Heimilisritið - 01.09.1945, Page 29

Heimilisritið - 01.09.1945, Page 29
ÖRÐSPEKI um ástina Úr „Sjafnarmálum“ eða „Bókinni um konuna og ástina“ öðru nafni, sem koma mun út á næstunni. Varir konunnar eru hið und- urfagra hlið að aldingarði sálar hennar. G. B. Burgin. Meðaumkun konunnar getur hæglega breyzt í ást, og ást karlmannsins í meðaumkun. Churton Collins. Hverri einustu konu er með- fædd sérþekking í ástum. Flest- ir karlmenn eru viðvaningar í þeirri grein alla sína ævi. Edwin Pugh. Vei þeim, sem tjáir hug sinn allan í ást eða list. Balzac. Oftast mun svo varið ástum, að annar aðilinn elskar, en hinn lætur sér nægja að vera elskað- ur. Sjálfselskan kemur þeim síðamefnda í stað endurgjald- andi ástar. Saint Prosper. ar hún tekur blíðuatlotum þess manns, sem hún elskar. Nær- vera elskhugans er okkur kon- unum hættulegra en nokkuð annað. Æsingin, sem tekur hug hans allan, hin heita eftirvænt- ing, sem hann fær ekki dulið, örva og trylla kendir okkar. Hringiða ástríðunnar hrífur okkur með sér, fyr en varir þrýtur okkur alla vörn og við lútum því, sem við mótmælum mest — en sem við samt í innstu hugarleyndum látum okkur harla vel líka. Ninon de Lenclos. Kona, sem glatar stjóm á tilfinningum sínum og tungu, í nærveru þess manns, sem hún vill laða til ástar, hlýtur að bíða lægri hlut í leiknum. Hinsvegar er flestum karlmönnum gjamt að láta hljóða, hófstillta ástúð blekkja sig. Nietzche. Sú kona teflir djarft, sem treystir viljastyrk sínum, þeg- Vinátta er ófleyg ást. Byron lávarður. HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.