Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 110

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 110
92 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Kristni var að vísu lögleidd á Þing- velli, svo ekki er í alla staði óvið- eigandi að þar sé kirkja. En stíllinn er óþolandi á slíkum stað. Þar ætti að vera hof, þó kristið sé. Auk þess eru turnspírur og skemmuþak að hverfa úr byggingarstíl nýrri kirkna eða guðshúsa. Ég leit á leiði Jónasar og Einars og gat einhvern veginn ekki orðið snortinn. í huga mér hljómuðu orðin, sem eiga svo vel við alla snillinga og velgjörðar- menn mannkynsins: „Hví leitið þér hins lifanda meðal hinna dauðu? Hann er ekki hér“. Sagan og ljóðin og landslagið þrengdu svo fast að mér, að ég hefði helst óskað að verða þar aleinn eftir; en ekkert þvílíkt er mögulegt, þegar maður er um- kringdur af ungu og glöðu og elsku- legu frænda og vina liði. í bakaleið fórum við um í Hvera- gerði. Þar er talsvert sveitaþorp. Þar eiga ýmsir íbúar höfuðstaðarins sumarbústaði, og þar búa sumir yngri rithöfundar þjóðarinnar. Þar eru gufumekkir altaf í lofti og þar sýður og bullar jörðin af hverahita. Kváðu stundum opnast nýir leir- hverir undir húsgólfum manna. Þar er mikil gróðurhúsarækt. Af Kambabrún á austurvarpi Hellisheiðar er einhver hin fegursta útsýn landsins. Blasir þar við Suður- landsundirlendið með hinum víða fjallahring, og lengst í útsuðri blánar fyrir Vestmannaeyum í hafinu eins og skipaflota á siglingu. HVALFJ ÖRÐUR Ó, fjörður vœni sœll að sýn í sumarsólar loga. Hve framnes, björg og flóðvik þín í faðm sér hug minn toga. Hvar stenst öll prýðin eins vel á við insta botn og fremst við sjá? Hvar sé ég fleiri fjöllin blá og fegri mararvoga? Þegar ég var drengur í heimahús- um fyrir meira en sextíu áruffl komst ég yfir Iðunni hina eldri. Þar las ég þetta fagra kvæði Steingríms um Hvalfjörðinn. í því er fléttað saman á hinn yndislegasta hátt nátt- úrufegurðin, landslagið með örnefn- unum, og merkustu atburðir sög- unnar og fornsagnanna. Við Hval- fjörðinn eru tengdar minningarnar um mesta skáldið á miðöldum ís- lands, Hallgrím Pétursson, sem lifði þar við örbirgð og ólæknandi sjúk- dóm, en lét þrátt fyrir það eftir sig liggja stærsta skáldverk, sem ort var um öll Norðurlönd á sama tímabili- Ég hafði þá lesið ævisögu hans éftir Hálfdán skólameistara Einarsson. Skömmu síðar komst ég yfir sögn Harðar og Hólmverja, og las hana upphátt á kvöldvöku — þennan blóðuga og hrikalega sorgarleik, þar sem mætur og ættgöfgur maður er dæmdur í útlegð fyrir afsakanlegt víg, og verður svo fyrir brýnustn lífsnauðsyn vargur í véum heils bygðarlags og að síðustu svikinn og veginn fyrir eðlilegar ástæður. Ég hlakkaði til ferðarinnar, en ekki átti ég von á eins torfærum vegi eða þvílíkri vegalengd. Vegur' inn liggur í ótal hlykkjum í snar- bröttum brekkum vestan fjarðarinS’ og varð mér stundum ekki um se í mjóstu sniðunum, enda var ég li^a svo óheppinn að vera sárlasinn mestan hluta dagsins. Sagt var mer þó, að Ameríkumenn hefðu stor bætt veginn, þegar þeir tóku Hva fjörðinn fyrir setulið sitt. Fyrir botm fjarðarins er hvalveiðastöð, svo enn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.