Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 29

Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 29
skipt hefur verið á venjulegu and- rúmslofti og samanþjöppuðum tó- baksreyk, og allir hrópa sam- tímis hver í kapp við annan. Ef við nú áræðum að fara inn, tek- ur húsmóðirin á móti okkur með hvellum fagnaðarópum, gerir yf- irhafnir okkar upptækar og fer svo til að sækja okkur sopa. Ég sezt á ejna auða stólinn og tek þá eftir, að hann er næstur manni, sem ég þoli ekki nálægt mér. Þú kemur auga á gamla skólasystur, sem þú hatar af öllu hjarta, og þið fallizt í faðma. Og nú spyr ég: yfirgefa tvær óbrjál- aðar manneskjur af frjálsum vilja sitt góða rúm til að taka þátt í slíkri martröð?“ ,,í fyrsta lagi faðmast kvenfólk ekki,“ andmælti Eva. ,,Og í öðru lagi fer hugmyndaflug þitt langt fram úr veruleikanum. Svona leiðinlegt getur aldrei neitt orð- ið.“ Tim lækkaði röddina í drama- tískt hvískur. ,,Hlustaðu nú á- fram! Allt í einu finn ég augu hvíla á mér. £g lít upp . . . og þarna stendur hún. Engilfögur stúlka með húð sem fílabein gyllt af fyrstu geislum morgun- sólarinnar, og hár eins og drottn- ing næturinnar. Brún augu henn- ar eru íhugul en þó bljúg, full af samúð og skilningi, en mann grunar, að eldur búi undir niðri. Eitt andartak, sem er eins og ei- lífð, horfum við hvort á annað. Enn höfum við ekki talazt við, þó finnum við bæði, að við höf- um alltaf þekkt hvort annað, höf- um alla ævi beðið þessarar stund- ar. Svo nálgast hún gegnum þok- una. Það er eins og hún svífi. Fólkið víkur úr vegi fyrir henni. Hún sezt við hlið mér og segir: ,,Loksins!“ með rödd, sem hljómar eins og jhimnesk harpa. ,,Já,“ segi &g. Ekkert annað. En það er heill heimur á bak við þetta einfalda orð. ,,Hvað heitið þér?“ spyr hún lágt og heitt, en heldur strax á- fram: ,,Nei, hvað varðar okkur tvö um nöfn ? Kallaðu mig Kötu.“ ,,Sæl, Kata,“ segi ég með daufu brosi, álíka og drukknandi maður, sem kemur upp í þriðja sinn. Og svo sný ég mér við til að gá að, hvort þú hafir tekið eftir nokkru.“ Hann blés reykjargusu framan í Evu. ,,Svona, lokaðu nú augunum, þá getur þú ímyndað þér, að þú sért í kokkteilsamkvæmi!“ Hún tók könnuna og hellti aft- ur í bollann sinn. Tim rétti fram sinn boha, svo að hún gæti hellt í hann. Þau settust upp, hvort með sinn kodda við bakið. Eva spurði: ,,Sástu svo, hvort ég tók JÚLÍ, 1952 27

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.