Fréttablaðið - 05.04.2012, Page 48

Fréttablaðið - 05.04.2012, Page 48
5. apríl 2012 FIMMTUDAGUR28 STEFÁN: Frábær sýning og fallega stíliseruð. Einfaldleiki einkennir hönn- unina en samt náði hún algjörlega að standa upp úr. LINDA: Ein af bestu sýningunum. Klassísk í stíl og lögð áhersla á einfaldleika og gæði. Ein besta markaðsvaran á RFF og hef ég mikla trú á henni á erlendum mörkuðum. STEFÁN: Sýningin týndist smá í stíliseringunni og ég held að Birna eigi meira inni en það sem hún sýndi á RFF í ár. LINDA: Versta sýning RFF. Allt yfir- bragð sýningarinnar var alveg sérlega ósmekklegt. Fatalínan sjálf var ekki nógu vel gerð eða heilsteypt. STEFÁN: Mjög flott, klæðileg föt og mjög sterk sýning. Tónlistin og stíliseringin héldu vel utan um línuna sem var í senn töffaraleg og kvenleg. Hlakka til að fylgjast með henni. LINDA: Ein af bestu sýningunum. Fötin voru vel gerð og falleg, línan heilsteypt og framsetningin mjög skemmtileg. STEFÁN: Mundi hefur þroskast mjög mikið og sést það best á flottum sniðum og efnum. Mjög fjölbreytt lína sem ég trúi að falli í kramið hjá breiðum hópi. LINDA: Mynstraðar prjónaflíkur settu sterkan svip á línuna. Línan var heil- steypt, vel gerð og var gaman að sjá vandaðar yfirhafnir og úlpur. STEFÁN: Afskaplega litríkt og mjög í anda Mary Katrantzou. Hefði viljað sjá mun einfaldari stíliseringu. LINDA: Línan var vel gerð og á eflaust eftir að seljast vel. Makeup og hár settu sterkan svip á heildarmyndina. Á einhverjum tímapunti fannst mér aðeins of mikið af endurtekningum á sama forminu en þetta var fallegt og vel gert. STEFÁN: Það verður gaman að fylgjast með þessu merki í fram- tíðinni. Krúttlegt, flottir skór og góð tónlist. Notaði liti og munstur vel en hefði viljað sjá meira. LINDA: Falleg, heilsteypt og krúttleg lína sem var vel gerð og á eftir að gera það gott. Efni, litir og snið voru vel valin og fagmennska í fyrirrúmi. STEFÁN: Gaman að sjá meiri dýpt og fjölbreytni. Guðmundur er með putt- ana á púlsinum í sambandi við efni og litasamsetningu. Herrafatnaður á heimsmælikvarða. LINDA: Skemmtileg sýning. Áhersla á klassískan breskan karlmannsfatnað. Misgóð föt en línan skapaði sterka heild. Val fyrirsætna setti sterkan svip á sýninguna og lak karlmennskan af þeim. STEFÁN: Ofsalega falleg lína. Róman- tísk á mjög töffaralegan hátt. Litir og snið einföld en afskaplega klæðileg. Söluvænlegt sem ég kann vel við. LINDA: Línan var nokkuð heilsteypt og vel gerð. Mér fannst framsetning sýningarinnar ekki heppnast alveg eins og búast mætti við. Það hafði eitthvað að gera með að stílisering, förðun, módel og tónlist voru ekki að ganga alveg saman. STEFÁN: Ég hugsa alltaf svo praktískt svo ég hefði viljað sjá meira af klæði- legum fötum. Get vel séð fatnaðinn á sýningunni blandast saman við hefðbundinn fatnað. LINDA: Það var mikil gleði og orka í sýningu Hildar Yeoman. Mig vantaði að sjá meira af vel gerðum flíkum og minna af flíkum sem eru ekki hæfar í framleiðslu. STEFÁN: Harpa er snillingur í að teikna og það er gaman að sjá það koma fram í flíkunum. Hefði viljað aðeins fjölbreyttari sýningu. LINDA: Fötin voru vel útfærð en öll svört og mynduðu mismunandi áferðir efnanna grafík og form. Fötin ásamt stíliseringu og makeupi voru á mörkunum að vera búningar en það er mikilvægt í tískuhönnun að gera sér grein fyrir hvar mörkin liggja. STEFÁN: Mjög falleg og klassísk lína. Vel sniðnar flíkur og kvenleg snið. Ég hefði verið til í að sjá meiri liti en hún bætir upp fyrir það með litríkri sumarlínu. LINDA: Falleg og klæðileg lína sem var bæði nútímaleg og þægileg. Efni voru vönduð og snið vel gerð, línan hefur heildarstíl og er góð markaðs- vara. ■ ELLA ■ MUNDI ■ BIRNA ■ ÝR■ KRON BY KRONKRON ■ KALDA■ HILDUR YEOMAN ■ REY ■ MILLA SNORRADÓTTIR ■ ZIZKA■ KORMÁKUR OG SKJÖLDUR Fjölbreytt flóra á RFF Álfrún Pálsdóttir fékk þau Lindu Björgu Árnadóttur, fagstjóra í fatahönnun hjá LHÍ, og Stefán Svan Aðalheiðarson, innkaupastjóra hjá Sævari Karli, til að rýna í sýningar Reykjavík Fashion Festival. M YN D IR /F R IÐ R IK Ö R N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.