Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 7
REYKJAVÍK, OKTÓBER 1958
FÉLAGSTÍÐINDI
STÉTTARSAMBANDS BÆNDA
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958
Árið 1958 var aðalfundur Stéttarsambands
bænda settur í Bifröst í Borgarfirði miðviku-
daginn 3. september kl. 10.30. Formaður sam-
bandsins, Sverrir Gíslason í Hvammi, setti
fundinn og bauð menn velkomna til fundar-
starfa.
Formaður nefndi til fundarstjóra Jón Sig-
urðsson á Reynistað. Tók hann þá við fund-
arstjórn.
Fundarstjóri hóf þá störf sín með því að
leggja fram þessa tillögu frá stjórn sambands-
ins:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda,
haldinn í Bifröst 3. og 4. sept. 1958, lýsir
yfir fullum stuðningi við ákvörðunina um
12 mílna fiskveiðalandhelgi íslands og
skorar á stjórnarvöldin, meðal annars
vegna atburða síðustu daga, að halda á
þessu máli með gætni og fullri einurð,"
Tillagan var samþykkt í einu hljóði.
Fundarstjóri kvaddi síðan til varafundar-
stjóra Sigurð Snorrason á Gilsbakka, en til
fundarritara séra Gísla Brynjólfsson og Guðm.
Inga Kristjánsson.
Á fundinum voru mættir þessir fulltrúar:
Úr Gullbringusýslu:
Erlendur Magnússon, Kálfatjörn.
Einar Halldórsson, Setbergi.
Kjósarsýslu:
Ólafur Bjarnason, Brautarholti,
Einar Ólafsson, Lækjarhvammi.
Borgarf jarðarsýslu:
Eyjólfur Sigurðsson, Fiskilæk,
Þórir Steinþórsson, Reykholti,