Heimilisritið - 01.05.1947, Page 54

Heimilisritið - 01.05.1947, Page 54
SINADRÁTTUR OG BLEK Sp.: 1. Eg þjáist oft af sinadrætti. Get- urðu gefið mér nokkuð ráð við honum? 2. Er hægt að uá blekbletti úr hvítum dúk? Gunna. Sv.: t. Ef þetta er alvarlegt, þá þarftu að tala við lækni. Annars er til gamalt húsráð við sinadrætti. Það er svona: Þeg- ar þú færð sinudrátt vætirðu kliit í köldu vatni og leggur hann þar á, sem verkurinn er sárastur. Þá á sinadrátturinn að hverfa. Mundu líka að lyfta tánum á þeim fæti sem sinadrátturinn gerir vart við sig, strax og hann byrjar. 2. Blekblettir nást vehjulega af með volgu vatni, ef þeir eru nýir. Annars með heitri upplausn af oxalic aeid, sem skolað er burt á eftir. Munið að þetta efni er eitrað. Og ef það er ekki til má reyna eft- irfarandi: Nuddaðu rabarbarastilk við blettinn, þannig að saftin bleyti efnið vel og legðu það svo út í sólskin. Þegar það er orðið ]>urrt endurtekurðu þetta á sama liátt unz bletturinn er horfinn. Þá er einnig hægt að ná blettinum með mjólk. Ilenni er dreypt á blettinn og hún svo þerruð af aftur með þerripappír. Þetta er endurtekið þangað til mjólkin er hvit eftir sem áður. Loks er bletturinn þveginn með sápufroðu og þurrkaður með gömlu handklæði. Ef bletturinn er orðinn gamall þarf mjólkin að vera lengur á og helst þurfa að h'ða nokkrir klukkutímar á milli ]>ess sem bletlurinn er vættur með mjólk- inni. Ennfremur mun oft vera hægt að ná blettinum í burt með terpentínu. — Einnig er soðinn sítrónusafi ágætur. Þá er bletlaða efninu dyfið ofan í sjóðandi safann og bletturinn soðinn burt. Á eftir er efnið skolað upp úr volgu sápuvatni. RIFINN KJÓLL Sp.: Iværa Eva. Ef þú getur hjálpað mér ertu öllum fremri, sem ég hef spurnir af. Ég á dýran og vandaðan kjól, sem ég hef aðeins farið í einu sinni. Þá varð ég svo óheppinn að rífa hann svolítið, en á áber- andi stað og hef því ekki getað notað liann síðan. Mér skilst á þeim, sem ég hef talað við um þetta, að engin leið sé að gera við þetta öðru vísi en að það verði mjög áberandi. Nú treysti ég þér til að koma inér til hjálpar og ráða mér heilt. Aðdáandi þinn. Sv.: Ef þú ert handlagin eða þekkir ein- hverja slíka, er hægt að sauma rifuna sam- an með kvenmannshári svo vel, að litil eða engin missmíði sjáist. En ef þú treystir þér ekki til þess skaltu h'ma hana saman á röngunni með heftiplástri. SÚKKULAÐIBLETTUR Sp.: 1. Ég varð svo óheppinn, að það helltist súkkulaði í nýjan dúk sem ég á. Geturðu gert svo vel og sagt mér, hvernig ég get náð blettinum? S. S. Sv.: Það er auðvelt að ná súkkulaðiblett- um úr borðdúk, með því að þvo blettinn með mjólk og þvo dúkinn svo á venjulegan liált. Ef dúkurinn er mislitur þarf helst að ná blettinum burtu með þessu móli, áður en hann þornar. Eva Adams. 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.