Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 29
f
Hvað dreymdi þig
í nótt?
✓
Ytarlegar draumaráðnmgar
ANDI. — Sjá Afturganga.
ANDLIT. — Dreymi þig, að andlit þitt sé ákaflega fagurt, boðar
það ánægju og skemmtanir. Sé það þrútið, er það fyrir pen-
ingurn, en sé það dökkt og óhreint máttu iðrast einhvers verkn-
aðar. Sjáirðu andlit þitt speglast og það er fagurt á að líta, er það
mjög góður fyrirboði, en ella getur það verið fyrir óvináttu ann-
arra manna, eða að eittlrvað, sem þú vilt halda leyndu, verður
opinbert. Dreymi þig að þú sjáir andlit einhvers, sem þú þekk-
ir, á einhverju dýri, mun sá maður sýna þér óvináttu. Ef þig
dreymir að þú sjáir mörg ókunnug andlit, muntu skipta um
starf eða dvalarstað, áður en langt um líður. (sjá S-pegill).
ANDRÚMSLOFT. — Sjá Loft.
ANDSTÆÐINGUR. — Ef þig dreymir að þú mætir mótstöðu-
manni þínum, muntu ryðja úr vegi hindrunum fyrir hamingju.
Það boðar glæsta framtíð.
ANDVARP. — Ef þú andvarpar í draumi, muntu brátt gleðjast
og hlæja innjlega.
ANTILÓPA. -— Þetta indæla dý - er boðberi frá elskhuga þínum.
Þú mátt hvorki tortryggja hann né svíkja.
ÁNÆGJA. — Ef þig dreymir að þú öðlist mikla ánægju af ein-
hverjum orsökum, er það fyrirboði þess, að þú munt verða
mjög áhyggjufull(ur) út af börnum þínum, eða einhverjum
nánustu ættingjum, um Iengri eða skemmri tíma.
v______________________________________________________J
HEIMILISRITIÐ
27