Heimilisritið - 01.07.1952, Blaðsíða 56

Heimilisritið - 01.07.1952, Blaðsíða 56
áður, og að enginn hafði spurt eftir honum. Hann var eign ungr- ar stúlku, sem hafði komið um hálf ellefu daginn áður í fylgd með ungum, háum og herðabreið- um manni, sem leit út fyrir að vera stúdent. Það kom brátt í ljós, að þau voru bæði horfin. Af gestabókinni sást, að eig- andi hattsins hét Grace Brown og var frá South Otselic, New York. Fylgdarmaður hennar, sem hafði ritað nöfn þeirra beggja, kallaði sig Carl Graham frá Al- bany, New York. Þau höfðu ekki notað herbergi sín, heldur farið strax niður að bátabryggjunni með allan sinn farangur. Aðeins hatturinn varð eftir, þar sem Gra- ham hafði sjálfur hengt hann. Hópur manna tók þegar að slæða í vatninu. Klukkan 4 þann 12. júlí fannst, um 150 metra frá landi, lík ungrar, fallegrar stúlku, um tvítugt. Gestgjafinn þekkti þá drukknuðu sem Grace Brown, er átti hattinn í fatageymslunni. Þegar búið var að tilkynna þetta yfirvöldunum í Herkimer, var haldið áfram að slæða eftir Carl Graham, en árangurslaust. Sama kvöld barst athyglisverð frétt frá skrifstofu Klocks fógeta. Grace Brown hafði ekki dáið af idrukknun, eins og fyrst hafði ver- ið talið. Hún hafði verið myrt! Líkskoðun hafði auk þess leitt í ljós, að myrta stúlkan var barns- hafandi. Fimm læknar skoðuðu líkið. Á höfuðleðrinu fundu þeir lítinn, hvítan blett, sem við fyrstu sýn virtist ekki skipta neinu, en ofurlítill skurður leiddi í ljós mikla lemstrun vefjanna undir honum. Æðarnar í heilanum höfðu sprungið af þungu höfuð- höggi. Aðeins ávalt eða fjaður- magnað vopn, sem beitt var af miklu afli, gat valdið slíkri lemstrun. Læknunum kom sam- an um, að vel væri hugsanlegt, að tennisspaði hefði verið notað- ur til þess. Unga stúlkan hafði auðsjáan- lega verið barin í andlitið og höf- uðið áður en henni var fleygt í vatnið. Hvolfdi báturinn var ein- ungis bragð, sem átti að auðvelda morðingjanum undankomu. Leynilögreglumenn voru send- ir til South Otselic til að hafa upp á fjölskyldu Grace Brown, og brátt kom Frank Brown, bóndi, og þekkti þá myrtu fyrir dóttur sína. Brown sagði leynilögreglu- mönnunum, að Grace dóttir hans — eða Billie eins og vinir hennar kölluðu hana — hefði unnið þrjú síðustu árin í skyrtuverksmiðju Gillettes í Cortland. Cortland var meira en 150 kílómetra frá Sauth Otselic og Billie hafði búið hjá eldri systur sinni, sem hafði mat- söluhús í borginni. Billie hatði 54 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.