Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1922, Síða 5
5. Kristján Friðrekur Vilhjálmur Valdemar GÚstav, fæddur
4. Marts 1887.
6. Dagmar Lovísa Elísabet, fædd 23. Maí 1890.
Föðursystkini konungs:
1. Alexandra Karólína María Karlotta Lovísa Júlía, fædd
1. Decbr. 1844, gipt 10. Marts 1863 prinsi Albert Játvarði,
sem 1901 varð konungur Breta og Ira og keisari Indlands
(Játvarður VII.); ekkja 6. Mai 1910.
2. María Feódóróvna (María Sofía Friðrika Dagmar),
fædd 26. Nóvbr. 1847, gipt 9. Nóvbr. 1866 Alexander, sem
1881 varð keisari á Rússlandi (Alexander III.); ekkja 1.
Nóvember 1894.
3. pyri Amalía Karólína Karlotta, Anna, fædd 29. Septbr. 1853,
gipt 21. Decbr. 1878 Ernst Ágúst Vilhjálmi Adólfi Georg
Friðreki, hertoga af Kumbralandi og Brúnsvík-Liineborg, f.
21. Septbr. 1845.
4. Valdemar, fæddur 27. Októbr. 1858; honum gipt 22.
Október 1885: María Amalía Fransiska Helena, prinsessa
af .Orléans, f. 13. Jan. 1865, dáin 4. Dec. 1909. Böm þeirra:
a. Aki (sjá hjer á eptir). b. Axel Kristján Georg, fæddur
12. Ágúst 1888; honum gipt 22. Maí 1919 Margrjet Sofia
Lovísa Ingibjörg, prinsessa af Svíþjóð, f. 25. Júní 1899. Sonur
þeirra Georg Valdemar Karl Axel f. 16. Apríl 1920.
c. Eiríkur Friðrekur Kristján Alexander, fæddur 8. Nóv.
1890. d. Viggó Kristján Adólfur Georg, fæddur 25. Dec. 1893.
e. Margrjet Fransiska Lovísa María Heiena, fædd 17. Sept. 1895.
t
Akí Kristján Alexander Róbert, fæddur 10. Júní 1887, prins
og greifi af Rósenborg; honum gipt 17. Janúar 1914 greifadóttir
Matthildur Calví di Bergóló, prinsessa og greifaynja af
Rósenborg, fædd 17. Sept 1885.
Samkvæmt lögum um ákvörðun tímans 16. Nóv. 1907 skal hvar-
vetna á Islandi telja eyktir eptir meðalsóltíma á 15. lengdarstigi
fyrir vestan Greenwich. I almanaki jiessu eru jwí allar stundir
taldar eptir jiessum svonefnda íslenzka meðaltima, og eru
þær 28 minútum hærri en eptir miðtíma Reykjavíkur, sem þangað
til 1908 hefir verið fylgt í þessu almanaki.
Hver dagur er talinn frá miðnætti til miðnættis, svo að þær 12
stundir, sem eru frá miðnætti til hádegis, eru táknaðar með „f. m.”
(fyrir miðdag), en hinar 12 frá hádegi til miðnættis með „e. m.” (eptir
miðdag).
1 þriðja dálki hverrar mánaðartöflu er töluröð, sem sýnir, hverja
stund og mínútu tungl er f hádegisstað 1 Reykjavík. Um þetta má
enn frekar sjá í greininni „Gangur tungls og sólar á Islandi".