Heimilisritið - 01.05.1947, Síða 36

Heimilisritið - 01.05.1947, Síða 36
ég er enginn strákur, Helen — það vona ég, að ég sé ekki lengur. Get- urðu fyrigefið mér? Það var eins og gráthljómur í röddinni. — Það er bezt, að við séum hvorugt að fyrirgefa neitt. Skrítið, en það var eins og hún væri að hlæja, — og Rory líka. Brigid varð alveg rugluð. — Geturðu fyrirgefið mér? hafði hann sagt, en samt var það Helen, sem hafði sært hann. Og hann hafði látið sækja hana, en ekkert kært sig um Brigid. Hún nam staðar í stiganum. Hún sá, að Gordon var reykjandi inni í bókaherberginu. Hann sá hana, drap þegar í sígarettunni og kom fram í forstofuna. — Ég hélt þú værir farinn. Hún gekk til hans — Þú hefðir ekki þurft að’ bíða allan þennan tíma. Hann brosti til hennar: — Mig langaði til þess. Ég vildi sjá þig aftur, áður en ég færi. Hún sagði: — Ég er fegin því. Ég þakkaði þér aldrei fyrir hjálp- ina. — Mig langaði ekki til að láta þakka mér. Mig langaði til þess að ganga úr skugga um, Brigid, að alit væri í Iagi með þig, sagði hann. — Með mig? Hann lagði handlegginn á öxl henni. — Þú ert skrítin stelpa. Þú ert svo óbilgjörn. Hann brosti ennþá til hennar. — Veiztu það, að þú ert mjög lík honum pabba þínum? ? — En í kvöld, þá lét pa’bbi —. — Ég veit, hvernig hann er. Ég held, að hann sé fínasti karl. Hún var honum þakklát fyrir að segja þetta. — Og ég held, að þú getur orð- ið ágæt, þegar þú ert orðin stór. Hann horfði á hana. Hún hafði séð slíkt augnaráð áður. Hún vissi, hvað það þýddi, og hún vissi líka einhvern veginn, að hann ætlað- ist ekki til þess, að hún vissi það. Hún rétti hæglátlega út höndina og leit upp, og hann beygði höfuð sitt að vörum hennar og kyssti hana. Hún hafði ekki búist við slíkum kossi. Hún þrýsti sér fastar að honum. En hann vék sér hægt undan og sagði aðeins: — Góða mótt, Brigid. Svo var hann farinn. — Brigid. Móðir hennar stóð uppi í stigapallinum. — Rory vill finna þig. Brigid var alveg steinhissa á því, hvernig Gordon hafði sleppt tækifærinu, sem hún hafði gefið honum til að kyssa hana meira. Þegar Brigid kom inn til Rorv, var liann náfölur og tekinn. En hann brosti til hennar þessu gamla, góða brosi. — Jæja, Brigid, ég hef víst vald- ið þér margskonar hugarangri í kvöld. Þér og þessum unga manni. — Líklegast, svaraði hún og 30 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.