Fréttablaðið - 05.04.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 05.04.2012, Síða 12
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR12 12 FÉKK JARÐARBERJAKÖKU Þessi hvítabjörn í þýskum dýragarði fékk að gæða sér á klakaköku með jarðar- berjum. NORDICPHOTOS/AFP SERBÍA, AP Boris Tadic, forseti Serbíu, sagði af sér í gær svo hægt verði að hraða forsetakosningum, þar sem hann mun etja kappi við Tomislav Nikolic. Tadic er Evrópusinni en Nikolic þjóðernissinni. Þeir hafa tvisvar áður tekist á í forsetakosning- um, og í bæði skiptin hefur Tadic naumlega borið sigur úr býtum. Væntanlega munu fleiri bjóða sig fram, þótt almennt sé ekki búist við að aðrir en Tadic og Nikolic eigi raunverulega möguleika á sigri. Búist er við því að forseti serb- neska þjóðþingsins muni nú boða til forsetakosninga þann 6. maí næstkomandi, sama dag og kosið verður bæði til þings og sveitar- stjórna. Hljóti enginn frambjóð- enda helming atkvæða þá verður efnt til seinni umferðar kosning- anna, þar sem kosið verður á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hljóta í fyrri umferðinni. Tadic hefur unnið hörðum hönd- um að því að þoka Serbíu í áttina að Evrópusambandinu, en segir að nú þurfi kjósendur að taka afstöðu. „Ég býð upp á leið evrópsks sam- runa og vörn fyrir einingu lands- ins,“ sagði Tadic þegar hann til- kynnti um uppsögn sína. „Ég býð mig fram með bjartsýni að leiðar- ljósi vegna þeirrar jákvæðu þróun- ar sem verið hefur í landinu okkar.“ Kjörtímabil Tadic átti ekki að renna út fyrr en snemma á næsta ári, en hann hefur greinilega ákveð- ið að veðja á að forsetakosningar nú, á sama tíma og þingkosningar, geti hjálpað stjórnmálaflokki hans, Lýð- ræðisflokknum, sem hefur dalað í skoðanakönnunum undanfarið. Serbneski framfaraflokkurinn, sem er þjóðernissinnaflokkur mót- frambjóðandans Nikolic, hefur á hinn bóginn unnið á í skoðanakönn- unum. Nikolic segist bjartsýnn á að vinna sigur í forsetakosningunum í maí. Lýðræðisflokki Tadic er kennt um alvarlegan efnahagsvanda og erfitt ástand margra hópa í samfélaginu af þeim sökum. Þjóðernissinnar segjast einnig sannfærðir um að Tadic og Lýðræðisflokkurinn ætli að fórna Kosovo fyrir hugsanlega aðild að Evrópusambandinu síðar meir. Kosovohérað lýsti yfir sjálf- stæði árið 2008 eftir langvarandi átök Serba og Kosovo-Albana, sem nú eru í miklum meirihluta íbúa Kosovo þótt Serbar hafi áður verið meirihluti íbúa þar. Tadic tók hins vegar fram, þegar hann tilkynnti um afsögn sína: „Ég mun aldrei viðurkenna Kosovo.“ gudsteinn@frettabladid.is Boris Tadic reynir að flýta uppgjöri Forseti Serbíu hefur sagt af sér svo hægt verði að efna til forsetakosninga í maí, samhliða þingkosningum. Flokki hans er kennt um efnahagsvanda og þjóðernis sinnar óttast að Tadic muni fórna Kosovo fyrir Evrópusambandsaðild. FORSETI SERBÍU Boris Tadic segist aldrei munu viðurkenna sjálfstæði Kosovo. NORDICPHOTOS/AFP Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? OPIÐ Í DAG SKÍRDAG KL.10 -16 Á KLETTHÁLSI Hjólbörur 75L 4.490,- 1400W, 360 min/ lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki, sápubox Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 14.900,- Álstigi 3x8 þrep 2.27-5.05 m 18.990,- ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 lítrar 4.290,- Blákorn 5 kg 1.290,- Kalkkorn 5 kg 699,- Turbokalk 12,5 kg 2.690,- Flúðamold 20 l 590,- Malarhrífa 1.390,- 1.290,- 1.290,- Mako sterkir ruslapokar 120 lítrar 10stk 390,- Undirritaðar umsóknir skulu berast sjóðnum á þar til gerðum eyðublöðum í þríriti ásamt fylgigögnum fyrir miðnætti hinn 21.apríl 2012 merktar „Tónskáldasjóður Rásar 2“ c/o STEF, Laufásvegi 40, 101 Reykjavík. Tónskáldasjóður Rásar 2 Umsóknareyðublöð má fá heimasíðu STEFs. Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur SAMGÖNGUR Enginn akstur verður hjá Strætó á föstudaginn langa og páskadag. Fyrirkomulagið hjá Strætó er eins og undanfarin ár um páska. Í dag, skírdag, er strætisvögnum ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Á laugardag verður ekið sam- kvæmt venjulegri laugardagsáætlun og á annan í páskum verður ekið eftir sunnudagsáætlun á ný. Strætó vill vekja athygli farþega með Herjólfi á því að á föstudaginn langa og páskadag verður fyrri ferð til Þorlákshafnar farin klukkan 9.45 frá BSÍ og frá Mjódd klukkan 10. Það verður eina ferðin þann dag. Nánari upplýsingar um ferðir strætisvagna má nálgast í þjónustusíma Strætó, 540-2700, og á heimasíðunni strætó.is. - þeb Strætó keyrir samkvæmt sunnudagsáætlun í dag og á annan í páskum: Ekki ekið föstudag og sunnudag STRÆTÓ Þrátt fyrir að strætisvagnar verði ekki í umferð á föstudaginn langa og páskadag verður farin ferð til Þorláks- hafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SAMGÖNGUR Rúmlega fjórðungi fleiri ferðamenn fóru frá landinu í nýliðnum marsmánuði en í sama mánuði í fyrra og hafa aldrei verið jafnmargir. Þetta kemur fram í nýjum talningum Ferðamálastofu. Mælingar Ferðamálastofu á brottförum hófust fyrir ell- efu árum. Síðan þá hefur fjöldi erlendra ferðamanna í mars rúm- lega tvöfaldast. Að meðaltali hefur aukningin verið um 7,9 prósent á ári en var nú 26,2 prósent milli ára. Flestir ferðamannanna komu frá Bretlandi, eða 27 prósent. Næst- flestir voru Bandaríkjamenn, rúm- lega þrettán prósent. Norðmenn, Danir og Þjóðverjar komu næst þar á eftir. Frá áramótum hafa rúmlega tuttugu prósentum fleiri ferða- menn farið frá landinu en á sama tímabili í fyrra, eða 87.658 ferða- menn. Ríflega 50 prósentum fleiri Bret- ar komu hingað til lands á fyrstu þremur mánuðum ársins en á síð- asta ári og um fjórðungi fleiri frá Norður-Ameríku. Norðurlandabú- ar voru sex prósentum fleiri nú en í fyrra en Mið- og Suður-Evrópu- búum fækkaði milli ára. - þeb Tæplega 30 þúsund ferðamenn í marsmánuði og 90 þúsund frá áramótum: Aldrei fleiri ferðamenn í mars LEIFSSTÖÐ Ferðamálastofa hefur fylgst með brottförum ferðamanna síðustu ellefu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG HEILBRIGÐISMÁL Inflúensan er í rénun, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Far- aldurinn var mjög svipaður og í fyrra og náði hámarki í febrúar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hafa öll stað- fest tilfelli af inflúensu í vetur verið inflúensa A(H3). Enginn hefur smitast af inflúensu B eða svínainflúensu. Þá hefur töluvert greinst af RS-veiru í börnum. Nánast engar aðrar öndunar- færaveirur hafa greinst undan- farið. - þeb Inflúensan er í rénun: Enginn með svínainflúensu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.