Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Page 61
TlMARIT VFl 1960
91
Fyrning á framleiðsluvélum, áhöldum, innréttingum
og bifreiðum er frá 8—20% eftir viðkomandi endingar-
tíma og fyrning húsnæðis er áætluð 3%.
Fyming alls er því kr. 290.000.00.
Samkvæmt þessu verður stofnfjárstuðull
3.330
10.200 — (8192 + 290) ' 1,92
4. Afköst vinnueiningar.
Við framleiðslu kjötvara störfuðu allt árið 7 fastir
starfsmenn, 5 karlar og 2 konur, og eru 3 karlar af þess-
um hóp faglærðir. Fjöldi starfsmanna við framleiðslu
og smásölu var hins vegar 20, svo að afköst vinnuein-
ingar verður
^200 --_ (8192 + 290) = 86.000.00 kr
20
Vinnan var að mestu leyti dagvinna, en eftirvinna
varð óhjákvæmilega einhver á mestu annatímum ársins.
5. Erlendur sanianburður.
Ekki hefur tekizt að fá neinar erlendar upplýsingar
um liði þá, sem ákveða framangreinda stuðla.
6. Framtíðarhorfur.
Ekki er að vænta verulegra breytinga á framleiðslu-
aðferðum í náinni framtíð, og ekkert bendir til þess, að
verulegar breytingar verði á aðalframleiðsluvélum.
Breytingar á hráefni eru heldur ekki hugsanlegar og af
þessu leiðir, að ekki verða miklar breytingar á vörum
þeim, sem framleiddar verða.
Fjölbreytni framleiðsluvara mun aukast með aukinni
iðnvæðingu í þessari grein og vafalaust verður þróunin
sú, að hér rísa upp sérfyrirtæki á sviði kjötiðnaðar, sem
þá munu hagnýta sér nýjustu tækni við vinnsluna.
Framleiðsluaukning verður væntanlega í réttu hlut-
falli við fjölgun landsbúa og þó ef til vill meiri, ef um
offramleiðslu kjöts verður að ræða. Vélakostur sá, sem
fyrirtæki á þessu sviði ráða yfir, mun geta mætt nokk-
urri framleiðsluaukningu, þar sem nýting hans er víða
langt innan við 100%, t. d. er nýting vélakosts i fyrir-
tæki því, sem hér er vísað í, um 50% af raunverulegum
vinnutíma.
Ólafur Gunnarsson og
Helgi G. Þórðarson:
HRAÐFRYSTIIMG Á FISKI
1. Yfirlit um tæknilega þróun.
Hraðfrysting á fiski hefst hér á landi árið 1930 með
því að fryst eru 1273 tonn. Var fiskurinn pækilfrystur,
sem kallað er, settur umbúðalaus ofan í kælilöginn.
Nokkru fyrir síðustu heimsstyrjöld kom svo fram sú
aðferð, sem nú er notuð, þ. e. fiskurinn var settur milli
kældra platna. Flest öll tæki, sem notuð eru nú, eru
byggð hérlendis. Hraðfrysting á fiski hefur vaxið hröð-
um skrefum síðan, einkum síðustu styrjaldarárin og síð-
an. Árið 1959 var alls hraðfryst á Islandi 83.000 tonn af
fiskflökum og mun heildarverðmæti með verðuppbótum
vera ca. 800 milljónir. Án uppbóta 445 milljónir. Láta
mun nærri hér að um ca. 40% af öllu útflutningsverð-
mæti Islendinga sé að ræða.
Allmiklar framfarir hafa einnig orðið í skipulagningu
vinnunnar. Fyrst stóðu menn við laus borð og var fisk-
urinn borinn að og frá. Nú eru fræibönd og önnur nú-
tíma flutningatæki notuð í stórum stíl. Einnig eru komn-
ar afkastamiklar flökunarvélar. ÖIl vinna I hraðfrysti-
húsunum er greidd á tímakaupsgrundvelli.
2. Fjárfcsting.
Um heildarfjárfestingu í þessari grein er ekki kunn-
ugt. Þær upplýsingar, sem fara hér á eftir, eru frá einu
frystihúsi á Vesturlandi. Ársframleiðsla þess var 1959
900 tonn af frystum fiski.
Ef athuguð er framleiðsla hraðfrystihúsa innan S. H.
1959, má álíta að hér sé um meðal hús að ræða.
Fjöldi húsa eftir framleiðslumagni og landshlutum
Framleiðslumagn
Landshluti 0-500 tn. 500-1000 1000-2000 2000-3000 >
Suðurland 6
Vesturland 4
Norðurland 4
Austurland 3
10 4
6 4
1 1
1
5 4
1
54
17 18 9
5 5
Fjárfesting (árslok 1959):
Húsakostur
Vélar og tæki
Skrifstofuáhöld og
bifreiðar
Birgðir í fullunnum vörum
2.825.000 (brunabótamat)
1.393.000 — “ —
250.000 (áætl. endur-
kaupsverð)
1.770.000
Kr. 6.238.000
3. Stofnfjárstuðull.
Framleiðsluverðmæti frystihússins ex factory var árið
1959 15.2 millj. Nýting afkastagetu var aðeins um 30%
miðað við 48 klst. vinnuviku. Aðalvinnslan fer fram
okt.—maí.
Verð rekstrarvöru^ viðhaldsvöru og þjónustu er: