Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1960, Síða 68
98
TlMARIT VFl 1960
ugt verið unnið að ýmsum umbótum á tækjum og
aðferðum, sem notuð eru í slíkum verksmiðjum. Sem
dæmi um slíkt má nefna nýjar gerðir tækja til vetnis-
framleiðslu með rafgreiningu og nýjar gerðir afriðla.
Einnig hefur sjálfvirkni í verksmiðjum tekið miklum
framförum á undanförnum árum, og væri nú í dag hægt
að koma slíku við í miklu stærri stíl en hægt var, þegar
verksmiðjan var byggð, og spara með því vinnuafl.
Gera má ráð fyrir því, að þegar afköst Áburðarverk-
smiðjunnar á köfnunarefnissamböndum verða aukin,
verði allar slíkar nýjungar nýttar eins mikið og hag-
kvæmt þykir. Um aukna fjölbreytni á framleiðsluvörum
verksmiðjunnar hefur verið rætt og þá helzt ráðgert að
fara út í framleiðslu alhliða áburðar, þ. e. köfnunarefnis,
fosfór og kalíáburðar. Engar endanlegar ákvarðanir í
þeim málum hafa hins vegar verið teknar. Það er
ljóst, að aukin fjölbreyt'ni á framleiðsluvörum verksmiðj-
unnar mundi hafa hagstæð áhrif á þá stuðla, sem reikn-
aðir voru út hér að framan, sérstaklega afköst vinnu-
einingarinnar. Þannig er áætlað, að yrði t. d. stofn-
kostnaður slíkrar viðbótar um 50 millj. kr., yrði stofn-
fjárstuðull heildarinnar ca. 6,3 fyrsta árið, sem slík við-
bót væri starfrækt. Afköst vinnueiningarinnar yrðu hins
vegar ca. 0,43 millj. kr.
Dr. Jón E. Vestdal:
FRAIVILEIÐSLA SEMEIMTS
1. Framleiðsla sements hófst á miðju ári 1958, og er
því enn eigi um tæknilega þróun að ræða á því sviði
hér á landi.
2. Fjárfesting í þessari atvinnugrein var um áramót-
in 1958—59 alls 161 milljón, er sundurliðast þannig:
Byggingar og önnur mannvirki kr. 73,9 millj.
Vélar og tæki til framleiðslu — 74,7 —
Bílar og önnur áhöld — 3,4 —
Birgðir hráefna og framl.vara — 9,0 —
3. Verð framleiðsluvöru verður að áætla, þar sem verð
hennar frá verksmiðju er misjafnt eftir því, hvar á land-
inu hún er notuð og enn hefir ekki fengizt reynsla
fyrir því, hve mikið er notað í hverjum landshluta. Á
næsta ári ættu að verða til öruggar tölur í þessu sam-
bandi.
Áætlað verð frá verksmiðju á árlegri framleiðslu er
66,0 millj.
Verð rekstrarvöru, viðhaldsvöru og þjónustu er
sundurliðað i eftirfarandi töflu:
Erl. Tollar Innl. Alls
þús.kr. þús. þús. þús.
Rekstrarvara (skeljasandur,
gips, umb., olía, rafm., ýmisi.) 11.704 19 6.600 18.323
Viðhaldsvörur, (varahlutir) 1.093 148 914 2.155
Þjónusta tengd rekstri 100 25 125
Þjónusta tengd viðhaldi 100 100
Alls 12.897 167 7.639 20.703
(Yfirfærslugjaldið, 55%, er alls staðar innifalið í inni.
kostnaði).
Raunveruleg verðmætisrýrnun fjármuna þeirra á
hverju ári, sem bundnir eru í verksmiðjunni til fram-
leiðslu sements, verður að teljast fremur lág, því af-
kastagetan helzt óbreytt áratugum saman, ef verksmiðj-
unni er vel haldið við. Þykir þvi ekki ósanngjarnt að
áætla fyrningu 3% á ári á vélum og mannvirkjum, eða
kr. 4,6 millj.
Samkvæmt ofanrituðu er stofnfjárstuðullinn:
161
66,0 — (20,7 + 4,6)
4. Starfsmannafjöldi sex vetrarmánuðina nóv.—apríl
er nokkru lægri en sumarmánuðina, maí—okt. Stafar
það af tvennu:
a) Líparit er sprengt, malað og flutt til verksmiðjunn-
ar að sumarlagi, og fellur sú starfsemi algjörlega nið-
ur á veturna.
b) Afhending sements frá verksmiðjunni er miklu meiri
að sumrinu en að vetrarlagi.
Starfsmannahald verður því þannig:
Mánuðina nóv.—apríl 79 karlar 7 konur
maí—okt. 107 — 7 —
Ársmenn 100.
Afköst vinnueininga verður skv. ofanrituðu:
66,0 — (20,7 + 4,6)
100
0.407 millj. kr.
5. Eigi er unnt sem stendur að gera samanburð við
erlendar verksmiðjur á stofnf járstuðli og afköstum
vinnueininga.
6. Verksmiðja sú, sem hér er um að ræða, er nýtek-
in til starfa, og var hún þannig gerð, að allar tæknilegar
nýjungar voru hagnýttar og reynt að spara vinnuafl eftir
megni. Sem stendur er því ekki útlit fyrir tæknilegar um-
bætur eða afkastaaukningu á næstunni,
7. Skýrsla þessi byggist að verulegu leyti á áætlun-
um, enda hefur verksmiðjan ekki enn verið starfrækt
heilt ár, en stuðzt hefur verið við rekstursreikninga eftir
föngum. Varla mun þó ónákvæmni sú, sem af þessu leið-
ir, raska lokaniðurstöðum verulega. En þess er vinsam-
legast vænzt, að þetta sé haft í huga.