Freyr - 01.10.1958, Síða 44
340
FRE YR
Þyngdarbreytingar á lömbum.
I Bretlandi var fyrir skömmu gerð athugun á þyngdar-
breytingum á lömbum af Merinókyni fyrstu 36 klst. eftir
fæðinguna. I ljós kom, að lömbin léttust um 260 gr. við
að þorrna.
Áhrif þess aff rýja þrisvar.
I Þýzkalandi hefur verið gerð athugun á því hvaða
áhrif bað mundi hafa, að rýja sauðfé þrisvar á ári. At-
hugun var gerð á 180 lömbum. Þeim var skipt í 2 hópa.
Annar hópurinn var rúinn í desember, maí og september,
en hinn í marz og september. Þetta gaf lítinn mun í
ullarmagni, en þó var ögn meiri ull af þeim lömbum, sem
klippt voru þrisvar.
Bretar flytja út búvélar fyrir 5 milljarffa
króna á þessu ári.
Framleiðslu búvéla hefur mjög aukizt á Bretlandi á
síðari árum, og er nú orðin að stóriðnaði, sem er veiga-
mikill þáttur í ernahagslífi þess lands. Fáar þjóðir hafa
vélvætt landbúnað sinn meir en Bretar. Auk þess sem
Bretar eru sjálfum sér nógir um búvélar, flytja þeir
mikið út af þeim. Einkum hafa brezkar dráttarvélar getið
sér gott orð á heimsmarkaðnum.
Heildarútflutningur á dráttarvélum nam 115.000 vélum
árið 1957 og er það nýtt met. Þetta er um 50% meira
en aðalkeppinautar Breta, Amerikumenn og Þjóðverjar,
fluttu út samanlagt á því ári.
Nautgripasýningar
voru í sumar haldnar á Vesturlandi, á svæðinu frá
Hvítá í Borgarfirði að Hrútafjarðará. Stóðu þær yfir í
sex vikur í júní cg júlí. A svæðinu voru sýndar í 23 félög-
um 1115 kýr og 35 naut, eða 1150 nautgripir alls. Af
kúnum hlutu 53 I. verðl., 180 II. verðl., 332 III. verðl.
og 550 engin. Af nautunum hlaut eitt I. verðl., 23 II.
verðl. og 11 engin verðlaun. Formaður dómnefnda á öll-
um sýningunum var ráðunautur Búnaðarfélags íslands
nautgriparækt, Olafur E. Stefánsson.
Afkvæmasýningar á nautum
voru haldnar á nokkrum stöðum í S.-Þingeyjarsýslu,
Eyjafirði og Skagafirði s.l. sumar. Skilyrði fyrir því, að
slíkar sýningar séu haldnar eru þau, að auk nautanna séu
sýndar a. m. k. 12 dætur hvers þeirra og að þær hafi
borið a. m. k. einu sinni, enda liggi fyrir skýrslur um
afurðir þeirra. Alls voru sýndar 149 kýr á þessum sýn-
ingum. Við ákvörðun á kynbótagildi nautanna var tekið
tillit til allra sýndra dætra þeirra, en auk þess eru at-
hugaðar afurðir systrahópanna, bæði mjólkurmagn og
mjólkurfita og nær sú athugun til allra skráðra dætra
hvers nauts, án tillits til þess, hvort þær eru sýndar eða
ekki. ÖIl nautin, sem sýnd voru nú á Nr.rðurlandi, höfðu
áður hlotið II. verðlaun á venjulegum nautgripasýning-
um. Aðeins eitt þeirra var viðurkennt sem I. verðlauna
naut að þessu sinni, enda eru kröfur til þeirra verðlauna
að sjálfsögðu strangar. Þetta naut var Rauður N 46 í
Reykdælahreppi í S.-Þingeyjarsýslu, sonur Loftfara N 6
úr Hrunamannahreppi, en e^cfirzkur í móðurætt.
Biðdóm varðandi I. verðl. fengu 3 naut: Kolur N 56 í
Reykdælahreppi, og tveir synir Kols N 1, í Eyjafirði,
þeir Funi N 48 og Ægir N 63.
Þröngt fyrir dyrum hjá dönskum bændum.
Verðlag hefur fallið mikið á ýmsum dönskum búvörum
að undanförnu. Það kemur fram í síðustu skýrslum um
hag danska landbúnaðarins, að reikningsár 1957—1958
hefur verið dönskum bændum þungt í skauti; verðlagið
hefur orðið þeim sífellt óhagstæðara. Á heimsmarkaðnum
er meira en nóg framboð á þeim búvörutegundum, sem
Danir flytja mest út af, og þetta hefur Ieitt til þess, að
verðið hefur lækkað mikið; á sumum tegundum mjög
mikið. Borið saman við árið á undan, hefur meðalverð
á búfjárafurðum lækkað um 13% og á gróðurafurðum
um 10%. I þessu sambandi má geta þess, að verð á mjólk
var lækkað um 14%, smjörverðið um 28%, verð á slátur-
svínum um 17% og verð á grísum um 26%. Eggjaverðið
hækkaði á hinn bóginn ofurlítið, eða um 4%, undanrenna
hækkaði um 2% og kartöflur um 13—19%. Meðal verð-
fall á öllum búvörum var 13%.
Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar
Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. ■ Ritstjóri: Gisli Kristjdnsson. ■
Ritstjóm, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 390. Sími 19200.
BUNAÐARBLAÐ Áskriftarverð FREYS er krónur 75.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.