Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 78

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 78
60 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Úti var hlýtt í veðri, þó komið væri kvöld. Inn um opna stofu- gluggana barst ilmur frá blómum og nýslegnu grasi. En þess gætti lítið. Hávær glaðværð fólksins tók einka- rétt á allri skynjan minni .... Og nú er farið að æfa söng, íslenzk sönglög. Fjórrödduð! Og þó ég kunni ekkert lag, fer hávaðinn vel með mig. Vísurnar og versin kannast ég við frá barnsárunum .... Hve gott og fagurt og indælt er . . . Brúð- kaupssálmur. Því Walter og systir hans gifta sig á morgun . . . Og svo væntanlegir silfur- og gullbrúð- kaupsþættir í ættingjamótinu við vatnið . . . . Nú væri farið að líða að gullbrúðkaupi okkar Stínu, hefði ég ekki haft vitið fyrir mér og gefið mig allan við fjármálin . . . . Og hvernig hefði ég átt að eyða heilum dögum í ættingjamót við vatn eða annars staðar og aukatíma í undir- búning þeirra, utan kostnaðarins, sem þetta umstang hlýtur að hafa í för með sér . . . Óhugsandi að þetta fólk leggi peninga, sem nokkru nemur í sparisjóð, hversu mikið sem það hefir upp úr búskapnum. Til þess ber það of mikið í heimilin og öll lífsþægindi; og svo hlær það og syngur og heldur útiskemtanir við vatnið. En mikil undur eru það, sem Merkurbúar hafa komið í verk! Upp úr þessum þankabrotum mín- um slitnaði við komu aldraðrar konu inn í stofuna. Hún gekk beint til mín og heilsaði mér glaðlega með handabandi, eins og löndum er títt þó þeir hafi ekki verið formlega kyntir. „Ég heiti Jónína Strandar“, segir konan, „og vona að þú fyrir- gefir mér framhleypnina. En ég heyrði hann Walter tala um, að þú værir að spyrjast fyrir um mann, sem eitt sinn átti heima hér í ný- lendunni“. Við þetta lifnar yfir mér, líkt og þá er ég var upp á mitt hið bezta og græddist tíu þúsund í einum rykk; það var ekki aðeins, fyrir von um að loks fái ég fréttir af Oscar, heldur minnir Jónína mig á hann. Þó öldruð sé og hvít fyrir hærum, er hér ekkert um að villast. Kærustu- myndin hans Oscars var af Jónínu! Og kom þetta svo flatt upp á mig> að ég var nokkur augnablik að jafna mig. „Ég er kominn alla leið vestan fra hafi, til að finna Oscar, og veit, að nú fæ ég fréttir af honum“. „Og hvernig veiztu það?“ spyr hún brosandi. „Oscar hafði ljósmynd af þér a kommóðunni í svefnherberginu sínu“. Við þessi orð mín skein gleðin út úr svip Jónínu, eins og mann=> sem sér hlutabréf sín hækka í verði með hverju líðandi augnabliki; en hún lætur sem hún heyri þau ekkr „Oscar þekti ég fyrir löngu síðan > segir hún. „í rauninni hét hann Ásgeir Ingimarsson, en tók sér þetts gerfinafn árin sem hann var við nám í Winnipeg. En nú er svo langt um liðið, að aðeins örfáir okkar eldra fólksins, kannast við hann undir Oscars nafninu. Annars er hann flestum hér gleymdur“. „Hann hét Ásgeir, segir þú. 1 hann dáinn?“ Og var þetta í fyr&. f skifti, sem mér flaug í hug, a^ Oscar væri öðru vísi en aðrir menn> lyti hann sama lögmáli og þmr- „Enginn veit hvort Ásgeir er 1 eða liðinn, svo ég viti til“, se^ Jónína. „Og þess vegna gerðist e^ svona framhleypin við þig — 1 v° að þú hefðir séð hann eða ha um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.