Heimilisritið - 01.01.1951, Blaðsíða 16
hið illa eðli mannsins myndi
taka þau í þjónustu sína og
sökkva skipum og drepa áhafn-
ir þeirra. Það var ekki fjarri
lagi hjá honum.
Leonardo da Vinci fæddist
árið 1452 og yar óskilgetinn
sonur Ser Pietro d’Antonio,
nafnkunns ítalsks lögfræðings,
og konu af lágum stigum er hét
Catarina. Fæðingarbær hans
hét Vinci, sem stendur í fögru
fjallahéraði í Toskaníu. Faðir
hans ól hann upp í Florence,
sem þá var andleg miðstöð í-
talíu, og sparaði ekkert til þess
að mennta hann hið bezta.
Hann varð allra æskumanna
fríðastur og fyrirmannlegastur,
og svo sterkur var hann, að
mælt er að hann gæti beyglað
saman venjulega skeifu með
annarri hendi. Hljómlistarnæm-
ur varð hann með afbrigðum,
skemmtilegur í viðræðum og
manna kurteisastur. Átti hann
auðvelt með að afla sér vina
allt til dauðadags.
Fimmtán ára gamall fór hann
að læra að mála hjá ágætum
kennara, er Verocchio hét, en
ekki leið á löngu þar til hann
varð kennaranum fremri. Árið
1480 málaði hann fyrsta lista-
verkið sitt, „Tilbeiðsla konung-
anna“, en annars eru fáar full-
gerðar myndir til eftir hann
frá þeim tíma. Hann var upp-
tekinn af óteljandi viðfangsefn-
um, og hann hætti ógjarnan við
neitt, fyrr en hann stóð jafn-
öldrum sínum framar í því.
Stundum gekk hann um sölu-
torgin og keypti fugla í búri —
til þess eins að sleppa þeim og
sjá þá fljúga frjálsa burt. Og
stundum staðnæmdist hann,
fríður og prúðbúinn, og hélt
ræður fyrir fólkinu um áhuga-
mál sín.
Árið 1483 flutti Leonardo frá
Florence til Milan og gekk 1
hirðþjónustu Ludovico Sforza
(II Moro). Þar var hann í sex-
tán ár og gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum við hirðina, auk
þess sem hann vann að kappi
við ýms önnur áhugamál sín,
þar á meðal 26 feta háa stand-
mynd af Francesco Sforza, föð-
ur Ludovicos. Hún átti að steyp-
ast úr bronzi, en Leonardo lauk
aðeins við frummyndina, áður
en hann yfirgaf Milan, er Ludo-
vico lét borgina af hendi við
Frakka, árið 1499. Þetta var
eitthvert glæsilegasta riddara-
líkneski í endurreisnarstíl, en
því miður eyðilögðu franskir
hermenn það litlu seinna.
Nokkrar myndir málaði Leon-
ardo á þessum árum, m. a.
snilldarverkið mikla, „Kvöld-
máltíðin“, sem málað var sem
veggmynd í Santa Maria delle-
Grazie klaustrinu í Milan, en
H
HEIMILISRITIÞ