Fréttablaðið - 05.04.2012, Side 28

Fréttablaðið - 05.04.2012, Side 28
FÓLK|TÍSKA Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is FULL BÚÐ af flottum fötum fyrir flottar konur Gleðilega páska FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 Næstu föstudaga verða birtar hér uppskriftir af uppáhalds-pitsu hinna ýmsu matgæðinga. Ýmsar útgáfur munu líta dagsins ljós og hugmyndaflugið fær að njóta sín. Pitsurnar eiga það sameiginlegt að vera gerðar úr Wewalka-pitsudeigi. Steingrímur Sigurgeirsson matgæðingur skoraði á Halldóru Traustadóttur, forstöðumann á viðskiptasviði Íslandsbanka, að gefa lesendum uppskrift að uppáhaldspitsunni sinni sem kemur hér. PITSA MEÐ KARTÖFLUM RÓSMARÍN, KAPERS OG RJÓMAOSTI SKORAR Á AÐALSTEIN GÓÐGÆTI KYNNIR Wewalka pitsudeig er hægt að útbúa á margvíslegan hátt. 1 Wewalka xxl, hvítur botn Grænt pestó Rifinn ostur Kartöflur Laukur Rósmarín Maldon-salt Ólífuolía Kapers Rjómaostur Afhýðið bökunar- kartöflu og skerið með ostaskera í þunnar sneiðar. Sneiðið lauk þannig að þið hafið heila hringi. Setjið í skál ásamt góðri ólífuolíu og slatta af rósmaríni. Bragðbætið með Maldon-salti. Þekið botninn með grænu pestói. Stráið rifnum osti yfir. Raðið kartöflusneiðum, lauk og rósmaríni ofan á pestóið og ostinn. Dreifið kapers yfir og að lokum rjómaosti. Bakið við 200°C í 15-20 mínútur. Ég skora á Aðalstein Leifsson, lekt- or við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, að deila með lesendum uppáhaldspitsunni í næstu viku. PITSUÁSKORUN GÓÐ PITSA Halldóra Trausta- dóttir með eftirlætispitsuna sína. ■ LÚXUSVARA FRÁ FORD Bandaríski tískuhönnuðurinn Tom Ford setur nýja lúxus gleraugnalínu á markað í næsta mánuði. Hönnunin tekur mið af tísku sjötta áratugarins og eru ætluð bæði körlum og konum. Gleraugun munu kosta um 380.000 krónur sem gera þau tíu sinnum dýrari en gleraugu margra sam- bærilegra hönnuða. Himinhátt verð gler- augnanna skýrist af því að þau eru meðal annars búin til úr hornum vatnabuffalóa og gulli. Hönnuðurinn segir að hugmyndin að hönnun gleraugnanna sé sprottin úr tímalausum glæsileika sjötta áratugar- ins. Það sem einkenni þau sé bæði úrvals hönnun og hágæða efni og eru þau, að hans sögn, með betri gleraugum sem komið hafa frá hönnunarhúsi hans. Gleraugun verða seld í sérhönnuðu leðurboxi, þeim fylgir upprunavottorð og sérstakt hreinsikrem. Þau verða seld í verslunum Tom Ford í Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og Ástralíu og sérvöldum verslunum víða um heim. RÁNDÝR GLERAUGU Á MARKAÐ NÝJASTA TÍSKA Í AMER- ICAN IDOL Tískuhönnuðurinn Tommy Hilfiger var fenginn til að að- stoða keppendur í American Idol með fataval. Hann segist vera ráðgefandi og koma með hugmyndir en krakkarnir ráði því hvort þau fari eftir þeim ráðum. Keppendur klæðast nýjustu fatalínu hans svo framarlega sem þau kjósa svo. „Ég vil efla sjálfsvitund þeirra á sviðinu og gera þau örugg- ari,“ segir Hilfiger. „Sjálfsör- yggi og útlit skiptir miklu máli í svona keppni,“ bætir hann við. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að leiðbeina þessu unga fólki. Ég hef alltaf haft áhuga á tísku unga fólksins,“ segir Hilfiger en fatnaður hans er vinsæll um allan heim. Hann þykir sportlegur en þó með klassísku yfirbragði. Hilfiger, sem er Bandaríkjamaður, þykir hafa tekið amerískan hvers- dagsklæðnað og gert hann smart. American Idol keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 2002. Framleiðendur vonast til að hún fái nýjan innblástur varðandi tísku og útlit nú þeg- ar svo frægur hönnuður vinnur með keppendum. Áhorfendur fá að kynnast nýjustu tísku um leið og þeir hlýða á söngvar- ana. Talið er að 16 til 20 millj- ónir manna horfi á hvern þátt. Hilfiger er ánægður að vera í liði með Jennifer Lopez, Randy Jackson, Steven Tyler og Ryan Seacrest en hann hefur einnig áhrif á fatnað þeirra í þátt- unum. Hilfiger hefur starfað mikið með tónlistarmönnum í gegnum tíðina. Hann hefur unnið með Rolling Stones, Lenny Kravitz, David Bowie, Britney Spears, Beyonce og Taylor Swift svo einhverjir séu nefndir. MYND/GVA Ögurhvarf 2 - 203 Kópavogur GSM: 824-3900 thrudmar@pkarlsson www.pkarlsson.is www.lmc.is Frumsýnum 2012 LMC hjólhýsi ferðavagna í Þrastalundi um páskana Föstudaginn langa Laugardaginn Páskadag Reiki Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK FYRIR BÆTTA LÍÐAN OG BETRI STJÓRN Á LÍFI ÞÍNU Guðrún Óladóttir reikimeistari og hómópati II. stig kvöldnámskeið 16.–18. apríl I. stig helgarnámskeið 21.–22. apríl Pantanir í síma 553 3934, milli kl. 10 og 13 virka daga. Kvöld- og helgarnámskeið í boði, næstu námskeið eru: Pantanir óskast staðfestar. QI Stephen Fry fer á kostum í skemmtilegum þáttum BBC ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.