Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 4
Skáney, hrossaræktarbú í
fremstu röð á Vesturlandi
Skáneyjarbúið hefur tvisvar, 2001 og 2004, verið valið
hrossaræktarbú ársins á Vesturlandi
Viðtal við Birnu Hauksdóttur og Bjarna Marinósson á Skáney í Reykholtsdal
Birna og Bjarni á Skáney
stunda kraftmikinn bú-
skap á jörð sinni, ásamt
Hauki, syni sínum, þar sem
mjólkurframleiðslan er uppi-
staðan í afkomunni en hrossa-
ræktin veitir mesta lífsfyllingu.
Hvar sem borið er niður á bæn-
um blasir við mikill drift og
dugnaður fjölskyldunnar, bygg-
ingar allar eru með myndarbrag
og áhuginn á hrossarækt leynir
sér ekki; myndir á veggjum og
fjöldi verðlaunagripa og verð-
launapeninga prýða heimilið.
Ég bið þau fyrst að segja á sér
deili en að öðru leyti kemur ekki
sérstaklega fram hvað er eftir
hvoru þeirra haft.
Bjarni'. Ég er fæddur 4. mars
1949 og uppalinn hér á Skáney.
Foreldrar mínir eru Vilborg
Bjarnadóttir, dóttir Bjama Bjama-
sonar, bónda og organista hér á
Skáney og Helgu Hannesdóttur
konu hans, en faðir minn var Mar-
inó Jakobsson, Húnvetningur að
ætt, úr Miðfirði. Hann lést 1989.
Ég gekk hér inn í búskapinn
með foreldrum mínum árið 1976,
en var búinn að starfa við hann frá
því ég gat eitthvað, en við Bima
tókum svo hér við búi árið 1980.
Birna: Ég er fædd 31. október
1948 og uppalin í Reykjavík.
Móðir mín er Þómnn Lámsdóttir
ffá Káranesi í Kjós. Hún var m.a.
um 20 ára skeið framkvæmda-
stjóri Ferðafélags íslands. Faðir
minn var Haukur Bjamason, að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins í rúmlega
50 ár. Hann starfaði í áratugi í fé-
lagsmálum íþróttahreyfíngarinnar.
Var mikill Armenningur. Hann
var fæddur í Reykjavík en foreldr-
ar hans komu austan úr Meðal-
landi og úr Biskupstungum og
Hreppunum. Hann lést 2001.
Þegar leiðir okkar Bjama lágu
fyrst saman, sem var á ársþingi
Landssambands hestamannafé-
laga árið 1977, bjó ég í Reykjavík,
átti hesthús í Viðidalnum, nokkur
hross, reið mikið út. Hingað flyt
ég í júní 1980.
Við eigum tvö böm, Vilborgu f.
1983, sem rekur hársnyrtistofu í
Reykjavík og Hauk f. 1981, sem
vinnur að búinu með okkur, aðal-
lega við tamningar. Auk þess á ég
dóttur, Bryndísi f. 1967, sem býr
með fjölskyldu sinni á Suðureyri
við Súgandaljörð. Þau reka gröfu-
þjónustu ásamt fleiru. Þau stunda
hestamennsku þar og em á kafi í
félagsmálum og pólitík.
Hvernig bú rekið þið svo hér?
Þegar við tókum við var hér
blandað bú, með kýr, kindur og
hross. Fjósið var frá 1975 og var
að fyllast. Um þetta leyti var ver-
ið að setja kvóta á mjólkurffam-
leiðslu og sauðijárrækt. Við
breyttum sauðfjárkvótanum i
mjólkurkvóta og fylltum fjósið af
kúm. Við höfum þó alltaf átt
Bjarni Marinósson og Birna Hauksdóttir á Skáney. (Freysmynd).
14 - Freyr 11-12/2004