Fréttablaðið - 05.04.2012, Síða 2
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR2
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið kemur
næst út á laugardaginn og svo á
þriðjudag eftir páska, 10. apríl.
Þjónustuver og afgreiðsla 365,
að Skaftahlíð 24, er opin alla daga
yfir páskana, frá 10-22, að páska-
degi undanskildum en þá er opið
frá 10-16.
Skiptiborð 365 er hins vegar
lokað yfir hátíðarnar.
Útgáfa Fréttablaðsins:
Ekkert blað
á föstudaginn
L júffengur Páskaostur
fæst nú í verslunum
SPURNING DAGSINS
Þorsteinn, er þá útlitið aldrei
svart hjá þér?
„Nei, aldrei. Núna er ég til dæmis
í öllu silfurlituðu, hvítu, bleiku og
lillabláu.“
Stílistinn Þorsteinn Blær vekur hvarvetna
athygli fyrir frumlegan og lítríkan klæða-
burð. Hann segist aldrei klæðast svörtu
því að það komi honum í vont skap.
BANDARÍKIN Sameiginleg rétt-
arhöld verða haldin yfir fimm
föngum Bandaríkjahers í Guant-
anamo á Kúbu,
sem hafa verið
þar í haldi árum
saman. Varnar-
málaráðuneyti
Bandaríkjanna
skýrði frá því í
gær að málaferl-
in séu formlega
hafin.
Mennirnir
fimm eru grun-
aðir um að hafa
skipulagt hryðjuverkaárásirnar
á Bandaríkin 11. september árið
2001. Réttarhöldin fara fram
á Kúbu, þar sem dómnefndir á
vegum hersins munu kveða upp
úrskurð í málum fanganna. Sak-
borningarnir fimm eru Kha-
lid Sheikh Mohammed, Waleed
bin Attash, Ramzi Binalshibh,
Ali Abd al-Aziz Ali og Mustafa
Ahmad al-Hawsawi. - gb
Réttarhöld hefjast á Kúbu:
Fimm fangar
dregnir fyrir
dómnefndir
KHALID SHEIKH
MOHAMMED
KOSNINGAR Sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta
Íslands. Þóra tilkynnti um þetta á blaðamannafundi
í gær.
Þóra sagði þörf fyrir nýjan tón í samfélaginu þegar
hún greindi frá ákvörðun sinni innan um vini og
stuðningsfólks í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Hún sagði nóg komið af því að horfa um öxl og nú
væri réttast að einbeita sér að því sem sameinaði
þjóðina, en ekki því sem sundraði henni. Þar með ætti
þó ekki að sópa neinu undir teppið. „En við eigum að
bera virðingu fyrir sjónarmiðum annarra og virða
reglur rökræðna, hlusta og læra.“
Þóra kvaðst ekki sjá fyrir sér pólitískt forsetaemb-
ætti. Forsetinn hefði það hlutverk að vera málsvari
þjóðarinnar og öryggisventill. „Öryggisventill í neyð-
artilvikum,“ áréttaði hún.
Þóra mældist næst Ólafi Ragnari Grímssyni, sitj-
andi forseta, að vinsældum í könnun sem gerð var á
nokkrum mögulegum forsetaefnum fyrir skemmstu.
Hún bætist nú í hóp fimm annarra sem lýst hafa
yfir framboði; Ólafs, Herdísar Þorgeirsdóttur, Ást-
þórs Magnússonar, Jóns Lárussonar og Hannesar
Bjarnasonar.
Í Fréttablaðinu í dag má lesa viðtal við Þóru þar
sem hún ræðir ákvörðun sína, og jafnframt viðtal við
Herdísi. - sh / sjá síður 22 og 24
Fréttakonan Þóra Arnórsdóttir lýsir yfir framboði til embættis forseta Íslands:
Forsetaembættið ekki pólitískt
MIKIL FAGNAÐARLÆTI Fjöldi fólks var kominn saman til að
fagna ákvörðun Þóru, meðal annars Svavar Halldórsson, eigin-
maður hennar, og börn, sem sjást á bak við hana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FERÐALÖG „Við erum svo sem ekki
með meiri viðbúnað en vanalega
um páskahelgina, því við erum allt-
af tilbúin að fara af stað ef á þarf
að halda,“ segir Jónas Guðmunds-
son, verkefnisstjóri Safetravel hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Hann segir þó líklegt að líkt og
áður leggi marg-
ir land undir fót
um þessa helgi.
