Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 6

Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 6
undir augnalokunum, sem voru eins og undirskálar á hvolfi langt inni í höfði. Blár rykfrakki, snjáður af elli og alltof víður, gerði hann enn mjóslegnari og visnari en hann í rauninni var. Hann gekk alltaf hægt, seig áfram með eilitlum hnykk við hvert skref. Ég sá hann aldrei breyta gönguhraða sínum, aldrei flýta sér, aldrei hægja á sér. Hann leit ekki upp, nema hann væri nauðbeygður til þess vegna umferðarinnar. Það var eins og honum hefði verið kastað niður í þetta jarð- líf af öðrum hnetti, vissi ekki hvar hann væri eða hvert skyldi halda, svö stefnulaust var allt hans fas. Einu' sinni sá ég krakkana elta hann með ópum og óhljóð- um, eins og er siður barna, þeg- ar skrítið fólk á í hlut. Ég nam staðar til þess að sjá hverju fram yndi, því að forvitni mín var .vakin á þessum einkenni- lega manni. Hann hélt leiðar sinnar án þess að gefa aðsúg barnanna minnsta gaum, unz hann skyndilega sneri sér við og leit þegjandi yfir hópinn með þeim afleiðingum, að bömin stukku öll sitt í hverja áttina. Ég komst að raun um, að uppáhaldsstaður hans var tjarn- arbakkinn. Og mér var hulin ráðgáta, hvað hann entist til að standa þar og glápa ofan i vatn- ið, oft klukkutímum saman. Ég gaf honum gætur út um glugg- ann minn, já, ég verð að segja eins og er, ég hafði ekki af hon- um augun, og oft. gat ég ekki lagzt til svefns á kvöldin, fyrr en ég vissi, að hann var farinn. Ég fór að hugsa um, hvernig hugheimur hans væri, hvað hann sæi svona hrífandi við þetta vatn, en þá minntist ég augna hans, og það kom að mér skjálfti. Kannske ætlar hann að drekkja sér þarna, en breztur kjarkinn þegar á þarf að herða, eða kannske hefur einhver drukknað þarna, sem honum hefur þótt vænt um. Stundum gerði ég það af á- settu ráði, þegar ég vissi að hann stóð þarna, að ég gekk fram hjá honum. Einu sinni gerði ég það af bríaríi að staldra ögn við og bjóða honum gott kvöld, en hann bærði ekki á sér. „Áttu eldspýtu?“ sagði ég, ákveðinn í því að víkja ekki af hólminum fyrr en í fulla hnefana, en hann leit ekki við mér. Ég æstist upp við þessa óhugnanlegu þögn, sem stafaði af honum. Það var rétt komið að mér, að þrífa í öxlina á hon- um, hrista hann til og vita hvort hann fengi ekki málið, en hætti við þaðv Ég skundaði á brott, langt út fyrir þorpið, staðráðinn 4 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.