Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1901, Blaðsíða 86
innlendu skip veitt mörgum manni atvinnu siðustu árin og
flutt mikla björg á land utan úr hafi, þaðan sem ómögulegt
var að sækja fisk með opnum bátum.
Á Suður- og Yesturlandi eru flest skipin höfð til
þorskveiða, og við Faxaflóa ganga að eins tvö skip tíma
af vorinu til kákarlaveiða. En á Eyafirði og Siglufirði
hafa flest skipin stundað hákarlaveiði, en nú er farið að
senda fleiri skip þar til þorskveiða.
Það tæki alt of mikið rúm í almanakinu, ef setja ætti
skýrslu um afla á öllum þilskipum landsins; nær því
skýrslan að eins yfir 20—25 skip við Faxaflóa um tvö ár;
af því geta menn fengið talsverða leiðbeiningu um, hvernig
veiðunum er hagað og hve mikið þær gefa af sér. —
Af þremur öftustu dálkunum sést, hve margir fiskar koma
á skip, hve margir fiskar fara í skippundið og hve mörg
skippund koma að meðaltali á mann; framar sést hlutfall
milli málsfisks, smáfisks og ýsu; þar eftir má reikna, hvers
virði aflinn er. —
Árið 1899 var skippundið af málsfiski (1S”) horgað
með 63 kr., smáfiskur með 00 kr. og ýsa með 40 krón.;
varð því mikill ágóði á þeim skipum, sem mest öfluðu,
en gróðinn lenti ekki hjá skipseigendum einum, sem rétt
og sanngjarnt var, en skiftist af flestum skipunum til
helminga milli skipseigenda og báseta, sem flestir voru upp
á hálfdrætti; það er: að hver háseti fær helming af öllum
fiski, sem hann dregur, en fyrir hinn helminginn fæðir
skipseigandi alla skipverja, launar skipstjóra, stýrimanni og
matsveini, og leggur uuk þess til veiðarfæri og skip með
öllum úthúnaði m. m.
Með þessu háa fiskverði fengu fisknustu hásetarnir á
afla-hæstu skipunum 6—800 kr. fyrir afla sinn um 6 mán-
uði, og skipstjórinn yfir 1500 kr.; þetta þætti góð atvinna,
ef frá henni væri sagt í fréttabréfum frá Ameriku.
I skýrslunni um afla á færeyskum skipum árið 1899
eru talin 55 skip. Að tilfæra afla á hverju ejnstöku skipi
hefði eytt of miklu rúmi; er því skipunum, sem fengu
slíkan afla, skift í flokka, og má sjá af skýrslunni, þótt
stutt sé, hvernig Færeyingar taka afla sinn og hvar, og
hver arður er af fiskiveiðunum. Þeir hafa fengið meira en
(74)