Heimilisritið - 01.01.1951, Blaðsíða 15
Leonardo da Vinci
Stutt æviágrip fjölgáfaðasta
snillings sem uppi hefur verið
EINN AF mestu snillingum
heimsins, sem nokkurntíma
hefur lifað á þessari jörð, var
djúphyggju- hugvits- og lista-
maðurinn Leonardo da Vinci.
Þegar hann ólst upp lék hon-
um allt í hendi og höfði, unz
kalla mátti hann meistara 1
dráttlist, málaralist, vísindum,
heimspeki, stærðfræði, bók-
menntum, tónlist og frumlegum
uppfinningum.
Lang-þekktustu málverk hans
eru hin heimsfræga „Mona
Lisa“ og „Síðasta kvöldmáltíð-
in“, sem flestir munu kannast
við eða hafa jafnvel séð í ein-
hverri útgáfu, þótt óvíst sé að
eins margir þekki höfundinn.
Af uppfinningum hans eru
hjólbörumar kunnastar almenn-
ingi. Litla flugvél smíðaði hann
árið 1490, en þar sem hreyfill-
inn var ekki fundinn upp fyrr
en 400 árum síðar, varð ekkert
V angamynd af Leonardo da Vinci.
Teikningin er geymd í Windsorkastala.
úr flugi, þótt öllum komi sam-
an um, að eftir teikningum af
henni að dæma, hafi hún verið
rétt hugsuð og smíðuð. Neðan-
sjávarskip hafði hann ennfrem-
ur fundið upp, en kvaðst ekki
vilja lýsa þeim, af ótta við að
HEIMILISRITIÐ
13