Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 19
Hún otaði skammbyssunni milli rifja hans. „Standið upp!" sagði hún. I tungls-
Ijósinu sá hún andlit bans, afmyndað af skelfingu.
I læstum skipsklefa
Smásaga um filmstjömu og mann,
er var að flýja undan lögreglunni,
eftir Graham Goss.
ÞAÐ VAR uppátæki auglýs-
ingastjórans hennar, að hún
skyldi panta sér lúxusklefa og
loka sig inni í honum alla leið-
ina yfir hafið. New York blöð-
in gerðu mikið veður út af
þessu. Furðulegt uppátæki film-
stjörnu! Lucille Devere ætlar
að ferðast yfir Atlantshafið í
læstum klefa! stóð í einni fyr-
irsögninni, en annað blað sagði:
„Kvikmyndastjarna mannfæl-
in“.
Það var kaldhæðni örlaganna,
að það var ekki minnzt svo á
hana í blöðunum, að ekki væri
talað um tilfinningalíf hennar.
Eftir síðustu mynd hennar skrif-
aði einn gagnrýnandinn: Lucille
leiddi okkur með heillandi
raunsæi gegnum öll stig mann-
legra tilfinninga. Hún opinber-
aði í sjálfri sér sál Ameríku.
Það var kaldhæðið, því að sál-
arlíf hennar hafði verið svo
vandlega rýnt og rannsakað, að
hún var loks svipt öllum blekk-
ingum og tilfinningum eins og
ást, fórnfýsi, samúð og þakk-
læti. Hún var nógu skynsöm
HEIMILISRITIÐ
17