Heimilisritið - 01.01.1951, Blaðsíða 51
svo munið þér að senda bókina
... poste restante, merkt A. F.“
„Ég skil ... A. F.: afbragðs
faðir.“
Anton Fröhlich læknir varð
dálítið vandræðalegur.
„Jú, jú, það myndi ekki allir
feður bregðast svona vel við,
oftast verður að snúa sér til lög-
reglunnar og málflutnings-
manna til að ná rétti sínum.
Ég má víst leggja fallegan
blómsveig á kistu Önnu? það
skal standa á honum: frá A. F.
En ég hafði næstum gleymt að
samhryggjast yður!“
„Samhryggj... nú, já, þakka,
þakka. Og svo sendið þér bók-
ina til póststofunnar hérna.“
„Það skal gert strax. Sælir ...
og drottinn blessi yður.“
Nokkrum dögum síðar, þeg-
ar Frahk Ris augnlæknir hleyp-
ir seinasta sjúklingnum inn til
sín, er það kona í hjúkrunar-
búningi. Hann lítur vingjam-
lega til hennar og býður henni
sæti. „Jæja, hvað er svo að aug-
unum?“
„Ekkert ... ég kem nefnilega
ekki fyrir sjálfa mig. Það er
dálítið erfitt að segja frá því,
læknir. Ég kem með hinztu
kveðju frá Önnu.“
„Frá hvaða önnu?“
„Já, læknirinn kannast ekki
við eftimafn hennar nú. Það
fíEIMILISRITIÐ
eru, að því er ég bezt veit, fjórt-
án ár síðan læknirinn kvænt-
ist.“
„Já, það er öldungis rétt. En
hvað kemur það við kveðjunni
frá Önnu?“
Svo kemur öll sagan um hina
látnu Önnu, og þegar læknirinn
hefur hlustað á hana, án þess
að grípa fram í, brestur hún í
grát. Læknirinn horfir fyrst á
hana með hluttekningu, svo
slær hann í borðið, brosir,
sprettur upp, opnar dyrnar inn
í setustofuna og kallar: „Komdu
hingað, Margit, flýttu þér, ég
þarf að segja þér óvænt tíð-
indi!“
Hann skundar ljómandi af
gleði til hjúkrunarkonunnar,
sem þurrkar sér um augun,
furðu lostin.
„Ég get sagt yður, að meiri
gleðitíðindi gátuð þér ekki
fært,“ segir hann. „Hjónaband
okkar er því miður bamlaust,
og við höfum lengi óskað að
ættleiða barn. Það eina, sem
hefur aftrað okkur, er áhættan
við að taka börn ókunnra for-
eldra ... erfðaeiginleikar og
þessháttar ... og svo komið þér
eins og sendiboði frá himnum.
Drottinn minn, Anna blessunin-
in, já, hún var sannarlega góð og
göfug manneskja ... hugsa sér,
að hún skyldi eignast bam ...
og mig grunaði ekkert ... hún
49
/