Freyr - 15.12.2004, Síða 15
hverjum flokki á árinu er ekki gef-
ið að sá árangur hafi einvörðungu
verið bundinn við landsmótið því
að erfitt getur verið að endurtaka
alla þætti frábærlega vel mörgum
sinnum á sama sumrinu þegar tek-
ið er tillit til sautján dómsein-
kunna svo sem er við fullnaðar
kynbótadóm.
Efsti stóðhestur í flokki stóð-
hesta 6 vetra og eldri á árinu varð
Akkur IS1998137637 frá Brautar-
holti í Staðarsveit á Snæfellsnesi
(B: 8,23 H: 8,80 A: 8,57). Eig-
endur Akks eru Snorri Kristjáns-
son og Helga Dís Hálfdánardóttir.
Akkur er undan Galsa frá Sauðár-
króki og móðirin er flaggskip
ræktunarinnar í Brautarholti,
hryssan Askja frá Miðsitju, dóttir
Hervars frá Sauðárkróki og
Snjáku frá Tungufelli. Undan
Öskju hefur komið fram hver
gæðingurinn á fætur öðrum á und-
anfömum ámm. Akkur er ijölhæf-
ur og glæsilegur gæðingur með
úrvals klárgang.
I öðru sæti í þessum flokki varð
Kraftur IS1995165 864 frá Bringu
í Eyjafirði (B: 8,08 H: 8,86 A:
8,55). Faðir Gustur frá Hóli, móð-
ir Salka frá Kvíabekk, eigandi Ey-
mundur Þórarinsson. Þriðji varð
Gári IS1998187054 frá Auðs-
holtshjáleigu í Ölfúsi (B: 8,91 H:
8,30 A: 8,54). Faðir Orri frá Þúfu,
móðir Limra frá Laugarvatni, eig-
endur Gunnar Amarson og Krist-
björg Eyvindsdóttir.
Af fimm vetra stóðhestum varð
efstur á árinu Þóroddur
IS1999188801 frá Þóroddsstöð-
um í Grímsnesi (B: 8,28 H: 9,04
A: 8,74). Eigandi Þórodds er
Bjami Þorkelsson. Þóroddur er
undan Oddi frá Selfossi og stóð-
hestamóðurinni kunnu Hlökk frá
Laugarvatni sem er undan Hrafni
frá Holtsmúla og Sif frá Laugar-
vatni. Skemmst ffá að segja er
Þóroddur einhver albesti ef ekki
besti, fimm vetra foli sem til dóms
Akkur frá Brautarholti og Þórður Þorgeirsson. (Ljósm. Eirikur Jónsson).
hefur komið. Var einstakt að sjá
hversu miklu hann skilaði á öllum
gangtegundum og ekki síður var
athyglisvert að sjá hversu mikla
mýkt hann hafði til að bera og
frelsi í fasi og framgöngu. Nú er
bara að vona að folinn reynist sá
kynbótahestur, sem hann vekur
svo sannarlega vonir um, og einn-
ig hitt að verð folatolla verði með
þeim hætti að ekki fæli frá notkun
svo sem hefur viljað brenna við á
síðustu árum með einstaka hesta.
I öðru sæti í fimm vetra flokknum
varð Blær 1S1999166214 frá Torfu-
nesi í Suður-Þingeyjarsýslu (B:
8,08 H: 8,54 A: 8,36). Faðir Blæs er
Markús frá Langholtsparti og móð-
Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Daníei Jónsson. (Ljósm. Eirikur Jónsson).
Freyr 11-12/2004 - 15 |