Heimilisritið - 01.07.1952, Page 67

Heimilisritið - 01.07.1952, Page 67
SPURNINGAR OG SVÖR (Framh. af 2. kápusiSu) um hann til þass að þú viljir bindast honum, og biddu um frcst. Auðvitað verðið þið þá bæði að reikna með því að missa hvort annað. En í þessum sök- um er ekki holt að flaustra neinu af. Unglingar hafa oft svo slæma döm- greind um, hvað þeim er fyrir beztu. Þú mættir gjarnan hafa möður þína eða föður í ráðum með þér. Hjónaband er 'alls ekki tilfinningamál, nema að sumu leyti, og sé eingöngu stofnað til þess á því sviði, er hætt við að endingin verði ekki sem skyldi. Hinsvegar mætti segja mér að hann gengi mcira á eftir þér en holt er fyrir hann sjálfan, og þú ert ef til vill með einhvern draumaprirrs í huga, sem aldrei kemur. Atliugaðu, að það er engin galla- laus persóna til, og hafi maður séð galla maka síns áður en til hjúskapar er stofnað, er líklegra að viðkomandi fyrir- gefi þá í hjónabandinu en ella. Svo læt ég þig sjálfráða hvað þú gerir. Eins og ég hef1 oft sagt áður, þá eru ýms þau vandamál til, sem hver og einn verður að gera upp við sjálfan sig, hvernig hann Ieysir. Annað væri líka til þess að skapa ábyrgðarlcysi hjá fólki og margt fleira í kjölfar þess, sem ég vil ekki fara frekar út í að sinni. Eva Adams. SVAR ÓSKAST Sp.: Kæra Eva. Við erum hérna tvær í vandræðum. Svo er mál með vexti, að við eigum angórapeysur og erum óá- nægðar með hvað kemur mikil ló úr þcim og festist í fötum. — Hvað eig- um við að gera til þess að losna við lóna? — Tvœr í angórapeysnm. Sv.: Því miður veit ég ekki svar við þessu. Nú langar mig til að leita til les- enda minna og vita, hvort einhver kann ráð við þessu og vill rétta mér hjálpar- hönd. Ég væri því þakklát. Gaman væri að fá línur mcð, spurningar eða annað, sem yrði okkar einkamál. Eva Adams. EKKERT LIGGUR Á Svar til „Einnar 18 ára": — Þú skalt vara þig á því að umgangast mikið manninn, sem þig liryllir við, þegar hann sýnir þér blíðuhót. Það getur skað- að þig andlega meira en þig grunar. Og fyrst hinn vill ekki líta við þér, er ekki um annað að ræða en bíða og sjá hvað setur. Átján ára stúlku liggur ekkert á að taka endanlega ákvörðun um fram- tíðina, einkum þegar svipað stendur á og með þig. Eva Adams. VILL VERÐA HJÚKRUNARKONA Sp.: — Kæra Eva. Mig hefur lengi langað til að verða hjúkrunarkona, en hef ekki gagnfræðapróf. Ætli að það sé engin undantekning? — Stúlla. Sv.: — Þú getur reynt að skrifa til Hjúkrunarkvennaskóla Islands (sími 1775) og spyrjast fyrir um þetta. Ég hygg að erfitt sé að sinna beiðni þinni.r en ef til vill þarftu ekki nema smávcgis undirbúningsmenntun í viðbót við þá sem þú hefur. Áhugasamt fólk kemSt venjulega það sem það ætlar sér! Eva Adams. SVÖR TIL ÝMSRA Til „Grétu": — Ut af leiknámi skaltu skrifa til skólastjóra viðkomandi skóla sem allra fyrst. — Láttu íþróttakennar- ann í friði, ef þú vilt ekki eiga á hættu að hann hlæj að þér. — Yfirleitt eru 15 ára stúlkur svo misjafnlega þroskaðar, að aldur og hæð gefa ekki tilefni til reglna um miðlungsþynd. Til „Siggu": — Frekknur má lýsa með frekknukrcmi, brintyfirilti og sít- rónusafa. — Ef þú ert 160 sm. á hæð og 17 ára, áttu ag vega ca. 53 kg. Eva Adams.

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.