Heimilisritið - 01.01.1951, Page 7
hvað var þetta? Hálfkæft óp
kvenmanns. Elisa .. . það var
hún! Fagnaðarstraumur fór um
hann allan. Henni var bjargað.
Hann hafði bjargað henni. Nú
mundi hann það allt: Spreng-
inguna ... hann hafði særzt ...
kannske lífshættulega; en það
gerði ekkert til, hann hafði
bjargað Elisu!
Hann fann, að grímu var
brugðið yfir höfuð honum. Æ,
bara að hann gæti hreyft sig
ofurlítið, svo að hann væri fær
um að kasta henni burtu. Held-
ur vildi hann deyja en verða ör-
kumla allt.sitt líf, byrði á Elisu
og öðrum. En hann gat ekki
hreyft sig hið minnsta. Eitur-
loftið sogaðist niður í lungu
hans og gerði út af við meðvit-
und hans. Rólega ... blessunar-
ríkt ... já, blessunarríkt! Að
komast beint frá þessu öllu, inn
1 tilfinningalaust myrkur. And-
ið djúpt, djúpt ... hversu oft
hafði hann ekki sagt þetta við
sjúklinga! Lofið mér deyja í
þeim svefni, sem þessu fylgir!
Lofið mér að deyja ...
Síðan var allt búið. Myrkrið
svalg hann. Eins og stórt kol-
svart blóm, sem hvelfdi yfir
hann svörtum krónublöðum sín-
um. Eða Jpað yoru dyr, sem
hann stóð andspænis og þurfti
að opna, til þess að geta komizt
út í myrkrið. Eða fortjald, sem
hann varð að þoka til hliðar ...
fortjaldi ...
HANN greip hraustlegu taki
í þykkt hengið fyrir tjaldinu og
þreif það til hliðar. Hann rudd-
ist nú utan úr myrkri tjaldbúð-
anna, þar sem honum hafði tek-
izt að komast framhjá vörðun-
um, og inn undir skáhallt og inn-
sveigt þak stóra tjaldsins. Og
rymjandi hlátur gall við á móti
honum.
„Halló, Sergius, hvar hefur þú
verið? Hér bíðum við eftir þér.
Þú hefur kannske enn einu sinni
letrað ástarorð þín á vaxtöflur,
og sent þau þinni óviðjafnan-
iegu Selenu og skýrt henni frá
því, að einnig þessa orrustu haf-
irðu lifað af og getir nú tekið
þátt í fögnuðinum ásamt okkur
ninum. Flýttu þér ... komdu og
drekktu! Annars verðum við
dauðadrukknir áður en þú
dreypir -á fyrsta sopanum!“
Þarna voru félagar hans fimm
þegar setztir við stóra borðið í
miðju tjaldinu. Höfuðsmenn,
eins og hann sjálfur, í einum
hluta riddaraliðs hinna róm-
versku hersveita, sem lagt höfðu
í eina af þessum ævintýralegu
söguherferðum langt austur fyr-
ir Palestínu, undir forustu eins
af harðstjórum Ágústusar. Þeir
voru enn í herklæðunum, ryk-
ugir og sveittir, höfðu ekki gef-
5
JÍEIMILISRITIÐ