Heimilisritið - 01.09.1945, Side 14

Heimilisritið - 01.09.1945, Side 14
undanlátssemi, drengur minn — þú ert svo ungur ennþá. En ef þér leiðist þá skaltu muna það að við bíðum eftir þér“. í Akron fóru piltarrýr að vinna, fyrst í hjólbarðaverk- smiðju, og á kvöldin sótti Clark undirbúningsnámskeið undir upptökupróf í læknadeild há- skólans. Hann var ákveðinn í því að verða læknir. „Aðallega“, sagði hann við Andy, „vegna þess, að ef ég verð læknir, þarf ég ekki að fást við búskap“. Ef læknisfræði hefði verið æðsta hugsjón hans, hefði hann orðið læknir. En læknisfræðin var einna helst bráðabirgðaúr- ræði, sem hann leitaði til, svo að hann gæti fengið átyllu til að komast úr sveitavinnunni. Það var ekkert, sem hann hafði brennandi löngun til að gera.... Það er að segj'a, þangað til hann sá sjónleik í fyrsta sinn. Sunnudagskvöldin voru einu fríkvöldin hans. Leikritið „Para- dísarfuglinn" gekk um þessar mundir í einu leikhúsi borgar- innar. Andy ætlaði að fara þangað ásamt nokkrum kunn- ingjum sínum. Cl'ark slóst í förina. Hann hefur aldrei getað skýrt frá þvi, hvað gerðist þetta kvöld, en svo mikið er vist, að þá fékk líf hans nýjan tilgang. Sveitastrákur að uppeldi og arfi, algerlega fjarskyldum leiklist, fór út úr leikhúsinu ákveðinn í þvá að verða leikari. Hann gleymdi gúmverksmiðjunnL Hann sat á hverju kvöldi á á- horfendasvölunum, og á daginn sveimaði hann fyrir framan bakdyr leikhússins, og loksins fékk hann áheym hjá góðhjört- uðum leikara, sem lofaði hon- um að koma inn með sér. „Mig vantar atvinnu", sagði hann við leikhússtjórann. „Sama hvað er“. Leikhússtjórinn kunni tökin á unglingum, sem vildu æstir verða leikarar. „Okkur vantar kallara, en við getum ekkert borgað í kaup. Þú getur fengið að sofa í einhverju búningsher- berginu“. Clark hafði ekkert við það að athuga. Hví skyldi hann fá borgað fyrir að fá aðgang að paradís? Hann stóð vel í stöðu sinni við að kalla á leikarana. þegar þeir áttu að fara fram á leiksviðið. Þeir vom alltaf til- búnir nógu snemma, jafnvel þótt hann þyrfti að festa á þá tölur eða hjálpa þeim annað. í staðinn fyrir greiðasemi hans sáu þeir um að hann hefði eitt- hvað að borða. Heima 1 Ravenna sagði faðir hans: „Strákurinn er orðin vit- laus“. En hann gat ekkert að- gert, því að hann var svo langt 12 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.