„En svo eru
sveitir okkar
líka margar á
ferðalögum um
páskana, þann-
ig að stundum
gætum við verið
nær en ella,“
bætir hann við
við. Hvað varðar
ferðaveðrið um helgina segir Jónas
bleytu í kortunum valda ákveðnum
áhyggjum. „Snjór er nú þegar far-
inn að blotna á hálendi og víðar,“
segir hann og bendir á að bæði
kunni fólki þá að vera hættara við
að festa bíla sína og eins sé mögu-
leiki á að snjóflóðahætta aukist á
vissum svæðum.
Jónas segir Landsbjörgu og
Safetravel hins vegar leggja mikla
áherslu á gildi fyrirbyggjandi
aðgerða. „Það eru þessi fjögur til
fimm atriði sem þarf að hafa í huga
áður en haldið er af stað.“
Í fyrsta lagi segir hann að kanna
þurfi aðstæður á áfangastað, þar
með talið veðurspá, og haga bún-
aði í samræmi við það. Síðan þurfi
líka að gæta að því að vera með
fjarskiptatæki sem virka. „Það ekki
hægt að reiða sig á farsímann ein-
göngu, á sumum svæðum þarf tal-
stöð eða gervihnattasíma, eða eitt-
hvað slíkt. Komi eitthvað upp á þarf
maður að geta kallað eftir aðstoð.“
Í þriðja lagi segir Jónas nauð-
synlegt að vera með réttan búnað
með sér og kunna að nota hann.
„Til dæmis má nefna fólk sem
ferðast á jökla, en það gera margir
um páskana. Fari svo að bíll missi
dekk í sprungu þá þarf maður að
geta fest sig við bílinn áður en út úr
honum er farið.“ Jónas segir nokk-
ur dæmi um banaslys þar sem fólk
hefur dottið í sprungur við slík-
ar aðstæður. „Ef dekk er komið í
sprungu, þá er ljóst að sprungur
eru á staðnum.“
Sömuleiðis segir Jónas nauðsyn-
legt að hafa með öryggisbúnað,
sjúkrabúnað, teppi og nesti. Hér sé
allra veðra von og fólk hafi jafnvel
lent í því að festast í bílum sínum
tímunum saman úti á þjóðvegi,
hvað þá í óbyggðum.
„Síðast en ekki síst er svo mjög
mikilvægt að skilja eftir ferða-
áætlun,“ segir Jónas og bendir á að
það megi gera á vefnum safetra-
vel.is. Liggi fyrir áætlun sé hægt
að koma í veg fyrir tímaeyðslu við
leit á röngum stað. olikr@frettabladid.is
Ein sprunga er vís-
bending um fleiri
Góður undirbúningur er lykilatriði til að tryggja öryggi ferðalanga. Bleyta í
veðurkortum helgarinnar veldur björgunarsveitum ákveðnum áhyggjum. Lands-
björg er ekki með sérstakan viðbúnað vegna páskanna. Sveitir eru ávallt til reiðu.
BJÖRGUN Í HEIÐMÖRK Hér getur á að líta útkall þegar kona féll ofan í fimm til
sex metra djúpa sprungu í Heiðmörk í marsbyrjun fyrir tveimur árum. Á vefnum
safetravel.is er að finna margvíslegar upplýsingar um hvernig haga beri ferðalögum
þannig að öryggi allra sé tryggt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JÓNAS
GUÐMUNDSSON
NÁTTÚRA Það að garðyglur, flökku-
fiðrildi frá meginlandi Evrópu, séu
óvenjusnemma hér á ferðinni þetta
árið þýðir ekki að nú vori fyrr en
alla jafna. Þetta er mat Erlings
Ólafssonar, skordýrafræðings.
Fréttir bárust af því í gær að
sést hefði til geitunga komnum á
stjá en Erling segir það alvanalegt
á þessum árstíma.
