Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 88

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 88
70 TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA íslenzkt brekán, og náðu landi við Kjalvík, bújörð Skafta Arasonar. Dáðist Jón mikið að því, hversu ágætlega Björn stýrði hinum klunnalega farkosti þeirra, bæði nið- ur ána og norður eftir vatninu. Vorið 1877, var Jón baðaður eins og kláða-gemlingur af sóttverðinum suður af Nýja-íslandi, þegar hann, ásamt fjölda ungra manna, reyndi að komast burt úr nýlendunni til að bjarga sér, sem þeim líka öllum tókst eftir næga bið og böðun. Fengu þeir atvinnu við nýbyrjaða járn- braut, sem verið var að leggja suður til Bandaríkja, en unnu varla fyrir fæði sínu vegna rigninga. En í hópi þessara landa, voru sex Jónar Jóns- synir, sem allir rugluðust saman hjá þeim canadisku, þegar gjalda átti þeim vinnulaunin. Tóku þeir því það til bragðs, allir sex, að fá sér ætt- nefni, og þaðan stafar Hörgdals nafnið. Snemma vetrar þetta ár réð- ist hann í vist í Kildonan, fimm mílur norður frá Winnipeg, til ágæt- is manns, sem James Black hét, sonur Rev. (séra) John Blacks hins skozka, sem talinn er, að vera einn af fyrstu prestum í nýlendunni í Rauðárdal, sem Selkirk lávarður stofnaði 1813—1815. Segir Jón Hörg- dal svo frá, að ekki sé hægt að hugsa sér betra heimili en þeirra hjóna, James Black og seinni konu hans, sem var skólakennari frá Skotlandi. Kona sú, er hann áður átti, var af einum þjóðflokki Rauðskinna. Lifðu sjö börn af því fyrra hjónabandi, sem seinni konan kendi ensku á hverju kvöldi. Eftir að Jón hafði dvalið þar stuttan tíma, bauð konan honum að taka þátt í náminu. Þá hann boðið með þökkum. Lærði hann um veturinn undirstöðu bók- málsins og framburð enskunnar. Þarna dvaldi hann þar til í byrjun júní, 1878, að búið var að sá, og fanst hann aldrei hafa áður tíma sínum betur eytt, og vera nú orðinn maður til að mæta hverju, sem uð höndum bæri. I Winnipeg hitti hann J. P. Hallsson á förnum vegi og slóst í förina suður, sem fyrr er ritað, og vann við „að hrófa upp litlum og ljótum bjálkakofa“, sem hann, einn af níu, flutti í. Síðar starfaði hann að heyskap og öðru unz hann vistað- ist yfir sumarið hjá N. E. Nelson í Pembina, sem áður getur, og vann hjá honum fram á haust. En þegar Karítas móðir hans og Jónína litla komu að heiman til Winnipeg, flytur hann þær til Jóhanns Hallssonar og sezt þar einnig að. Með móður sinni reisti hann bú, vorið 1879, a bújörð, er hún nam í Hallsson, en valdi sjálfum sér land ásamt.tengda- foreldrum sínum tilvonandi, fjórar mílur suðaustur frá Hallsson, en bjo þó nálega öll sín fjörutíu ár í ný' lendunni á bújörð móður sinnar. Jón Hörgdal var hinn mesti fjúr' maður og átti fjölbreyttum hsefileik' um á að skipa. Hann var fæddur leikari og skemti fólki allra manna bezt í sinni bygð, bæði á sjónleikurn og samkomum. Vandasöm embsett1 opinberra mála hafði hann stöðugt á hendi frá því þau voru stofnuð og þar til hann flutti úr bygðinni. Hann var „hreppstjóri“ í bygð sinni fulla** hálfan þriðja tug ára. Tók hann v* af Gísla Egilssyni, er hann hvar þaðan, 1888, en fyrsti maður, sem kjörinn var til þess embættis, Jóhann Pétur Hallsson. Frá Þ^1 skólahérað var þar myndað, 18 ’ var Jón forseti skólastjórnar í 36 ar og kennari við sunnudagaskólann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.