Heimilisritið - 01.09.1945, Blaðsíða 32
Ástin er eins og loginn —
hún brennir í burtu allan sora.
Mme. Clemence Robert.
Ástin er dropi úr þeirri guð-
legu ódáinsveig, sem himinn
lætur drjúpa í bikar lífsins, til
þess að draga úr beiskju hans.
Rochester.
Ein ástanótt getur breytt
syndugum manni í guðlega
veru.
Properce.
Vináttan er langminnug, ást-
in gleymin.
Comtesse Diana.
Maður getur elskað oftar en
einu sinni, en ekki sömu
persónuna. , , .
Levis.
Þegar „hún“ klípur þig í eyr-
að eða strýkur hár þitt með
nettu og mjúku höndunum sín-
um — ef til vill snerta varir
þínar nakta, íturfagra öxl henn-
ar í kossi — þá hverfa öll þín
hversdagslegu áhugamál í djúp
gleymskunnar.
H. G. Wells.
Ástin fer ekki í manngreinar-
álit frekar en dauðinn.
Raynal.
Geti maðurinn ekki fyrirgefið
konu ástarbrot, elskar hann
hana.
Campoamor.
Hjartað hefur einkennilega
sterka löngun til þess að kaupa
hæsta yerði það sem fánýtast
er.
Balzac.
Vizka allra alda og auður al-
heimsins er fánýti eitt á móts
við einlægan ástarkoss.
Rita.
Ef ást mætir mótspyrnu
eykst bál hennar, en kulnar út,
ef allt fer að óskum.
Dorat.
Himnaríki er allstaðar þar
sem ástin býr.
Jean Paul Richter.
Sá sem ekki hefur kynnst
hamingju hreinnar ástar hefur
heldur ekki kynnst þeim un-
aðsgjöfum, sem konan getnr
gefið.
Young.
Að elska er að helga líf sitt
varðveizlu komandi kynslóða,
að ala í sál sinni fræ ódauðleik-
ans, gera eilífðina að öreind
tímans, og lifa tugi alda á einu
andartaki.
Virey.
Ljóshærð stúlka vekur ástir,
en dökkhærð stúlka ástríður.
Maður reynir öllu fremur að
sigra þá síðarnefndu heldur en
að þóknast henni.
H. Rowland.
so
HEIMILISRITIÐ