„Ég hef heyrt af svona þremur
eða fjórum núna,“ segir Erling.
„Þetta byrjar alltaf á einum og
einum í lok mars og byrjun apríl.
Svo kemur ekki gusa fyrr en um
miðjan maí. En það er alltaf ein-
hver sem rumskar og þarf að fara
fram úr að pissa.“
Sést hefur til garðyglanna í
umtalsverðum mæli frá því í lok
mars, sem þykir mjög óvenjulegt,
enda koma þær yfirleitt ekki fyrr
en á haustin og í minna mæli í
apríllok og byrjun maí. Nú hefur
hins vegar sést til garðyglu allt frá
Reykjavík til Hafnar í Hornafirði.
Erling segir að þetta megi lík-
lega skýra með tíðafari í Evr-
ópu, ekki á Íslandi. Fiðrildin hafi
hrakist suður fyrir Færeyjar og
ekki komið þar við á leið sinni til
Íslands. - sh
Snemmbúin fiðrildaheimsókn þýðir ekki að hér vori fyrr en venjulega:
Geitungarnir rumska til að pissa
GARÐYGLA Þessi fiðrildi eru algeng á
Íslandi að sumri og vori, en sjaldséð
jafnsnemma og nú. MYND/NÁTTÚRUSTOFNUN
DANMÖRK Radikale venstre,
flokkur frjálslyndra í Danmörku,
telur tímabært að lyfta banni við
því að flagga öðrum þjóðfánum
en þeim danska.
„Fánar eru bara tákn,“ sagði
Zenia Stampe, þingmaður
flokksins við TV2 í Danmörku.
Hún sagðist elska Danmörku
og danska þjóðfánann, en málið
snérist um tjáningarfrelsi.
Samkvæmt dönskum lögum á
aðeins að flagga danska fánanum
þar, með undantekningum þó.
Flagga má fánum Norðurlanda-
þjóðanna, Evrópusambandsfán-
anum og fána Sameinuðu þjóð-
anna án þess að fá sérstakt leyfi.
- þeb
Frjálslyndir vilja breyta:
Vilja leyfa aðra
fána en danska
BANDARÍKIN Fimm fyrrverandi
lögreglumenn í New Orleans
í Bandaríkjunum hlutu í gær
þunga fangelsisdóma fyrir að
skjóta óbreytta borgara í ringul-
reiðinni sem skapaðist í kjölfar
þess að fellibylurinn Katrín reið
yfir borgina í september 2005.
Mennirnir voru dæmdir fyrir
samtals 25 brot, meðal annars að
skjóta fertugan mann og sautján
ára pilt til bana, og særa fjóra úr
fjölskyldu þess síðarnefnda.
Einn hlaut 65 ára fangelsisdóm,
tveir 40 ára og tveir sex ára. - sh
65 ár fyrir morð eftir Katrínu:
Lögreglumenn
fá þunga dóma
Fari svo að bíll missi
dekk í sprungu þá
þarf maður að geta fest sig
við bílinn.
JÓNAS GUÐMUNDSSON
VERKEFNISSTJÓRI SAFETRAVEL.IS
TÆKNI Á bilinu fimm til sex pró-
sent af Facebook-síðum sem
stofnaðar hafa verið eru falskar
og ekki með raunverulegan not-
enda að baki sér. Það þýðir að 40
til 50 milljónir sigla undir fölsku
flaggi á samskiptasíðunni.
Fram kemur í nýjasta eintaki
Vírsins, fréttabréfi áhættuþjón-
ustu Deloitte, að margar af þess-
um fölsku síðum séu notaðar til
að smita aðra notendur af óværu,
svindla út fjármuni og reyna að
stela viðkvæmum persónuupp-
lýsingum.
Notendur eru varaðir við því
að samþykkja torkennilegar vina-
beiðnir og smella á undarlega
hlekki sem berast frá öðrum not-
endum. - bj
Vafasamir Facebook-notendur:
Milljónir falskra
á Facebook
EYTT Um 20 þúsund fölskum Facebook-
notendum er eytt daglega, en það er
aðeins dropi í hafið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP