Freyr - 01.10.1958, Qupperneq 23
FRE YR
319
Skemma og smiðja frá 1908.
Næsti nágranni við nýja verkfærahúsið
var sýning áhaldanna, sem notuð voru
fyrir 50 árum. Þessi deild var ein vinsæl-
asta deild sýningarinnar og alltaf full af
fólki. Skúli Helgason safnvörður sá um
þessa deild og gerði hana vinsæla. Skúli
Helgason hafði sjálfur hlaðið þarna upp
afl í smiðju og gengið frá öllu eins og í
gamla daga. Þarna var mikill fjöldi alls-
konar áhalda frá aldamóta tímanum. Yngra
fólkið var þyrst í þennan fróðleik og þeir
eldri mættu þarna gömlum kunningjum.
Landnám ríkisins.
Landnám ríkisins sýndi líkan af tveimur
nýtízku nýbýlum, sem margir höfðu gaman
af að skoða. Hér var mikill fróðleikur í töfl-
um og línuritum um nýbýlastofnanir og bú-
skap á þeim. Alls munu hafa verið stofnuð
115 nýbýli á sambandssvæðinu.
Heimilisiðnaðarsýningin.
Á henni var margt fagurra muna og sann-
ar það, að fólk býr til margt fagurra hluta
í frístundum. Mest var þarna af allskonar
útsaumi, hannyrðum og vefnaði. Mikla at-
hygli vöktu þarna heimasmíðuð tæki eins
og spunavél þeirra Gests og Kristjáns í
Villingaholti, vefstóll þeirra Sigurjóns og
Gests í Forsæti og spunarokkur fundinn
upp af Sigurjóni í Forsæti.
Þessi deild var mjög vinsæl og mikið
skoðuð af sýningargestum. Frú Ólöf Sig-
urðardóttir á Selfossi veitti henni forstöðu.
Sýningar iðnfyrirtækja.
Mörg verzlunar-, iðnaðar- og framleiðslu-
fyrirtæki sýndu þarna vörur sínar. Slátur-
félag Suðurlands sýndi þarna sínar glæsi-
legu vörur í stóru kæliborði og höfðu sumir
sýningargestir orð á því, að þeir yrðu svang-
ir af að horfa á þetta allt.
Mjólkurbú Flóamanna sýndi allskonar
mjólkurvörur og sælgæti unnið úr mjólk,
osta af ótal gerðum o. s. frv. Það sýndi líka
líkan af hinu glæsilega nýja mólkurbúi,
sem er langt komið að byggja.
Hér voru einnig töflur yfir magn mjólkur
og mjólkurvara síðan búið tók til starfa.
Frá alifuglasýningunni.
Iðnaðardeild SÍS hafði stóra sýningu á
framleiðslu sinni. Gefjun sýndi dúka og föt,
Iðunn skinnavörur og skó og Hekla vinnu-
föt o. s. frv.
Rafha, Hafnarfirði, sýndi rafmagnstæki.
Plastiðjan, Eyrarbakka, sýndi einangr-
unarefni.
Kaupfélag Árnesinga sýndi eldhússinn-
réttingu og hurðir, útidyra og innan húss.
Úti sýndi K. Á. jeppayfirbyggingu, heyvagn
og súgþurrkunarblásara o. fl.
Efnagerð Selfoss sýndi sótthreinsunar-
vökva.
Goðaborg h.f. sýndi byssur og ýmsar smá-
vörur.
Kosangas h.f. sýndi margskonar tæki til
notkunar við Kosangas.
Steingerð h.f., Hveragerði sýndi sínar
vörur úti, steypta steina af mörgum gerð-
um, hellur og rör úr steini.
Búvélasýningin.
Eftirtalin fyrirtæki: Véladeild SÍS, Drátt-
arvélar h.f., Glóbus h.f., Bergur Lárusson,
Hamar h.f., Everest Trading Company og
Keilir h.f., sýndu landbúnaðarvélar sunnan
við húsið og á túninu. Sýndu þessi fyrir-
tæki það sem þau hafa á boðstólum af vél-