Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Qupperneq 60

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Qupperneq 60
90 TlMARIT VFI 1960 andi eftir árstíðum, því mjög mikill munur er á mjólk- urmagninu sumar og vetur. Ef tekið er meðaltal af breytingum þessum, reyndist starfsmannafjöldinn vera 53 konur, 160 karlar, eða samtals 213. Samkvæmt fram- anrituðu verða því afköst vinnueiningar: 295.591.050 — (244.144.467 + 3.177.838) 213 - 226 614 5. Erlendur samanburður: Ekki liggja fyrir upplýsingar erlendis frá til saman- burðar við ofangreinda stuðla. 6. Tæknilegar umbætur: Síðan 1958 má segja að allt að því bylting hafi orðið í mjólkuriðnaði hér á landi. Er þar fyrst að nefna Mjólk- urbú Flóamanna, sem byggt hefur verið upp frá grunni og búið nýtízku vélakosti. Þá hafa risið upp nýjar mjólk- urstöðvar á Ólafsfirði, Hvammstanga, Egilsstöðum, Nes- kaupsstað og Höfn í Hornafirði. Ennfremur munu á þessu ári og næstu árum fara fram gagngerar breyt- ingar og endurbyggingar á Mjólkurstöðinni í Reykja- vik, mjólkurbúinu í Borgarnesi og á Blönduósi. Varðandi tæknilegar nýjungar, skal það eitt sagt, að þær eru frekar hægfara, en þó stöðugar og mun íslenzk- ur mjólkuriðnaður í framtiðinni hagnýta sér þær er- lendar nýjungar, er að gagni megi koma við íslenzkar aðstæður. Páll Lúðvíksson: K JÓTIÐN AÐIJR 1. Sögulegt yfirlit og tæknileg þrómi. Vélræn framleiðsla kjötvara hefst hér á landi um 1920. Var sú framleiðsla hafin af fyrirtækjum, sem jafnframt framleiðslunni höfðu sölu á framleiðsluvör- um sínum í eigin sölubúðum og til annara aðila. Er það fyrirkomulag ríkjandi enn í dag, því að ennþá er ekkert sérfyrirtæki eða verksmiðja starfandi, sem rekur kjöt- vinnslu eingöngu þrátt fyrir tilkomu nýrra fyrirtækja í þessari grein. Má segja, að flest fyrirtæki, sem hafa á hendi sölu og dreifingu kjötvara, reki einnig kjötiðnað í misstórum stíl. Vegna þess hve iðnaður þessi er ná- tengdur smásölu matvæla er næstum ókleift að fá ná- kvæmar upplýsingar og þá einkum tölur um framleiðslu og fjárfestingu í iðnaðinum. Kjötiðnaður var lögfestur sem iðngrein 1951. Stétt- arfélag kjötiðnaðarmanna var stofnað 1947 og eru fé- lagsmenn nú um 60 talsins á öllu landinu, en þó flestir í Reykjavík. Auk fagmanna starfar við iðngrein þessa mikill fjöldi ófaglærðra starfsmanna. Framleiðsluaðferðir í þessari iðngrein hafa mjög litið breytzt frá því vélræn framleiðsla hófst hér, svo að varla er um tæknilega þróun að ræða, frekar tæknilegar um- bætur. Gerðir framleiðsluvéla hafa engum stórbreytingum tekið á þessu tímabili, en komið hafa fram stærri og fullkomnari vélar. Aðalefni til kjötiðnaðar eru innlend, en einnig eru notuð erlend aukaefni. Innlendu efnin eru kindakjöt, nautakjöt og svínakjöt og auk þeirra mjólk- urduft og kindagarnir. Erlendu efnin eru einkum mjöl, allt krydd, nautagarnir, svínagarnir, og garnir úr gerfi- efnum. Er þetta að mestu óbreytt frá því vélræn fram- leiðsla hófst hér, en fjölbreytni framleiðsluvara hefur stöðugt aukizt á þessu tímabili. 2. Fjárfesting. Af ástæðum, sem áður hafa verið nefndar, er mjög erfitt að fá upplýsingar um fjárfestingu í þessari iðn- grein og hefur reynzrt ókleift að fá upplýsingar um heild- arfjárfestingu í iðngreininni. Hefur því verið reynt að fá upplýsingar um fjárfest- ingu eins fyrirtækis, en það gefur því miður ekki alveg rétta mynd af fjárfestingu iðnaðarins, vegna þess að jafnframt framleiðslunni selur fyrirtækið framleiðslu- vörur sínar bæði í eigin verzlun ásamt aðkeyptum vör- um og til annara aðila í heildsölu, og er iðnaður og sala ekki aðskilin tölulega. Þá eru hjá fyrirtækinu framleidd- ar vörutegundir, sem ekki geta talizt kjötvörur og er framleiðsla þeirra heldur ekki aðgreind frá öðru. Tölur þær, sem hér fara á eftir, gilda því um fyrirtæki, sem jafnframt framleiðslu selur sínar vörur og annara og starfar í leiguhúsnæði. Fjárfesting í árslok 1958: 1. Húsakostur 950.000.00 2. Aðalvélar 150.000.00 3. Aðrar vélar og áhöld 440.000.00 4. Innréttingar 860.000.00 5. Bifreiðir 180.000.00 6. Birgðir 750.000.000 Kr. 3.330.000.00 Hér skal tekið fram, að liður 2 er tengdur kjötvinnslu eingöngu og liður 6 að mestu tengdur smásöluverzlun, en aðrir liðir skiptast í ókunnum hlutföllum milli vinnslu- deildar og verzlunar. 3. Stofnf járstuðull. Söluverðmæti allra vara fyrirtækisins ásamt sölu smá- söluverzlunar var um 10,2 millj. kr. á árinu. Verð rekstrarvöru, viðhaldsvöru og þjónustu var sem hér segir: Rekstrarvara 8.061.000.00 Þjónusta vegna reksturs 18.000.00 Viðhaldsþjónusta og viðhaldsvörur 113.000.00 Alls. kr. 8.192.000.00 (brunabótamat) (áætl. kostnaðarverð) (kostn.verð meðalb.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.