mjölefna í soðvatni hefur ekki aukizt
hröðum skrefum og veldur þar um fyrst og fremst hrá-
efnisskortur. Lýsi & Mjöl í Hafnarfirði varð fyrst (1953)
til að hagnýta allt mjölefni í soðvatni. Síðustu árin hef-
ur þeim verksmiðjum fjölgað ört, sem fullnýta hráefnið.
Um aðra framleiðslu verðmætra efna úr fiski, sem ekki
fer til manneldis, ér ekki að ræða.
2. Fjárfesting.
Upplýsingar um fjárfestingu í þessari iðngrein er erf-
itt að fá. Hér er valin sú leið að áætla endurkaupsverð
á árinu 1958, þar sem hún er talin nálgast mest hina
réttu tölu.
Hús, hráefnisgeymslur og tankar kr. 171 millj.
Vélar og önnur tæki — 279 —
Birgðir (kostnaðarverð meðalbirgða 1958) — 136
Samtals kr. 586 millj.
3. Stofnfjárstuðull.
Framleiðsluverðmætið við verksmiðjuvegg árið 1958
var 326.6 milljónir króna. Gjaldaliðir rekstrarreiknings
eru hér áætlaðir fyrir heildina í samræmi við upplýs-
ingar frá ákveðnum fyrirtækjum.
OG AIJKAEFNI
Rekstrarvörur (hráefni, umbúðir, olía, rafmagn o. fl.):
Erl. kostn.
þús. kr.
16600
Tollai' Innl. kostn.
þús. kr. þús. kr.
362 215569
Alls
þús. kr.
232531
Fyrning er hér reiknuð 3% af húsum, hráefnisgeymsl-
um og tönkum, en 8% af vélum og öðrum tækjum.
Fyrning samtals i þús. kr. = 27450
Stofnfjárstuðull verður því:
586 _ 586 _ g g
326.6 — (232.5 + 27.5) — 66.6
4. Afköst vinnueiningar.
Sú tala mannára, sem hér er reiknað með, er fengin á
þann hátt, að dagvinnustundum ársins — 2400 klst —
(samkvæmt upplýsingum frá Verkamannafélaginu Dags-
brún) er deilt upp i vinnustundaf jöldann. Vinnustunda-
fjöldinn fyrir heildina er áætlaður í samræmi við upp-
lýsingar frá einstökum fyrirtækjum. Fjöldi mannára
verður þannig 263.9 mannár.
Afköst vinnueiningar verða samkvæmt þessu:
5.
66.6
263.9
= 252 þús. kr.
Heimildir skortir til samanburðar á stuðlunum 3 og 4
við tölur úr tilsvarandi greinum erlendis.
6.
Nýting véla í þessari iðngrein er léleg. Má búast við,
að þróunin gangi fyrst og fremst í þá átt í framtiðinni
að bæta hana. Okkar aðalkeppinautur er Perú. Vegna
mun lengri veiðitíma er nýting véla þar mun betri en
hér. Líkleg leið til að bæta aðstöðu okkar í hinni hörðu
samkeppni er að auka geymslupláss hráefnis^ þegar
heppileg aðferð hefur fundizt til að varðveita það. Eru
menn vongóðir um, að geymsluefnin natriumnítrit og
formalín muni koma að góðum notum til að lengja
vinnslutíma verksmiðjanna. Veruleg stækkun verksmiðja
er ekki sennileg á næstunni.
Unnsteinn Stefánsson:
íslenzkar hafrannsóknir og
Inngangur.
Á síðari helmingi 19. aldar voru gerðir út fjölmargir
úthafsleiðangrar til norðurhafa, og jókst þá þekking
manna á eðli sjávar hröðum skrefum. 1 lok aldarinnar
voru straumkerfin við Island þekkt i aðalatriðum. Eig-
inlegar fiskirannsóknir hófust hér við land upp úr alda-
mótunum fyrir forgöngu dönsku ríkisstjórnarinnar og
í samráði við Alþjóða hafrannsóknaráðið, sem þá var
gildi þeirra fyrir þjóðarbúiö
nýstofnað. Danir framkvæmdu hér mikilsverðar byrj-
unarathuganir, en rannsóknir þeirra voru þó æði slitr-
óttar fram til ársins 1924. Stórvirkastur allra einstakl-
inga, sem unnu við fiskirannsóknir á þessum árum, var
dr. Bjarni Sæmundsson, og má segja, að hann hafi
lagt grundvöll að síðari tíma fiskirannsóknum hér við
land.
Árið 1931 réðst dr. Árni Friðriksson í þjónustu Fiski-