Freyr

Årgang

Freyr - 15.12.2004, Side 34

Freyr - 15.12.2004, Side 34
Sumarexem, bitfluguof- næmi í hrossum Einangrun á ofnæmisvökum Inngangur Sumarexem er ofnæmi gegn prótínum (vökum) sem berast í hross við bit mýflugna af ættkvísl- inni Culicoides (biting midges) en tegundir af þeirri ættkvísl lifa ekki á Islandi. Einungis ein mýtegund bítur spendýr hér á landi en það er bitmý sem er af ættkvíslinni Simulium (black flies) (1). Sumarexemið er í flestum til- vikum ofnæmi af gerð I (Type I hypersensitivity) en því fylgir framleiðsla á þeim flokki mótefna sem heitir IgE, einnig oft kölluð ofnæmismótefni, losun á hista- míni og fleiri bólguþáttum (mynd 2) (2). Öll hrossakyn geta fengið of- næmið og er það afar algengt í ís- lenskum hestum sem fluttir eru úr landi. Rannsóknir Sigríðar Bjömsdóttur og fleiri sýna að um helmingur þessara hesta fær sum- arexem hafi þeir verið tvö ár eða lengur á flugusvæðum og ekkert eftir Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur Vilhjálm Svansson, Tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræði að Keldum hefur verið gert til að verja þá flugnabiti (3). Nýlegar rannsókn- ir sem gerðar vom sem lokaprófs- verkefni frá Hvanneyri benda til þess að tíðnin í íslenskum hestum fæddum í Þýskalandi sé mun lægri eða um 10% við sambæri- legar aðstæður (4). Á Tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræði að Keldum fara fram rannsóknir á sunrarexemi í hross- um í samstarfi við Háskólann í Bem í Sviss. Rannsóknimar em styrktar af Framleiðnisjóði land- búnaðarins, Rannís, Háskóla Is- lands, Svissneska vísindasjóðnum og fleirum. Markmið rannsóknanna er að finna og einangra ofnæmisvakana sem valda sumarexeminu og finna aðferðir til að fyrirbyggja og með- höndla sumarexem. Verkefninu má skipta gróft í þrjá þætti. 1) Einangrun og greining á of- næmisvökum úr Culicoides mý- flugunni. 2) Þróun á tjáningarferj- Mynd 1. Makki hests með sumarexem.Útbrot í húð vegna sumarexems sjást oftast á makka, sterti og i sumum tilfeilum á baki og höfði. Útbrotin geta náð yfir á lend og síður, en eru sjaldnar á kvið eða innanvert á lærum. Húðbreytingum fylgir roði og bólga, seyting á gulleitum vökva og skorpu- myndun. Þessu fylgir mikill kláði pannig að hesturinn nuddar af sér fax og tagl og rífur sig jafnvel til blóðs. I langvinnum tilfellum þykknar húðin. Hestar með sumarexem gróa yfirleitt sára sinna fullkomlega yfir veturinn en næsta sumar fá þeir útbrot á ný og þá oft verri en árið áður, sé ekkert gert til að verja þá fyrir flugunni (27). 134 - Freyr 11-12/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.