Freyr - 15.12.2004, Qupperneq 68
Eru kampavínslitir til í ís-
lenska hrossastofninum?
Inngangur
Islenski hrossastofninn býr yfir
mikilli ijölbreytni í litum og innan
hans má finna flesta liti sem
þekkjast í hrossum og Qölmörg
blæbrigði af hverjum lit. Islend-
ingar hafa lengi haft næmt auga
fyrir hrossalitum og flokkun lita
og nafngiftir ífá gamalli tíð falla
vel að erfðafræðilegri flokkun nú-
tímans. Þessi glöggskyggni ís-
lenska bóndans á liti hefur auð-
veldað vísindamönnum litarann-
sóknir, t.d. áttaði Stefán Aðal-
steinsson (1974) sig fyrstur manna
á áhrifum erfðavísis fyrir leirljós-
um lit á rauðan og jarpan lit.
Brúnn, jarpur og rauður litur eru
oft kallaðir grunnlitir í hrossum.
Margir litir eru með einhverjum
hætti afleiddir af þessum litum.
Þrír erfðavísar, sem deyfa grunn-
litina, hafa til skamms tíma verið
þekktir. í fyrsta lagi erfðavísir
sem veldur því að rautt verður
bleikt, jarpt verður bleikálótt og
brúnt móálótt. í öðru lagi erfða-
vísir sem veldur því að rautt og
bleikt verður leirljóst og jarpt og
bleikálótt moldótt. í þriðja lagi
erfðavísir sem veldur því að jarpt
verður jarpvindótt, bleikálótt
bleikvindótt, brúnt móvindótt
o.s.frv. Þessi erfðavísir hefur ekki
áhrif á rauðan lit.
Árið 1996 komu fram í Banda-
ríkjunum kenningar um nýjan
erfðavísi sem deyfir grunnlitina
(Sponenberg & Bowling, 1996).
Hann á að hafa svipuð áhrif og sá
sem veldur leirljósu og moldóttu
en litblærinn á að vera aðeins ann-
ar og hann á alltaf að hafa áhrif á
brúnan lit. Á ensku er liturinn
nefndur „champagne” eða kampa-
vínslitur. Þessi erfðavísir á að hafa
áhrif á augnlit og húðlit. Folöldin
fæðast með blá augu en þau
dökkna með aldrinum og verða
gul- eða móbrún. Húðin á að vera
ljósari en á dökkum hrossum en
dekkri en á hvítingjum og með
málmgljáa. Þessi erfðavísir hefúr
þau áhrif á brúnan lit að búkurinn
verður fölbrúnn en fax, tagl og
fætur með dökkbrúnni lit. Að mati
Sponenbergs er þetta sá litur í
kampavínshópnum sem auðveld-
ast er að greina og lítil hætta er á
að rugla honum við aðra hrossaliti.
Áhrif þessa erfðavísis á jarpan lit
eru þau að búkurinn verður gulur
en fax, tagl og fætur brúnir. Fyrir
tilstilli þessa erfðavísis verða
rauðir og bleikir litir gulllitaðir.
Hér á landi er til rauðbrúnn litur
sem nefndur hefúr verið muskótt-
ur, mórauður eða glóbrúnn. Einn-
ig eru hér til moldótt hross með
mórauðan lit á faxi og fótum en
ekki svartan og svipar þannig til
lýsingar Sponenbergs. I nýjustu
bók sinni um hrossaliti setur Stef-
án Aðalsteinsson (2001) fram þá
hugmynd að þessir litir kunni að
vera þeir sömu og áðumefndir
kampavínslitir. Hann leggur til að
þeir verði nefndir glólitir (gló-
brúnn, glómoldóttur og glóbjart-
ur). Á þessu ári var gerð athugun
á því hvort svo væri eða hvort
skýra mætti glólitina með öðram
hætti. Itarlegri grein hefur verið
gerð fyrir niðurstöðum annars
staðar (Guðni Þorvaldsson, 2004).
Efni og aðferdir
Út frá upplýsingum í Veraldar-
feng var tiðni einstakra lita í
hrossastofninum skoðuð til að fá
mynd af stöðu leirljósra, mold-
óttra og glóbrúnna hrossa í sam-
hengi við aðra liti. Notuð voru
gögn um hross fædd á árabilinu
1984-2003 en það eru rúm hundr-
að þúsund hross. Ákveðið var að
nota þetta 20 ára tímabil, en ekki
öll ár, þar sem stór hluti þess hóps
hefur verið flokkaður eftir því
litakerfí sem nú er notað hjá
Bændasamtökunum.
Líkt og með kampavínslitinn er-
lendis er auðveldast að greina
brúna afbrigðið (glóbrúnt) frá öðr-
um litum og því var mest áhersla
lögð á glóbrúna litinn. Samtímis
var þó leitað að öðrum afbrigðum
(glómoldóttu og glóbjörtu). Ver-
aldarfengur var notaður við rann-
sóknina eftir því sem upplýsingar í
honum leyfa en auk þess var upp-
lýsingum safnað rneðal hestafólks
og með því að skoða hross. Farið
var í skoðunarferðir um Borgar-
Qörð, suður um land, allt austur í
Vestur-Skaftafellssýslu og mörg
hross skoðuð og ljósmynduð.
Þegar þetta var unnið voru 327
glóbrún hross skráð í Feng. Ætt
allra þessara hrossa var rakin og
skoðað hvort þau tengdust hross-
168 - Freyr 11-12/2004