Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 40
og sé það fyrst og fremst vegna
þess frjálsræðis sem uppeldið
hefði og það þurfum við að varð-
veita.
Hann fjallaði stuttlega um þau
verkefni, sem eru í gangi, og
greindi frá því að knapamerkja-
kerfíð verði vistað á Hólaskóla og
búið sé að ráða starfsmann til að
halda utan um kennsluefnið og
þróa það.
Eyþór Einarsson las upp og
skýrði reikninga félagsins og er
staða þess nokkuð góð.
Gestir komu í pontu og fyrstur
var landbúnaðaráðherra, Guðni
Agústsson. Hann hældi Kristni
fyrir skýrsluna og sagði ímyndar-
mál hestamanna hafa batnað mik-
ið. Hann kvað það almennan vilja
stjómvalda að styðja við greinina
og óskaði hann fundarmönnum
velfamaðar í starfi.
Haraldur Benediktsson, ný-
kjörinn formaður BI, fullvissaði
menn um að mannabreyting hjá
BÍ þýddu ekki breytingar í sam-
skiptum FH og BI. Hann sagðist
ekki hafa setið marga fundi með
hrossabændum og kvað World-
Feng eitt þekktasta vörumerki BI
í dag. Hann sagðist hafa komið
að endurskoðun náinsskrár LBH
og þar hefði komið til umræðu
að gera hrossarækt að skyldu-
námi.
Sigríður Björnsdóttir, dýra-
læknir, flutti erindi um sjúkdóma
í hrossum en hún hefur verið
dýralæknir hrossasjúkdóma frá
árinu 1994. Hún fór yfír það
verksvið, sem starf hennar
spannar, s.s. spattrannsóknir, ex-
emrannsóknir, frjósemisvanda-
mál o.fl. Hún greindi frá verkefni
þar sem kannað er hvenær vaxt-
arlínur lokast í folöldum og
tryppum. I vinnslu eru verkefni í
hreyfígreiningu þar sem folöld
og tryppi eru skoðuð með tilliti
til heilbrigðis og þá sérstaklega í
liðum.
Sigríður sagði að ijármagn til
þessara verkefna hafa komið fyrst
og fremst úr Framleiðnisjóði og
frá Rannsóknarráði sem og er-
lendis frá. Hún hvatti til að tekið
verði upp lyljapróf á kynbótasýn-
ingum.
Jónas R. Jónsson, umboðsmað-
ur íslenska hestsins, fjallaði um
markaðssetningu hestsins í
Bandaríkjunum. Hann kvaðst
hafa unnið að því að skilgreina
hver ímyndin ætti að vera. Hann
taldi mjög mikilvægt að útbúa
kynningarefni en það er mjög af
skornum skammti. Jónas er að
vinna að því að auðvelda hesta-
mönnum að fá atvinnuleyfí í
Bandaríkjunum og hefur verið í
samstarfi við lögfræðing um þau
mál. Hann lét í ljós ánægju með
samvinnu við FH og kvað það
styrk fyrir sig að vinna með fé-
laginu.
Sigbjörn Björnsson kynnti
stefnumótunarvinnu íyrir FH sem
hann, ásamt Gunnari Amarsyni og
Stefáni Sveinssyni, liafa unnið að
undafarið.
Erlendur Garðarsson frá Kjöt-
framleiðendum ehf. kom og
sagði frá því helsta sem hefur
verið á döfínni hjá þeim. Hann
kvað Japansmarkað nú greiða
besta verðið. Eftirspurn er eftir
folaldakjöti og kaupir Heinz það
til að búa til úr því barnamat.
Þeir gera miklar kröfur og til að
mæta þeim vantar upp á stöðlun
margra sláturhúsa. Hann sagði
að Kjötframleiðendur ehf. væru
orðnir stærstu útflytjendurnir á
hrossakjöti hérlendis og verkefn-
ið væri orðið of stórt og um-
fangsmikið fyrir núverandi starf-
semi og hyggja þeir á stækkun
og fjölgun starfsmanna. Hann
sagði heimasíðu fyrirtækisins að
verða tilbúna en þar verður hægt
að fínna allar upplýsingar um
fyrirtækið.
Næsta á dagskrá var að tillögur
vom bomar upp til umræðu og at-
kvæðagreiðslu. Um tíu tillögur og
erindi lágu fyrir fundinum.
Kjósa átti um formann og gaf
Kristinn Guðnason kost á sér og
var kjörinn með samtaka lófataki.
Varamenn voru kosnir þeir:
Þorsteinn Hólm Stefánsson, Júlíus
Guðni Antonsson og Knútur Ar-
mann.
Formannafundur
Fomtannafundur FH var hald-
inn í Iþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal föstudaginn 12. nóvember. A
sama tíma var boðuð ráðstefna um
málefni Landsmóts ehf. og átti
Kristinn ekki tækifæri á að sækja
hana en þess í stað bauð hann upp
á umræður um landsmótið á for-
mannafundinum. Almennt þóttist
takast vel til með landsmótið en
þó vom nokkur atriði sem betur
máttu fara. Niðurstöður umræðn-
anna vom sendar bréfleiðis til
stjómar landsmóts.
Þeir Bjarni Maronsson og
Björn Barkarson ljölluðu um
stöðu beitarmála hjá hrossabænd-
urn og kom fram í máli þeirra að
margt hefúr breyst til batnaðar í
þeim efnum en betur má ef duga
skal. Bændur hafa tekið höndum
saman með Landgræðslunni og
hefur m.a. gæðastýring í hrossa-
rækt hvatt menn til þess að huga
betur að hrossahögum. Kristinn
lagði áherslu á að hrossabændur
geti rekið hross á afrétt og lagði
ríka áherslu á að þau mál verði
unnin í sátt og samlyndi með
Landgræðslunni.
Bjöm sagði frá vöktunarmæl-
ingum á hrosshögum, sem gerðar
vom fyrir nokkrum ámm, en nú
vantar aukið Ijánnagn til verkefn-
isins og óskaði hann eftir félags-
legum stuðningi hjá FH.
Hörður Kristjánsson frá Isteka
fjallaði um blóðsöfnun úr hryss-
um. Hann stiklaði á stóru um
verkefnið sem er lyfjagerð úr
140 -Freyr 11-12/2004