Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2004, Side 6

Freyr - 15.12.2004, Side 6
Þama emm við hins vegar með efnivið sem við þekkjum vel. Við höfum ekki keypt hryssur síðan 1976, þá var Aldís frá Svigna- skarði, móðir Randar, keypt á uppboði. Aldís var undan Blöndal 669, Blesasyni og móðir hennar var undan Roða, föður Blesa. Svo þetta er sama blóðið. En aftur höfum við tekið hesta á leigu, sem við notum á 10-12 mer- ar og grisjum svo úr því. Vilborg Bjarnadóttir á Skáney. Myndin er tekin á Firmakeppni á Faxaborg. blesóttur. Blesi 598 frá Skáney fæddist árið 1958 og í dag em flest öll hross hér einhvem veginn kom- in út af honum, jafnvel á fema vegu. Blesi stóð efstur í elsta flokki stóð- hesta á Landsmóti á Hólum í Hjaltadal árið 1966. Hann var fríður og gafvel byggð hross. Hrossin hér em yfirleitt vel byggð, fríð, auðtam- in, bæði klárgeng og alhliðageng. Skiptir liturinn máli við val á lífhrossum? Já, maður hallast meira að bles- ótta litnum en minna að brúnum, það er verra að þekkja þau. Við tölum reyndar um svört hross og brún hross en sums staðar er slíkt ekki ti! siðs, heldur hvoru tveggja kölluð brún hross. Hér em líka nokkrar leirljósar hryssur. Er nokkur hœtta á sk)>!dleika- rœkt í stofninum? Nei, það er engin hætta á því enda tökum við oft inn nýtt blóð. Tamningar og þjálfun? Bjarni: Eg byrjaði tamningar 13 ára gamall og hef stundað þær alla tíð, síðan með öðru og geri enn, en hef þó dregið úr því. Það er yf- irleitt byrjað með hrossin hér heima og stundum eru fengnir einhverjir til að þjálfa sum meira, en annars hefur Haukur sinnt því mikið síðari árin og það hefur gengið ve! hjá honum. A síðasta ári var Jakob Sigurðs- son, ættaður frá Samtúni hér í sveit, með 4 v. rauðblesótta stóð- hestinn Sólon, frá Hauki, frá apríl fram yfir landsmót, og var hann sýndur þar og varð fimmti með 8,20 í einkunn. Sólon var hæst dæmdi 4 vetra stóðhesturinn á Vesturlandi árið 2004. Haukur sýndi List 6 vetra rauð- stjömótta hryssu á LM. En bæði þessi hross em fædd honum og tamin af honum. Það eru annars að verða 40 ár síðan ég sýndi fyrsta kynbóta- hrossið, eða árið 1965, það var á Fjórðungsmóti hér á Vesturlandi. ibúðarhúsið á Skáney. (Freysmynd). En þið hafið jöfnum höndum tekið þátt í kynbótasýningum og gæðingakeppni í áranna rás? Birna: Já og á öllum landsmót- um hafa verið kynbótahross héð- an, sem og öllum íjórðungsmót- um á Vesturlandi nema 1980. Haukur og Vilborg hafa líka keppt á nokkrum landsmótum og fjórð- ungsmótum fyrir Faxa. Og þá ein- |6-Freyr 11-12/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.