Heimilisritið - 01.09.1945, Síða 9

Heimilisritið - 01.09.1945, Síða 9
einn af mestu framfaramönnum sveitarinnar. „Þú ætlar vænti ég ekki að sprengja steininn þann arna?“ spurði Sigurður allt í einu. „Eg hafði hugsað mér að gera það á morgun“. „Eg veit ekki hvernig því er varið“, sagði Sigurður, „að mér stendur stuggur af þessum sprengingum þínum; ekki vegna þess, að ég sjái eftir steinunum, þeir eru sízt til prýði, en alda- gamlar þjóðsögur eru bundnar við þessa steina. Hvað á nú að verða af þessum sögum, sem fylgt hafa ætt þinni mann fram af manni? Hvort sem álfamir em til eða ekki, og á það legg ég satt að segja lítinn trúnað, þá gerirðu gömlu þjóðsögumar um þá heimildarlausar með þessu háttal'agi þínu“. „Þú gleymir víst, Sigurður minn, að ég hef lítið landrými í kringum bæinn, svo mér er nauðugur einn kostur að sprengja steinana", sagði Am- finnur. „Þú verður nú ekki feitur, Amfinnur minn, af þeim ílu- stráum, sem þér tekst að rækta á rústum álfabústaðanna“, mælti Sigurður með góðlátlegu brosi, „en ef þú vilt, skal ég hjálpa þér um dálítinn lands- skika héma á milli bæjanna. Þar eru ræktunarskilyrði betri en hér, og ef þú getur gert akveg heim að bænum, er heyfengnum auðkomið heim í garð“. „Vel er þetta boðið, Sigurður minn“, sagði Arnfinnur, „og kann ég þér beztu þakkir fyrir. Þegar þú komst var ég einmitt að hugsa um að leiðinlegt væri að þurfa að hrella mömmu gömlu með þessum sprenging- um“. „Mér skilst þá, að þú ætlir að hætta þeim“, mælti Sigurð- ur. „Eg vil ekki letja þig til framkvæmda, síður en svo, land vort þarfnast einmitt framikvæmda á sem flestum sviðum, en við verðum bara að haga framkvæmdunum þannig, að þær leggi ekki í rústir göm- ul verðmæti, hvort sem þau eru áþreifanleg eða ekki. Þjóðsög- urnar um álfana eru óáþreifan- leg verðmæti, en mér finnst samt, að þú ættir ekki að byggja þeim út úr jörð þinni“. Bændumir höfðu í lok sam- talsins gengið í áttina til bæj- arins. Nú staðnæmdust þeir á hlaðinu. Þá mælti Amfinnur. „Jæja, Sigurður minn, það gleður mig að eiga þig að vini og nábúa. Nú er vist bezt, að ég gleðji móður mína með að segja henni, að þú hafir bjargað álfa- kirkjunni frá eyðileggingu“. ENDiR HEIMILISRITIÐ 7

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.