Heimilisritið - 01.01.1951, Blaðsíða 43
hann og hann fær mér lykilinn
að hólfinu, svo ég geti sótt aur-
ana strax. Þegar allt er í lagi
og ég hef fullvissað mig um,
að enginn löggi sé í námunda
við gistihúsið, á ég að sækja
hann í bíl, og svo bregðum við
okkur til New York saman.
Heldur hann. En honum skjátl-
ast bara. Það fer sem sé ofur-
lítið öðruvísi. Ég hef fengið her-
bergi handa honum, nr. 73 í
Mitlersgistihúsi. En herbergið
snýr út að bakgarðinum, sama
bakgarði sem liggur upp að
Penfoldgistihúsi, - þar sem er
baðherbergi á annarri hæð með
glugga beint á móti herbergi
Pereira ... Þaðan hefur okkur
komið saman um, að ég gefi
honum merki, þegar allt er í
lagi. En þegar ég hef fengið
lykilinn, fer ég yfir í Penfolds-
barinn, þar sem þú situr, og læt
þig fá hann. Svo þarft þú ekki
annað en taka bíl og sækja
peningana í bankann, meðan
ég skrepp upp í baðherbergið
á annarri hæð. Og þegar ég sé
Pereira í glugganum á móti,
fær hann merkið með þessari
hérna!“
Og svo hvolfir hún úr erma-
skjólinu og heldur byssunni
upp að nefinu á Tilbaka.
„Og svo brennir þú á hann
þvert yfir garðinn. Ljómandi
hu'gmynd. Það er sallafínt!"
HEIMILISRITIÐ
,,0. K.,“ segir hún yfirlætis-
lega. „Og þegar þú ert búinn
að ná í töskuna með aurunum,
nærð þú í bíl og ekur beint út
á flugvöll og kaupir tvo far-
miða til New York. Svo hitti
ég þig hér, jafnskjótt og ég hef
lokið mínu verki og afgreitt
Pereira. Ertu með á nótunum?“
Tilbaki stendur enn frammi
fyrir speglinum og lagfærir
slifsið.
„Fyrsta flokks hernaðaráætl-
un, unginn minn,“ segir hann.
„Auðvitað er ég með. Ég bíð
þín í Penfoldsbarnum klukkan
fimmtán mínútur yfir sjö.“
Hún stendur upp. „O. K., Til-
baki. Drekkum skál fyrir því?“
Á tilskildum tíma stendur
Tilbaki í barnum ásamt fjölda
af öðrum landeyðum og drekk-
ur viský og er afar ánægður
með sjálfan sig og alla tilver-
una. Hann hefur auga með dyr-
unum.
Jenny kemur á mínútunni.
Hún gengur beint til hans og
fær honum lykilinn með hægri
hendinni, sú vinstri er kyrr í
ermaskjólinu. „Jæja, hafðu þig
af stað, Tilbaki,“ hvíslar hún.
„En flýttu þér. Ég sit hér í tíu
mínútur, áður en ég fer upp
og brenni á hann. Við sjáumst
á flugvellinum.“
Tilbaki stingur á sig lyklin-
um og tekur hatt sinn.
41