Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 118

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1953, Page 118
100 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA að ég var gamall Möðruvellingur. Kirkjan er enn með sömu ummerkj- um — blá hvelfing með látúns- stjörnum. í garðinum reyndi ég að finna leiði Bjarna Thorarsensen, Gríms og fleiri sem ég mundi eftir frá gamalli tíð. En grasið var klof- hátt og hafði auðsjáanlega ekki verið slegið í mörg ár. Presturinn kvartaði undan, að nú fengist enginn til slíkra verka lengur, og sjálfur hefir hann líklega hvorki átt orf eða ljá. Á Hörgá er brú, sem hriktir og skelfur, þegar um hana er keyrt. Þar hafa orðið slys, eins og við fleiri eldri brýr landsins, þar sem veg- irnir eru sjaldnast lagðir beint að brúarsporðinum. Enn aðra ferð fór ég inn í Eyafjarðardalina. Þar eru fjöll skuggaleg en þó fögur, eins og í svo mörgum öðrum inndölum landsins. í bakaleiðinni stansaði ég á Möðruvöllum hinum innri. Þar bjó Guðmundur hinn ríki í fornöld, sem sagan segir, að haft hafi hundrað hjúa og hundrað kúa. Þar er hinn mesti myndarbúskapur enn. Aðeins einn fjósamann sá ég samt, en sextíu eru kýrnar mjólkandi. Þær voru að streyma úr haga. Ég fékk að sjá fjósið — alt úr sementssteypu og þvegið og fágað, en mjólkurvélarn- ar á sínum stað. Þar er vanaleg sveitakirkja, en í henni er altaris- tafla aftan úr kaþólskri tíð, með út- skornum helgimyndum og hin mesta gersemi. Sunnudaginn 10. ágúst tók sig saman alt frændaliðið og keyrði út á Árskógsströnd og þaðan á bát í Hrísey. Tilefnið, að hlýða fyrstu messu Fjalars bróðursonar míns við innsetningu í hina nýu sókn hans í Hrísey. Eftir athöfnina geng'um við um eyna, sem er falleg og grösug víðasthvar. GRÍMSEY Grímsey er fyrst nefnd í sögu Ólafs konungs hins helga. Konung- inum stóð hugur til íslands, eins og fleiri Noregskonungum. Sendimaður hans bar vináttuboð til íslendinga og bað um leið, að sér væri gefin „ey eðr útsker, er liggur fyrir Eyafirði ok menn kalla Grímsey“. Vildu margir veita þetta lítilræði og þeirra á meðal Guðmundur hinn ríki a Möðruvöllum. En Einar bróðir hans Þveræingur sýndi fram á, að kon- ungur gæti haldið þar her manna, sem veitt gæti þungar búsifjar. Var þá beiðninni synjað. í mínu ung- dæmi var Grímsey markverðust fyrir þrent: Þar voru bestir tafl' menn og þar voru tvö sálmaskáld og rithöfundar samtímis. Séra Pétur Guðmundsson, sem gaf út sálma og ritaði á efri árum Annál 19. aldar, og Árni Þorkelsson í Sandvík, sem orti kvæði og sálma og skrifaði auk þess skáldsögu og ættartölur- Grímsey liggur á miðjum heiiU' skautsbaug nyrðra, og er þó í Eya' fjarðarsýslu. Hún er lágkúruleg, se úr hafi, en landsýn er mjög fög'h’ þaðan. íslenska ríkið á varðskip þa ; er Ægir heitir og gætir landhelg1 norðan lands. Skip þetta sendir stjórnin einu sinni á ári til Gríms eyar með sýslumann, tollheimtu mann, lækni og prófast. Auk þeiirU voru með vísindamenn, kennarar fleiri. Mér var boðið að fljóta me ■ Hafði ég ekki á reglulegan sjó korUl í 25 ár. Veður var sæmilegt, en ta verð ylgja í sjó á bakaleið. Ég þar í töðuhirðingu með Sandvíku^ bóndanum, því regn var í lofti, þegar síst varði komu þar að myn smiðir. í næstu viku kom svo my af mér með hrífuna í Morgun a
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.