Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2012, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.04.2012, Qupperneq 8
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR8 Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Land- verndar, tekur undir orð Svandísar varðandi jarð- varmann. Hann bendir á að áætlanir um mögulega orku frá slíkum svæðum séu byggðar á tölum frá orkufyrirtækjunum sjálfum. Þau hafi því talað jarð- hitann upp með glannalegum spám. „En það er gott að orkufyrirtækin séu loksins farin að tala um jarðvarmann af einhverri alvöru eins og Hörður gerir nú. Orð hans undirstrika bara hversu óskynsamlegt það er að ætla sér að beisla jarðvarma fyrir stóriðju.“ Guðmundur segir nauðsynlegt að horfast í augu við það að búið sé að klára hagkvæmustu kostina fyrir nýtingu vatnsafls. Orkufyrirtækin séu því farin að leita fyrir sér í byggð með virkjanir. „Þannig að af raunhæfum kostum í nýtingu vatnsafls eru fáir eftir. Þess vegna kemur það ekki á óvart að fáir slíkir kostir rati í virkjana- flokk rammaáætlunar.“ Orkufyrirtækin sjálf að ofmeta Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Grill í Múrbúðinni – skoðaðu verðið! Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum GAS GRILL 4 ryðfríir brennarar og hliðarplata. 14 kw/h. 48.000-BTU. Hitamælir. Kveikja í stillihnapp. Grillgrind er postulíns- húðuð. 44x56 cm. Extra sterk hjól v.gaskút. Þrýstijafnari og slöngur fylgja. 59.900kr. Útboð á lax og silungsveiði í Gljúfurá í Húnaþingi. Veiðifélög Gljúfurár og Víðidalsár óska hér með eftir tilboðum í lax- og silungsveiði í Gljúfurá í Húnaþingi fyrir árin 2013 til 2016, að báðum árum meðtöldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum. Eingöngu er heimil fluguveiði. Leyfð er veiði á tvær stangir, veiðitími er 1.júlí til 20. september. Útboðsgögn verða afhent frá 4. april á skrifstofu Bændasamtaka Íslands Bændahölinni við Hagatorg sími 5630300 og hjá formanni Veiðifélags Gljúfurár. Tilboðum skal skila til formanns Veiðifélags Gljúfurár Birgis Ingþórs- sonar Uppsölum 541 Blönduós merkt útboð Gljúfurá Húnaþingi fyrir kl 13.00 mánudaginn 30. apríl 2012. Verða tilboðin opnuð sama dag kl 14.00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska í veiðihúsinu Gljúfurholti. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Formaður Veiðifélags Gljúfurár Birgir Ingþórsson Þer alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel Hemmi Gunn – og svaraðu nú! Fjölbreyttur og fjörugur þáttur UMHVERFISMÁL Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra segir ekki undarlegt að saxist á mögu- leika til vatnsaflsvirkjana hér á landi. Tveir þriðju hlutar kost- anna séu þegar nýttir. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, sagði við Fréttablaðið í gær að sérkennilegt væri að ekki væri gert ráð fyrir vatns- aflsvirkjunum svo heitið gæti í Rammaáætl- un um vernd og nýtingu nátt- úrusvæða. „Ramma- áætlun er ekki hugsuð sem hlaðborð fyrir orkufyrirtækin. Hún er tillaga um nýtingu lands- svæða á grundvelli faglegra upplýsinga og þekkingar,“ segir Svandís. Hún fagnar orðum Harðar um að jarðvarmann verði að nýta í skrefum. „Það er mikilvægt að Landsvirkjun, eins og aðrir nýtingaraðilar, skipi sér í sveit með þeim sem hafa efasemdir um að jarðvarmavirkjanir séu eins fljótlegur kostur og menn hafa viljað vera láta til skamms tíma. Það er rétt hjá honum að Segir að vatnsaflið sé að mestu fullnýtt Umhverfisráðherra segir orð forstjóra Landsvirkjunar sýna að vatnsafl sé að mestu leyti fullvirkjað hér á landi. Fagnar viðurkenningu fyrirtækisins á því að jarðvarmavinnsla taki tíma. Vonast til að Rammaáætlun verði samþykkt í vor. URRIÐAFOSS Á meðal þeirra virkjanakosta sem færðust úr nýtingar- í biðflokk í vinnu við þingsályktunartillögu um Rammaáætlun eru þrjár virkjanir í Þjórsá. Urriðafossvirkjun er ein þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR GUÐMUNDUR HÖRÐUR GUÐ- MUNDSSON SÝRLAND, AP „Jafnvel þótt þeir útveguðu sýrlensku uppreisnar- mönnunum fullkomnasta vopna- búnað gætu þeir ekki sigrast á sýrlenska hernum,“ segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands, um stuðning Vesturlanda og arabaríkja við uppreisnina í Sýrlandi. „Blóðbaðið mun standa í mörg ár,“ bætti hann við. Rússar hafa staðið gegn öllum hugmyndum um að styðja stjórn- arandstöðuna í Sýrlandi með því að útvega henni vopn. Vesturlönd hafa ekki heldur stutt þær hug- myndir, en bæði Sádi-Arabía og Katar hafa talað fyrir því. Um síðustu helgi samþykktu Vesturlönd engu að síður stofn- un sjóðs, sem notaður yrði til að styrkja stjórnarandstöðuna í Sýr- landi, þótt það fé verði ekki notað til að útvega henni vopn. Átökin í Sýrlandi héldu áfram í dag, meðal annars í borginni Homs þar sem á annan tug almennra borgara féllu í árásum stjórnar- hersins. Sýrlenska stjórnin hefur lofað því að kalla herlið sitt til baka frá borgum landsins fyrir 10. apríl, en uppreisnarmenn telja hana ætla að nota svigrúmið til að vinna endan- legan sigur. - gb Rússar segja uppreisnina í Sýrlandi ekki eiga möguleika gegn stjórnarhernum: Blóðbað stæði árum saman HJÁLPARGÖGN TIL SÝRLANDS Starfs- menn Rauða hálfmánans taka á móti hjálpargögnum í borginni Daraa, þar sem uppreisnin hófst. NORDICPHOTOS/AFP rannsaka beri þessa kosti mjög vel, meðal annars með tilliti til sjálfbærni auðlindarinnar og líka þeirra hliðarverkana sem af slíkri nýtingu hljótast, eins og til að mynda brennisteinsáhrifa og jarðskjálftavirkni.“ Svandís segist ósammála Herði um að nægar rannsóknir hafi farið fram varðandi laxastofna í Þjórsá. „Við teljum að rýna þurfi í þessi mál miklu betur og höfum fengið fjölmargar ábendingar þar um. Í anda Árósasamningsins viljum við láta umhverfið njóta vafans og skoða málið betur.“ Umhverfisráðherra vonast til að mælt verði fyrir þingsályktunar- tillögu um Rammaáætlun fljótlega eftir páska. Mikilvægt sé að hefja nánari úrvinnslu bæði hvað varðar nýtingu svæða en einnig þar sem þarf að friðlýsa. Hún vonsast til að áætlunin verði samþykkt í vor. „Ég minni hins vegar á að þetta er ekki áætlun um hvað á að nýta heldur um hvað má nýta.“ kolbeinn@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.