Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.1949, Qupperneq 18

Freyr - 01.04.1949, Qupperneq 18
116 FREYR ist kúnni þá fara dagversnandi, og var slátrað fyrir miðjan apríl. Lungun voru strax send til rannsóknar, en ekkert þótti athugavert við önnur líffæri. Lungnalýsing: Þau eru mjög stór og þung, vega 10.8 kg., í heild ljósrauðleit, með nokkuð venjulegum lungnalit. Misstórir flekkir með ör- smáum loftbólum eru á víð og dreif um yfir- borð lungnanna. Þar sem loftbólurnar eru, er liturinn ljósgulleitur, en dekkri hlutar á milli. Á skurðfleti sést þessi litarmunur ekki greini- lega. Hvergi finnst í lungunum afmörkuð ígerð, eða neinskonar bris eða hnútar. í lungnapípunum finnst talsvert af glæru, þykku slími, en ekkert sést á slímhúðinni. Lungnaeitlarnir eru greinilega mun stærri en vant er, og mikið af loftbólum innan í þeim undir yfirborðsþekjunni. B. Úr Gnúpverjahreppi: Kýrin hafði átt sex kálfa, alltaf verið hraust, fóðrazt vel, mjólkað sæmilega og haldið nokkuð nytinni. Eftir nýjár 1948 hætti hún að éta fulla gjöf. Heyin voru slæm, og bóndinn gaf henni nú betra hey og fóðurbæti, og virtist hún hressast í nokkrar vikur. í febrúar fór hún aftur að missa lyst og heldur að leggja af, þrátt fyrir gott hey og mikla mélgjöf. Jafnframt fór að bera á stöðugt vaxandi mæði, svo- litlu hóstakjöltri, og fyrir kom, að slím virt- ist í hálsi hennar. Kýrin geltist nokkuð, aðallega í apríl, og hrapaði nytin að mestu úr kúnni á þremur vikum. Jafnframt hríð- horaðist hún og var því slátrað snemma í maí. Ekki bar á neinni skemmd nema í lungum, en þau voru strax send til rannsóknar. Lung- un voru mjög stór og vógu 10 kg. Þau voru að útliti mjög lík lungunum, sem fyrr er lýst. Lungnaeitlarnir voru greinilega stærri en vant er, og mikið um loftbólur innan í þeim. Dálítið af seigu slími var í lungnapípum, en ekkert fannst athugavert við slímhúðina. C. Úr Álftaneshreppi: Kýrin var 6—7 vetra, góð og hraust mjólkurkýr. Seint í marz 1948 kom í hana ólyst. Fyrst hætti hún alveg að éta 1—2 sólarhringa, náði sér aftur, en síðan óx ólystin smátt og smátt. Fóðurbætinn át hún þó alltaf. Jafnframt fékk hún mæði, sem fór hægt vaxandi. Við öndunina belgdist kviðurinn annað slagið upp, og var öndunin þung og erfið, en ekki tíð. Holdin smá-dróguzt af kúnni á tveim mánuðum, og mjólkin minnkaði í sam- læmi við minnkandi át, eða úr 10 mörk- um niður í 4. Þegar kýrin lá, stundi hún annað slag- ið, um leið og hún belgdist upp, en stunið var ekki áberandi. Veikur hósti kom ein- staka sinnum, líkt og hún þyrfti að hreinsa hálsinn, en tækist það varla. Aldrei sást neitt koma fram úr henni. Kúnni var slátrað síðast í maí, þar eð bóndinn hélt, að hún myndi ekki þola um- skiptin, er hún væri sett út, en auk þess lagði hún ört af. Við slátrun komu í ljós óvenjulega útþanin lungu, en annað sást ekki á líffærunum. Lung- un voru 8.66 kg. á þyngd. Vefurinn var víða ljósgulur, en nokkuð dekkri á milli. Mikið var um loftbólur, sem var óreglulega dreift um yf- irborðið, en sáust verr á skurðfleti. Eitlar voru stórir og talsvert um smá loftbólur innan um þá. í lungnapípum var dálítið af þykku slími, að- allega neðst i barka. Slímhúðin í pípunum virt- ist þó eðlileg. D. Úr Andakíl: Kýrin var 6 ára, hafði átt 4 kálfa, þrif- izt vel og mjólkað frekar vel. Snemma í apríl 1948 fór hún að leggja af hægt og

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.