Freyr

Volume

Freyr - 15.12.2004, Page 12

Freyr - 15.12.2004, Page 12
Kynbótasýningar 2004 Þátttaka Eins og tafla 1 ber með sér varð ekkert lát á þátttöku í kynbótasýn- ingum á liðnu ári. Að öllum lík- indum hafa aldrei fyrr verið dæmd fleiri hross á einu sýningarári, alls 1774. Sýnd hross voru aftur á móti heldur færri en árin 2002 og 2000 eða 1355. Skýringin á óven- ju miklum mismun þarna á er sú að 28% hrossanna komu, til dóms oftar en einu sinni og er það að- eins árið 2000 sem hærra hlutfall hefur komið til endursýningar. Svo sem verið hefúr í gegnum tíð- ina er það á landsmótsárum sem tala endursýndra hrossa hækkar til muna. Fyrst og fremst er það vegna hrossa sem menn telja mögulegt að komist á landsmót en hafa ekki náð lágmörkum við fyrri sýningar. Héraðssýningar voru haldnar vítt og breitt um landið, auk lands- móts á Gaddstaðaflötum. Alls voru sýningamar ijórtán talsins. Búnaðarsamböndin hafa sýning- arhaldið á sinni könnu og er í dag staðið vel að þeim málum víðast hvar. í töflu 2 má sjá hve mörg hross hlutu fullnaðardóm á hverri sýn- ingu (skipt eftir aldri og kyni), er þama um umtalsverða fjölgun að ræða frá 2003 þegar 1082 hross hlutu fúllnaðardóm en 1625 nú. I töflunni kemur ekki fram hvað var dæmt af geldingum, ungfolum eða öðmm hrossum sem aðeins hlutu byggingardóm. Aðsókn að sýningunum er afar mismunandi, allt frá átta hrossum fulldæmdum í Homafirði til 388 hrossa á fyrstu sýningu á Gadd- staðaflötum. Sé horft til sambæri- legrar töflu frá fyrra ári vekur at- hygli hve miklu fleiri ljögurra vetra hross hljóta nú dóm eða 86 stóðhestar á móti 43 í fyrra og 171 hryssa á móti 93 í fyrra. Þó að fjárhagslegur grundvöllur minnstu sýninganna sé tæpur, eftir Guðlaug Antonsson, hrossaræktar- ráðunaut BÍ bæði hvað varðar starfsfólk og að- stöðu alla, verður því ekki á móti mælt að kostnaðarsamt yrði að fækka sýningarstöðum nteira en orðið er, því dýrt er að flytja hrossin um langan veg til sýninga. Hefur og mikið áunnist i þessum efnum frá fyrri ámm þegar verið var að dæma á mörgum stöðum í sama héraði, jafnvel á heimreið- um bæja. Mikil frantför er að sem 1. tafla. Þátttaka í kynbótasýninqum síðustu ár. 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 Heildarfjöldi dóma 1473 1134 1771 1226 1643 1216 1774 Hross dæmd 1304 979 1578 1049 1510 1091 1355 Endursýnd innan ársins 18% 12% 33% 12% 18% 12% 28% 2. tafla. Fjöldi fullnaðardóma kynbótahrossa á sýninqum árið 2004 6 v.o.e. Stóðhestar 5 v. 4 v. 7 v.o.e. 6 v. Hrvssur 5 v. 4 v. Alls Skagafjöröur I 6 1 5 3 1 16 Gaddstaöaflatir I 23 31 30 92 74 81 57 388 Sörlastaðir 33 11 15 49 51 40 15 214 Húnaþing 2 12 11 8 2 35 Borgarnes 2 1 8 9 2 2 24 Stekkhólmi 1 1 9 5 12 4 32 Fornustekkar 1 2 5 8 Kópavogur 13 9 9 55 30 33 21 170 Skagafjöröur II 10 10 5 37 25 18 7 112 Dalvík 5 3 40 17 14 8 87 Gaddstaðaflatir II 6 4 6 21 13 16 8 74 Landsmót 21 20 15 39 58 56 35 244 Skagafjörður III 1 1 1 26 12 11 2 54 Gaddstaðaflatir III 7 5 72 46 27 10 167 Alls 124 99 86 465 356 324 171 1625 112 - Freyr 11-12/2004

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.