Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2004, Side 24

Freyr - 15.12.2004, Side 24
Kynbótamat 2004 ins og undangengin ár birtast hér í blaðinu nið- urstöður kynbótamats fyrir þau hross sem efst standa í hverjum flokki fyrir sig. Við flokkunina er beitt sömu aðferð og venjulega þar sem stóðhest- unum er deilt í flokka eftir ör- yggi kynbótamatsins byggt á fjölda dæmdra afkvæma. Að þessu sinni er um þó nokkr- ar endurbætur að ræða þar sem bæði er búið að endurmeta alla erfðastuðla, auk þess sem gögn frá Norðurlöndunum liggja nú til grundvallar en ekki bara íslenskir dómar eins og verið hefur frá upp- hafi. Hér á eftir verður farið að- eins yfir þróunina hvað varðar út- reikning kynbótamatsins og stikl- að á helstu atriðum sem tengjast þessu nýja mati. BLUP AÐFERÐIN Kynbótamat íyrir íslensk hross er reiknað með BLUP aðferðinni íýrir einstaklingslíkan. BLUP er skammstöfun fyrir Best Linear Unbiased Prediction sem þýðir besta línulega óskekkta spá um kynbótagildi gripanna út frá upp- lýsingum um mælda eiginleika í tiltækum gögnum og ættarupplýs- ingum sem vega allan skyldleika milli gripanna í gögnunum. BLUP aðferðin getur leiðrétt fyrir áhrif- um fastra umhverfisáhrifa sem unnt er að skrá í gögnum og þann- ig gert dóma ffá mismunandi ár- um, aldursflokkum og kynferði samanburðarhæfa. A seinustu ára- tugum hefúr BLUP aðferðin skip- að sér sess sem kjöraðferð við kyn- bótamat búfjár um víða veröld. BLUP aðferðinni fyrir einstak- lingslíkan og samtímis mati á kyn- bótagildi 10 tengdra eiginleika sköpulags og hæfileika íslenskra hrossa var fyrst beitt árið 1982. Fyrstu árin voru niðurstöður kynntar hesta- og ræktunarmönn- um með fúndum og fjölrituðum listum niðurstaðna og jafnframt birtingu á röð efstu hrossa í tímarit- inu Eiðfaxa. Aðferðin var fonnlega tekin í notkun af Bændasamtökum íslands (Búnaðarfélaginu) 1986, sem síðan hefur annast og borið ábyrgð á birtingu niðurstaðna. Arið 1992 var gerð umfangsmik- il endurnýjun á forritunum sem notuð voru til útreikningana og metnum tengdum mælieiginleik- um fjölgað úr 10 í 14. Þá var kyn- bótamati fyrir hæð á herðar einnig bætt við. Góða lýsingu á BLUP aðferðinni og notkun hennar í ís- lenskri hrossarækt fram til 1992 er að finna í grein Kristins Hugason- ar (Kynbótamarkmið og kynbóta- starf í hrossarækt. I ritinu ”Um kynbætur hrossa” . Fræðslurit BI nr. 9, 1992). A síðustu árum hef- ur kynbótamat fyrir prúðleika á fax og tagl, fet og hægt tölt bæst við. Jafnframt varð ljóst að eldri og yngri gögn voru ósamstæð og þörf fyrir nýjar erfðagreiningar og þró- un nýs reiknilíkans varð brýn. Alþjóðlegt kynbótamat FYRIR ÍSLENSK HROSS Arið 2000 var gerður samning- ur um samstarfsverkefni BI og FEIF um uppbyggingu alþjóðlegs gagnagrunns um íslensk hross (WorldFengur). Eitt meginverk- efnið innan WorldFengs er að koma á alþjóðlegu kynbótamati sem gerir samanburð á kynbóta- hrossum, fæddum og sýndum í mismunandi þjóðlöndum, mögu- legan. I fyrstu atrenu er stefnt að sameiginlegu kynbótamati fyrir Norðurlönd sent síðan verður fylgt eftir með kynbótamati sem Ágúst Sigurðsson, rektor Land- búnaðar- háskóla Islands einnig byggir á FEIF dómum í öðrum löndum. Á árabilinu 1995-2001 varsam- eiginlegt kynbótamat reiknað á grundvelli íslenskra, danskra og sænskra gagna og niðurstöður fyr- ir hross, sem staðsett voru í Dan- mörku og Svíþjóð, voru birtar hvorar í sínu landi. Þar sem all- mikið skorti á samræmingu gagn- anna og röng fæðingamúmer vora of algeng, einkum í sænsku gögn- unum, var þessu hætt og Danir og Svíar höfðu ekki aðgang að fersk- um kynbótaeinkunnum fyrir hross sín árin 2002 og 2003. Þetta var afar bagalegt þar sem ræktendur í þessum löndum höfðu vanist notkun kynbótaeinkunnanna og þær voru sýnilega lyftistengur í ræktun þessara þjóða. Gagnabanki WorldFengs, sem er í örrí uppbyggingu undir styrkri stjóm Jón Baldurs Lorange BI, gefúr einstakt færi á sköpun virks alþjóðlegs kynbótamats fyrir ís- lensk hross. Árið 2003 fengu undirritaðir það verkefni í hendur að þróa slíkt kynbótamat. Verk- efninu er ekki lokið en mikilvæg- um áfanga er þó náð með Nor- 124-Freyr 11-12/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.