Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1902, Blaðsíða 24
hann á hægri hönd Júpíter um 20 stig frá honum. Satárnus
heldur sig í nánd við takmörkin á millnm Skotmannsmerkis og
Steingeitarmerkis, og reikar í vesturátt meðal stjarna þessara
merkja þangað til um lok Septembermánaðar, en úr því heldur
hann austur á bóginn.
SÝN TUNGLSINS I REYKJAVÍE.
I þriðja dálki hvers mánaðar er tilfært, hvað klukkan sje,
þegar tunglið gengur yflr hádegisbauginn 1 suðri. I 4. dálki er
auk þess sýnt, hverja daga tunglið er hæst á lopti og lægst á
lopti. Af skýringum þessara dálka má ráða, hvenær tunglið kemur
upp og gengur undir, á þann hátt sem hjer segir:
{>á daga, er tunglið er hæst á lopti, kemur það upp í NA.
(landnorðri), 9 stundum fyrir hádegisbaugsgang þess, kemst í há-
degisbauginum 45 stig upp fyrir sjóndeildarhring Reykjavíkur og
gengur undir í NV. (útnorðri), 9 stnndum eptir hádegisbaugs-
ganginn. þá daga, cr tunglið er lægst á lopti, kemur það upp í
SA. (landsuðri), 3 stundum fyrir hádegisbaugsganginn, kemst í
hádegisbauginum ein 6 stig upp fyrir sjóndeildarhring Reykjavíkur
og gengur undir í SV. (útsuðri), 3 stundum eptir hádegisbaugsgang-
inn. Viku fyrir og viku eptir hvern þessara daga kemur það upp í
austri, 6 stundum fyrir hádegisbaugsganginn, kemst í hádegis-
bauginum 26 stig upp fyrir sjóndeildarliring Reykjavíkur og geng-
ur undir 6 stundum eptir hádegisbaugsganginn. Menn munu því
geta ætlazt á um það, hvenær það kemur upp og gengur undir
þá dagana, sem á milli liggja.
UM SUNNUDAGSBÓKSTAFINN.
Á 4. bls. f þessu almanaki stendur, að sunnudagsbókstafur
ársins sje E. Hvað þýðir það?
Menn hugsa sjer hvern af hinum 365 dögum ársins settan
samband við einhvern af hinum fyrstu sjö stöfum stafrófinu,
áframhaldandi röð koll af kolli, t. d.:
1. Janúar a 8. Janúar a
2. — b 9. — b
3. — c 10. — c
4. — d 11. — d
5. — e 12. — e
6. — f 13. f
7. — g 14. — g
o. s. frv. allt fram að 31. December, sem fær sama dagstaf eins
og 1. Janúar sem sje a. Menn geta þvi í eitt skipti fyrir öll
búið sjer til töflu yfir alla (365) daga ársins með samsvarandi